Fréttablaðið - 01.10.2014, Page 23
www.visir.is Sími: 512 5000 | Miðvikudagur 1. október 2014 | 25. tölublað | 10. árgangur
F I N G R A F Ö R I
N
O K K A R E R U
A L L S S TA ÐA
R !
Viss um tillagan verði samþykkt
Þorsteinn Sæmundsson alþingismaður segist sann-
færður um að bygging 120 milljarða áburðarverk-
smiðju sé hagkvæm framkvæmd. Hann segir ekki
stefnt að því að ríkið fjármagni og
reki verksmiðjuna.
„Það virðist einhver hafa haldið
að hér ætti að byggja 1954 módel
af Áburðarverksmiðju ríkisins og
síðan hafa menn étið þetta upp hver
eftir öðrum. Við viljum einung-
is að ríkið kosti athugun á
því hvort verkefnið sé hag-
kvæmt,“ segir Þorsteinn.
➜ SÍÐA 4
Þ
Sameinast undir CP Reykjavík
Fyrirtækin Congress Reykjavík og Practical hafa
sameinast undir nafninu CP Reykjavík. Jón Karl
Ólafsson, stjórnarformaður sameinaðs fyrirtækis
og meðeigandi, segir bæði fyrirtækin hafa verið
komin með góða stöðu á markaði, sérstaklega meðal
ferðamanna sem hingað koma í dýrar ferðir.
„Þetta er vaxandi markaður og spennandi tímar
fram undan,“ segir Jón.
Með sameiningunni verður til öflugt fyrirtæki á
ráðstefnu-, viðburða- og ferðaþjónustumarkaði,
með áætlaða veltu upp á milljarð króna. Starfs-
menn verða fjórtán, auk fjölda verktaka sem sinna
ýmsum verkefnum fyrir félagið. ➜ SÍÐA 2
KAUPFÉLÖGIN
LIFA GÓÐU LÍFI
➜ Fjögur kaupfélög velta
milljörðum árlega.
➜ Kaupfélag Skagfi rðinga og
Kaupfélag Fáskrúðsfi rðinga
eiga öfl ugar útgerðir.
➜ KEA seldi helstu eignir sínar
fyrir hrun en fjárfestir nú að
nýju.
SÍÐA 6
Segir viðbrögðin athyglisverð
Andrés Magnússon, framkvæmdastjóri Samtaka
verslunar og þjónustu, segir hin sterku viðbrögð,
sem orðið hafa við þeirri ákvörðun
Samkeppniseftirlitsins að leggja
sekt á Mjólkursamsöluna fyrir
brot á samkeppnislögum, athygl-
isverð fyrir margra hluta sakir.
„Málið allt sýnir fáránleika þess
að lagaumgjörð geti verið með
þeim hætti, að einu og aðeins einu
fyrirtæki séu sköpuð skilyrði til
að hafa nær algera einokunar-
stöðu á markaði, hverju nafni
sem markaðurinn nefnist,“ segir
Andrés. ➜ SÍÐA 10