Fréttablaðið - 01.10.2014, Blaðsíða 36
KYNNING − AUGLÝSINGMeistaramánuður MIÐVIKUDAGUR 1. OKTÓBER 20144
Hamingjan eflir heilsuna heitir bók eftir Borghildi
Sverrisdóttur sem kemur út síðar í mánuðinum hjá
Bókafélaginu. Í bókinni er fjallað um ýmsa þætti já-
kvæðrar sálfræði og hvaða áhrif leiðir hennar geta haft
á líf fólks, svo sem andlega og líkamlega heilsu.
„Bókin er ætluð þeim sem vilja auka hamingjuna í
lífi sínu og bæta heilsuna. Þeim sem vilja tileinka sér
jákvæðari hugsun og auka vægi já-
kvæðra tilfinninga,“ segir Borghildur
sem er heilsuráðgjafi og einkaþjálfari.
„Jákvæð sálfræði byggist á vísinda-
legum rannsóknum og hefur rutt sér
mjög til rúms á undanförnum árum.
Viðfangsefni hennar, á borð við núvit-
und (e. mindfulness), njóta vaxandi
fylgis þeirra sem huga heildrænt að
heilsu sinni og vellíðan.“
Í bókinni eru æfingar og verkefni sem hjálpa
fólki að nýta eigin styrkleika og auka jákvæðni í líf-
inu sem síðan auðvelda fólki að takast á við lífs-
stílsbreytingar og önnur krefjandi verkefni.
Jákvæðni hefur jákvæð áhrif á heilsu
Bók Borghildar Sverrisdóttur, Hamingjan eflir heilsuna,
kemur út síðar í þessum mánuði.
Meistaramánuður á rætur að rekja til ársins 2008 þegar tveir íslenskir háskólanem-
ar í Kaupmannahöfn ákváðu að taka
sig á fyrir prófin og lifa eins og meist-
arar í mánuð með tilheyrandi breyt-
ingum á mataræði, áfengisneyslu,
hreyfingu og lærdómi. Fleiri bættust
í hópinn næstu árin og í október 2011
varð sprenging í þátttöku þegar félag-
arnir hófu að nýta samfélagsmiðlana
til kynningar á átakinu að sögn Þor-
steins Kára Jónssonar, eins þriggja
upphafsmanna Meistaramánaðar.
„Með notkun samfélagsmiðla náðum
við enn betur til almennings en áður
og þátttakendur sjálfir fengu allt aðra
upplifun með þátttöku sinni en áður.
Um 10.000 manns hafa skráð sig til
leiks undanfarin ár og við búumst við
svipuðum fjölda í ár.“ Auk Þorsteins
eru Magnús Berg Magnússon og Jök-
ull Sólberg Auðunsson mennirnir á
bak við Meistaramánuðinn. Þeir þrír
eru að sögn Þorsteins hvorki líkams-
ræktarfrömuðir eða næringarfræð-
ingar heldur einungis menn sem
hafa gaman af því að taka áskorun-
um og reyna að bæta sig á öllum svið-
um lífsins.
Fjölbreyttur hópur
Í fyrra voru sýndir sérstakir sjón-
varpsþættir á Stöð 2 um átakið sem
tókust það vel að ráðist var í gerð
nýrrar þáttaraðar sem sýnd verður
í október. „Þættirnir í ár taka bæði
á hefðbundnum þáttum Meistara-
mánaðarins og svo verða einhverjir
nýir vinklar í ár. Við munum einn-
ig bjóða upp á þá nýjung að senda
þeim þátttakendum, sem þess óska,
hvatningarpóst nokkrum sinnum í
viku í samstarfi við bakhjarla okkar.
Þeir munu innihalda ýmis hvatn-
ingarorð og hugleiðingar sem geta
vonandi hjálpað mörgum. Mánuð-
urinn getur verið mjög erfiður fyrir
marga því þótt markmiðin séu oft
ljós getur ferillinn að þeim oft verið
erfiður.“
Þótt stóru markmiðin séu oft fyr-
irferðarmeiri skipta þau minni ekki
síður máli að sögn Þorsteins. „Okkur
finnst afar mikilvægt að koma því
til skila að Meistaramánuður snýst
ekki um megrun eða að bæta metið
í bekkpressu. Hann snýst einfald-
lega um að skora sjálfan sig á hólm
og spyrja sjálfan sig: hvernig get
ég bætt líf mitt? Þetta getur snúist
um að lesa meira eða hrósa öðru
fólki oftar. Einhver stefnir kannski
í grunnbúðir Everest og annar finn-
ur sér ástæðu til að brosa á hverjum
degi í mánuð. Þetta er allur skalinn
og þannig á það auðvitað að vera.“
Hópurinn sem hefur tekið þátt
undanfarin ár er miklu fjölbreytt-
ari en margur heldur. „Hér er fólk úr
öllum kimum þjóðfélagsins, allt frá
hörðustu töffurum í mýkri bóhema
úr 101. Það gleður okkur alltaf jafn
mikið hversu ólíkir einstakling-
ar þetta eru. Þátttakendur eru líka
á öllum aldri, alveg frá krökkum á
leikskólaaldri upp í fólk á níræðis-
aldri.“
Margir finna styrk
Eftirminnilegustu þátttakendurn-
ir að sögn Þorsteins eru þeir sem
hafa þurft að glíma við ýmiss konar
mótlæti en tekið þátt til að breyta lífi
sínu. „Það er mjög gefandi að fá við-
brögð frá þátttakendum sem hafa
lent í þunglyndi, alvarlegum slysum
eða verið í einhvers konar neyslu.
Þeir finna nefnilega mikinn styrk
í því hversu margir eru jákvæð-
ir og drífandi auk þess að finna að
þeir eru ekki einir. Það eiga nefni-
lega ekki allir félaga til að fara með
í ræktina. Þátttakendur deila mark-
miðum, senda inn hvetjandi mynd-
ir og segja bæði frá skemmtilegum
og erfiðum hlutum. Við vitum að við
höfum skilað einhverju jákvæðu út
til samfélagsins þegar fólk sem
hefur átt í erfiðleikum hefur sam-
band og segir: Þetta var það sem ég
þurfti, þakka ykkur kærlega fyrir.“
Hver og einn mun
skora á sjálfan sig
Fjöldi Íslendinga tekur þátt í Meistaramánuði í ár. Þar skora þátttakendur sjálfa
sig á hólm með stórum og smáum markmiðum. Þeir sem hafa lent í mótlæti í
lífinu finnst mörgum gott að sækja styrk í átakið til að breyta eigin lífi.
Þótt stóru markmiðin
séu oft fyrirferðarmeiri
skipta þau minni
ekki síður miklu máli
að sögn Þorsteins
Kára Jónssonar, eins
þriggja upphafsmanna
Meistaramánaðar.
MYND/ERNIR
0 KR.
LJÓSHRAÐI FYLGI
R
MEÐ VÖLDUM
SJÓNVARPS-
ÁSKRIFTUM
Internet á
ljóshraða
Við bjóðum upp á internet á ljóshraða til 80 þúsund
heimila. Það er einfalt að athuga hvort þitt heimili er
tengt, á 365.is geturðu séð hvort þú kemst á ljóshraða.
Hægt er að nálgast allar nánari upplýsingar og
panta tengingu á 365.is.
Frá 3.490 kr.
Greiða þarf 2.610 kr. aðgangsgjald.
100
Mb/s
200
Mb/s
400
Mb/s
Nú getur þú fengið
mikinn hraða, meiri hraða
og miklu meiri hraða.
NÝTT!
Ábendingahnappinn má finna á
www.barnaheill.is