Fréttablaðið - 01.10.2014, Síða 24
| 2 1. október 2014 | miðvikudagur
SAMKEPPNISEFTIRLITIÐ hefur sektað
Mjólkursamsöluna (MS) um næstum
fjögur hundruð milljónir fyrir sam-
keppnislagabrot þar sem fyrirtæk-
ið misnotaði markaðsráðandi stöðu
sína. Þetta er ekki síst merkilegt
fyrir þá sök að MS er að verulegu
leyti undanþegið samkeppnislögum.
En það virðist ekki nægja og betur
má ef duga skal. Risinn gat ekki látið
hjá líða að skella viðbótarálagningu
á hrámjólk sem hann seldi litlum
samkeppnisaðilum.
MS hefur notið ríkulegra forrétt-
inda á markaði allt frá því Mjólk-
ursölulögin frá 1934 skekktu
samkeppnistöðu á markaði og
gerðu mjólkurbúi Thors Jens-
ens að Korpúlfsstöðum ókleift
að keppa við ríkisstuddan
iðnað. Á þeim áttatíu árum
sem síðan eru liðin hafa nokkrar til-
raunir verið gerðar til að stofna til
alvöru samkeppni við MS og tengd
fyrirtæki. Ostaframleiðsla í Hvera-
gerði mátti síns lítils. Sama gilti um
Baulu. Kjörís neyddist til að fram-
leiða jurtaís í stað rjómaíss til að
losna undan hrammi MS. Mjólku
var komið á hnén með sérstakri við-
bótarálagningu á heildsöluverð hrá-
mjólkur sem keypt var af MS. Sú
viðbótarálagning var endurgreidd
Mjólku þegar hún var komin í hend-
ur Kaupfélags Skagfi rðinga.
MS er markaðsráðandi fyrirtæki
í einokunarstöðu. Sektarálagning
skiptir slík fyrirtæki litlu máli því
sektinni verður velt út í verðlag og
lendir á neytendum. Markaðsmis-
notkun ráðandi fyrirtækja mun ekki
linna fyrr en stjórnendur þeirra
verða persónulega látnir sæta
ábyrgð fyrir samkeppnisbrot.
SAMKEPPNISBROT eru brot gegn
neytendum þó að þau beinist að
fyrir tækjum. MS hefur í gegnum
tíðina sýnt neytendum nær tak-
markalausa lítilsvirðingu. Fyrir-
tækið auglýsir vöru sína sérstak-
lega sem íslenska en skirrist ekki
við að blanda innfl uttu smjöri saman
við íslenskt og selja sem óblandað
íslenskt. MS mun vera stærsti syk-
urinnfl ytjandi landsins og margar
vörur fyrirtækisins eru hlaðnar við-
bættum sykri. Á það ekki síst við um
vörur sem ætlaðar eru börnum og
ungmennum.
NÚ MUN NÆST Á DAGSKRÁ hjá MS
að selja skyr í Bandaríkjunum. Sam-
kvæmt Forbes viðskiptatímaritinu
telst það mjög góður árangur að
selja nýja vöru á Bandaríkjamark-
aði fyrir tæplega 40 milljónir doll-
ara, eða tæplega 5 milljarða króna, á
fyrsta ári. Kostnaðurinn við að koma
nýrri vöru á markað er hins vegar
talinn nema rífl ega 70 milljónum
dollara, eða 8,5 milljörðum króna,
samkvæmt Forbes, og er þó engin
trygging fyrir góðum árangri.
MS þarf því að selja ansi margar
skyrdósir í Bandaríkjunum til að ná
upp í kostnað. Gangi dæmið ekki upp
verður reikningurinn væntanlega
sendur til íslenskra neytenda, sem
eru hvort eð er vanir rándýrum og
sykurmettuðum mjólkurvörum frá
fyrirtæki sem skákar í skjóli einok-
unarverndar og innfl utningstolla.
Sk
jó
ða
n
Kyndilberi neytendahagsmuna?
SKJÓÐAN er frekju- og leiðindaskjóða, sem
lætur ekkert mannlegt sér óviðkomandi.
NÝI TÖLVU- OG VIÐSKIPTASKÓLINN – VIÐURKENNDUR EINKASKÓLI Á FRAMHALDSSKÓLASTIGI
Cisco CCNA R&S
ein öflugasta gráðan í dag!
09 stundir - verð: 329.000
Kvöldnámskeið 13. nóv. – 17. jan.
+ 3 verklegir laugardagar
1
CCNA R&S gráðan er af mörgum talin ein
öflugasta gráðan í upplýsingatækni sem völ er á.
Ef þú hefur áhuga á að verða sérfræðingur í uppbyggingu á
tölvunetum og þeim tækjum sem notuð eru í samskiptum í
netheiminum í dag, þá er þetta námskeiðið fyrir þig. Námið er
undirbúningur fyrir prófið 200 120 sem er CCNA R&S prófið frá
Cisco og er það innifalið í verði námskeiðisins.
Þetta er nám sem gerir talsverðar kröfur til nemenda, en styrkir
án efa stöðu þeirra á vinnumarkaðinum.
Kennari, Áki H. Barkarson (CCIE) frá Advania, hefur 15 ára reynslu
sem sérfræðingur í netkerfum.
Ábendingahnappinn má
finna á www.barnaheill.is
Fyrirtækin Congress Reykjavík
og Practical hafa sameinast undir
nafninu CP Reykjavík. Congress
Reykjavík sérhæfi r sig í skipu-
lagningu ráðstefna, funda og
þinga en Practical veitir þjónustu
til fyrirtækja, stofnana og félaga-
samtaka við skipulagningu hvers
kyns viðburða, skemmti- og hvata-
ferða og ýmissa sérferða.
Með sameiningunni verður til
öfl ugt fyrirtæki á ráðstefnu-, við-
burða- og ferðaþjónustumarkaði,
með áætlaða veltu upp á milljarð
króna. Starfsmenn verða fjórtán,
auk fjölda verktaka sem sinna
ýmsum verkefnum fyrir félagið.
Jón Karl Ólafsson, stjórnar-
formaður sameinaðs fyrirtækis
og meðeigandi, segir bæði fyrir-
tækin hafa verið komin með góða
stöðu á markaði, sérstaklega
meðal ferðamanna sem hingað
koma í dýrar ferðir.
„Þetta er vaxandi markaður og
spennandi tímar fram undan,“
segir hann.
Jón Karl segir það hafa legið
beint við að sameina fyrirtækin.
Congress Reykjavík hefur verið
leiðandi hér á landi í ráðstefnu-
haldi og Practical í viðburða- og
hvataferðum og fyrirtækin tekið
á móti þúsundum gesta. „Það að
vera síðan með eitthvert söluvænt
efni í framhaldinu fyrir ráðstefnu-
gesti og bjóða þeim eitthvað til
viðbótar þýðir að þeir vilja koma
aftur. Þetta talar mjög vel saman
og skarast hvergi.“
Marín Magnúsdóttir, stofnandi
Practical segir viðburðadeild-
ina hjá þeim eiga heima með ráð-
stefnuþætti Congress Reykjavík.
„Viðburðadeildin kemur í mjög
eðlilegu framhaldi af ráðstefn-
unum, þátttakendur sitja ekki
eingöngu ráðstefnurnar heldur
vilja kannski sjá meira af landinu
þegar ráðstefnu lýkur eða fara í
hvataferðir. Þar kemur viðburða-
og hvatadeildin til sögunnar.“
Jón Karl segir að í þeim fjölda
ferðamanna sem hingað komi sé
tækifæri fyrir fyrirtæki á borð
við CP Reykjavík. „Í svona vexti
eins og við erum að upplifa í dag
felast mörg tækifæri, þessir millj-
ón ferðamenn sem stefnir í að
komi til landsins gætu orðið kaup-
endur að ráðstefnum eða hvata-
ferðum.“
Lára B. Pétursdóttir, stofnandi
Congress Reykjavík, segir sam-
legðina við sameininguna mikla.
„Practical hefur verið í stórum
viðburðum og hvataferðum fyrir
bæði innlenda og erlenda aðila.
Innan þessara fyrirtækja eru
tækifæri á báða bóga, menn þurfa
að halda bæði árshátíðir og starfs-
mannaferðir en oft líka ráðstefn-
ur, aðalfundi og fl eira slíkt. Þarna
sér maður ákveðna möguleika til
samvinnu.“
CP Reykjavík verður þannig
eitt stærsta sérhæfða ferðaþjón-
ustufyrirtæki landsins, þar sem
lögð verður áhersla á klæðskera-
sniðnar lausnir.
Practical og Reykjavík
Congress sameinast
Tvö viðburðaþjónustufyrirtæki sameinast. Með sameiningu verður
til eitt stærsta ferðaþjónustufyrirtæki landsins, CP Reykjavík, þar
sem mikil tækifæri eru í vaxandi fjölda ferðamanna til landsins.
CP REYKJAVÍK Stjórnendur nýja fyrirtækisins segja það hafa legið beint við að sameinast.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
VIÐSKIPTI
Fanney Birna Jónsdóttir | fanney@frettabladid.is
Ingvi Jökull Logason hefur keypt
alla hluti í auglýsingastofunni
H:N Markaðssamskiptum. Hann
átti áður þriðjungshlut í fyrir-
tækinu á móti þeim Ragnheiði
K. Sigurðardóttur og Ólöfu Þor-
valdsdóttur.
„Það verða ekki gerðar stór-
vægilegar breytingar á stofunni
þó eignarhaldið hafi breyst, þessi
yfirfærsla hefur staðið yfir í tvö
ár,“ segir Ingvi Jökull í tilkynn-
ingu fyrirtækisins um breyting-
arnar. Hann hefur starfað hjá
auglýsingastofunni í rúm tutt-
ugu ár, þar af í tíu ár sem fram-
kvæmdastjóri.
Fyrirtækið fagnar 25 ára
afmæli sínu á næsta ári en það
hét upphaflega Hér&Nú auglýs-
ingastofa.
„Síðan þá hefur hún einu sinni
skipt um nafn, einu sinni um eld-
húsinnréttingu, þrisvar um lógó
en aldrei um kennitölu,“ segir í
tilkynningunni. - hg
Ingvi Jökull Logason hefur keypt alla hluti í auglýsingastofunni H:N Markaðssamskiptum:
Eignast fyrirtækið að fullu
Á ÍMARK-HÁTÍÐINNI Ingvi átti þriðj-
ungshlut sinn í stofunni í fimmtán ár.