Fréttablaðið - 01.10.2014, Page 28
| 6 1. október 2014 | miðvikudagur
NETTÓ Kaupfélag Suðurnesja er stærsti hluthafinn í Samkaupum sem meðal annars reka Nettó. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Fimmtán samvinnufélög eru með
skráða kennitölu í fyrirtækjaskrá,
en þau eru mjög misjöfn að stærð
og burðum. Umsvifamest þeirra
eru án efa Kaupfélag Skagfi rðinga,
KEA, Kaupfélag Fáskrúðsfi rðinga
og Kaupfélag Suðurnesja.
Eignir Kaupfélags Skagfi rðinga
(KS) eru mestar, en þær nema um
32,3 milljörðum króna og nemur
eigið fé 22,2 milljörðum. Eigin-
fjárhlutfallið er því um 69 prósent.
Eins og fram hefur komið er stærsta
eignin hundrað prósent hlutur í
útgerðarfélaginu FISK-Seafood,
en það er fi mmta stærsta útgerðar-
félagið á Íslandi. Í gegnum útgerð-
arfélagið á KS rífl ega þriðjungshlut
í Olíufélagi Íslands. Að auki á KS
hlut í Fóðurblöndunni í Reykjavík,
Vörumiðlun Sauðárkróki, Vogabæ
– móðurfélagi Mjólku, og mörgum
fl eiri félögum. Þá á KS jafnframt
rétt innan við 10 prósent í Árvakri,
útgáfufélagi Morgunblaðsins.
Annað mjög burðugt kaupfélag er
rekið á Fáskrúðsfi rði. Eignir kaup-
félagsins og dótturfélaga námu 5,8
milljörðum króna í lok síðasta árs
og höfðu aukist um 1,8 milljarða frá
því í árslok 2011. Stærsta eign Kaup-
félags Fáskrúðsfi rðinga er liðlega 80
prósent hlutur í Loðnuvinnslunni, en
að auki á félagið hlut í Fjarðarneti.
Útgerðarfélagið Loðnuvinnslan er
rekið á Fáskrúðsfi rði, eins og Kaup-
félagið, og gerir einkum út skip í
veiðum á uppsjávarfi ski. Gísli Jón-
atansson lét af störfum sem fram-
kvæmdastjóri kaupfélagsins um
mitt síðasta ár eftir 38 ára starf. Við
tók Friðrik Mar Guðmundsson, sem
var áður framkvæmdastjóri Mjólku
og Vogabæjar.
„Okkar arður fer í að byggja upp
í heimabyggð, byggja upp félagið
áfram. Við höfum verið að efla
félagið smátt og smátt og við höfum
verið að afl a meiri veiðiheimilda
og keyptum nýtt skip í uppsjávar-
fi ski,“ segir Friðrik Mar. Nýja skipið
kom til landsins 6. júlí síðastliðinn.
Kaupfélagsstjórinn segir félagið
líka leggja mikla áherslu á sam-
félagslega ábyrgð og bendir sem
dæmi á að í sumar hafi kaupfélagið
byggt upp sólstofu við elliheimilið
í Fáskrúðsfi rði. „Heimamenn upp-
lifa það virkilega að þeir eigi þetta
félag,“ segir hann.
KEA keppir við stóra sjóði
Þriðja kaupfélagið sem vert er að
nefna er KEA, en heildareignir
KEA námu um síðustu áramót yfi r
6,2 milljörðum íslenskra króna og
eigið fé var tæplega 4,9 milljarð-
ar króna. KEA á meðal annars 100
prósent hlut í fasteignafélögunum
Kl0ppum og H98 sem leigja út fast-
eignir á Akureyri. Heildarstærð
fasteigna í eigu félagsins er 3600
fermetrar. KEA á helmingshlut í
Sparisjóði Höfðhverfi nga, sem er
næstelsta starfandi fyrirtæki lands-
ins og þriðjungshlut í fjárfestinga-
félaginu Tækifæri. KEA á líka
Kaupfélögin eru hvergi nærri útdauð
Stærstu kaupfélögin sem enn eru starfandi velta milljörðum á ári hverju. Það stærsta, Kaupfélag Skagfirðinga, á
eignarhluti í tugum félaga. Þau félög eru allt frá því að vera útgerðarfyrirtæki, mjólkurvinnsla og dagblað. KEA
seldi flestar eigur sínar fyrir bankahrun og er í dag rekið sem fjárfestingafélag sem keppir við stóra fagfjárfesta.
➜ Samkaup, sem
eru að stærstum
hluta í eigu Kaup-
félags Suðurnesja,
reka Nettó og
fleiri verslanir.
ÚTTEKT
jonhakon@frettabladid.is
Verð kr. 89.900
SHARP SJÓÐVÉL
Verð kr. 49.900
SHARP SJÓÐVÉL
Verð kr. 74.900
SHARP SJÓÐVÉL
sjóðvélar sem gera það gott um heim allan
8 Vöruflokkar · 200 PLU númer · Sjálfvirk dagsetning
og tími · Hitaprentun · Rafrænn innri strimill
· Mjög auðveld í notkun
99 vöruflokkar · Allt að 2000 PLU númer · Rafrænn innri strimill 9000
línur · Stór LCD skjár · SD kortarauf – hægt að flytja gögn yfir á PC
· Sjálfvirk dagsetning og tími · Hitaprentun · Íslenskur strimill
· Mjög auðveld í notkun
99 vöruflokkar · Allt að 10,000 PLU númer · SD kortarauf – hægt
að flytja gögn yfir á PC · Sjálfvirk dagsetning og tími
· Hitaprentun · Íslenskur strimill · Mjög auðveld í forritun
XE-A307XE-A207BXE-A147B
LÁGMÚLA 8 · REYKJAVÍK · SÍMI 530 2800 · ORMSSON.IS