Fréttablaðið - 01.10.2014, Qupperneq 34
KYNNING − AUGLÝSINGMeistaramánuður MIÐVIKUDAGUR 1. OKTÓBER 20142
Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000 Umsjónarmaður auglýsinga: Jónatan Altli Sveinsson, jonatan@365.is, s. 512-5446 Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal.
Ertu að velta fyrir þér hvern-ig þú getir náð betri árangri en nokkru sinni fyrr – orðið
bestur?
Í bókinni Skaraðu fram úr gefur
norski markþjálfinn Erik Bertrand
Larssen heilræði og hvatningu til
hámarksárangurs.
Erik vann með norska skíða-
landsliðinu fyrir EM í Ósló árið
2011 og hefur í starfi sínu sem
markþjálfi hjálpað forkólfum at-
vinnulífsins, afreksfólki í íþrótt-
um og ósköp venjulegum einstak-
lingum að ná markmiðum sínum,
bæði í daglegu lífi og þegar mest
á reynir.
En hvað þarf að gera til að verða
sigurvegari?
Í Skaraðu fram úr sýnir höfund-
ur hverju hægt er að áorka ef þrot-
laus vilji og einbeiting eru fyrir
hendi og hvernig fólk getur kallað
fram sína bestu eiginleika og nýtt
þá til fulls. Hann hvetur lesandann
til að finna sigurvegarann í sjálf-
um sér og miðlar af yfirgripsmikilli
reynslu sinni. Í bókinni sýnir hann
skref fyrir skref hvaða aðferðum og
tækni má beita til að ná árangri á
hvaða sviði sem er og aðferðirnar
eru sannarlega áhrifaríkar.
Skaraðu fram úr er mögnuð bók
sem getur hjálpað fólki að brjót-
ast úr viðjum vanans og er frábær
förunautur inn í Meistaramánuð.
Jakob S. Jónasson þýddi.
Útgefandi: Forlagið.
Finndu þitt innra ljón!
Erik Bertrand Larssen er eftirsóttasti markþjálfi Noregs. Í bókinni Skaraðu
fram úr hvetur hann lesendur til að finna sigurvegarann í sjálfum sér. Bókin
er ómissandi þegar kemur að því að fylgja eftir markmiðum Meistaramánaðar.
Erik Bertrand Larssen er norskur markþjálfi og höfundur bókarinnar Skaraðu fram úr.
Allir mánuðir hjá mér eru meist-aramánuðir. Ég hugleiði kvölds og morgna. Líf mitt er agað og
ég hef tamið mér hugarró,“ sagði Tolli
í símtali frá Pétursborg í Rússlandi þar
sem sýning á verkum hans stendur yfir.
„Maður uppsker eins og maður sáir.
Með því að stefna að ákveðnu mark-
miði og hafa reglu á lífi sínu fer maður
ósjálfrátt að temja sér slíkan lífsstíl.
Með hugleiðslu fylgir sjálfsagi,“ útskýr-
ir Tolli.
Hann bætir því við að fólk þurfi að
gera samning við sjálft sig. „Það þarf að
byrja daginn með hugleiðslu og endur-
taka hana áður en gengið er til náða.
Þetta samkomulag sem maður gerir við
sjálfan sig er afar mikilvægt en lengd-
in á hugleiðslunni fer bara eftir ákvörð-
un hvers og eins. Maður getur hugleitt
í hálfa klukkustund eða bara eina mín-
útu. Mikilvægt er að gera þetta að venju
og aldrei að sleppa úr. Ég iðka svokall-
aða núvitundarhugleiðslu sem kemur
úr búddisma og hefur verið að ryðja sér
mikið til rúms undanfarinn aldarfjórð-
ung. Þetta nefnist á ensku „Mindful-
ness Meditation“ og ég get fullyrt að ef
fólk prófar að gera þetta í einn mánuð
finnur það varanlegan mun á líðan
sinni. Árangurinn af hugleiðslunni
fylgir síðan fólki út í lífið.“
Tolli segist alveg geta lent í stress-
eða kvíðakasti eins og aðrir en geng-
ur vel að höndla það. „Hugleiðsla er
hugarró og maður er í núvitund í dags-
ins önn en einnig fær maður tækifæri
til að læra á sjálfan sig. Það getur verið
töff og erfitt en það eru allar líkur á því
að uppskera meiri hamingju með því
að þekkja sjálfan þig. Núvitundarhug-
leiðsla er stefnumót við sjálfan sig.“
Tolli hefur haldið námskeið í þess-
um fræðum hjá stórum fyrirtækjum og
hann segir að því hafi verið vel tekið.
Ég hélt námskeið í Íslandsbanka í fyrra
og mun endurtaka það fljótlega. Þar
er hópur fólks sem iðkar hugleiðslu að
staðaldri. Einnig hef ég verið með fyrir-
lestra hjá Vodafone og fyrir starfsfólk-
ið í Gló. Ég reikna með að verða í Gló að
minnsta kosti einu sinni í viku í Meist-
aramánuðinum. Þá munu gestir fá
tækifæri til að kynnast hugleiðslunni.
Allir geta virkjað hæfileikann til sjálf-
skoðunar en þetta er ferðalag,“ segir
Tolli.
Listamaðurinn hefur fengið frábærar
viðtökur í Pétursborg og er afar ánægð-
ur með viðbrögðin en nú standa yfir
Norrænir dagar í borginni. Enginn nú-
lifandi íslenskur listamaður hefur áður
sýnt á þessum stað. Þegar sýningunni
lýkur ætlar Tolli að heimsækja Moskvu
en síðan er ferðinni heitið til
Stokkhólms þar sem hann
ætlar að horfa á bardaga
Gunnars Nelsons.
„Hægt er að þjálfa upp góða
andlega líðan og heilsu. Og hvers
vegna í ósköpunum eigum við að
láta okkar fremstu afreksmenn og
leiðtoga eina um þá vitneskju?“
– Aftenposten
Meistaramánuður á Stöð 2
Stöð 2 sýnir vikulega þætti um Meistaramánuð, en þættirnir verða
sýndir á þriðjudagskvöldum í október kukkan 19.20 í opinni dag-
skrá.
Þar verður fylgst með verðandi meisturum, sem setja sér mark-
mið fyrir mánuðinn. Markmiðin eru af ýmsum toga. Sumir vilja
minnka farsímanotkun en aðrir ætla að vera duglegri við að klippa
á sér neglurnar. Sumir ætla að stunda reglubundna hreyfingu í
Meistaramánuði á meðan aðrir ætla að rækta betur sambandið við
sína nánustu. Þá ætla margir að hætta að drekka áfengi í október,
borða hollari mat eða lesa meira.
Við fylgjumst með þátttakendum sem setja sér markmið og sjáum
hvernig þeim gengur að fylgja þeim eftir. Sérfræðingar gefa góð ráð
varðandi markmiðasetningu, mataræði, hreyfingu og annað auk þess
sem við fjöllum um matarsóun, hjólreiðar, lestur og margt fleira. Allir
geta verið með í Meistaramánuði og sett sér markmið, stór eða smá.
Þáttarstjórnandi er fréttakonan Birta Björnsdóttir. Þættirnir verða
í opinni dagskrá eins og áður segir.
Í þættinum verður fylgst með verðandi meisturum , sem setja sér markmið fyrir
mánuðinn. Markmiðin eru af ýmsum toga.
Stefnumót við sjálfan sig
Þorlákur Kristinsson Morthens, Tolli, listamaður hefur tamið sér hugleiðslu til margra ára.
Hann segir magnaða lífsreynslu að fara á stefnumót við sjálfan sig.
Tolli hefur mikinn
sjálfsaga þegar kemur
að hugarró og slökun.
MYND/ANTON