Fréttablaðið - 01.10.2014, Síða 45
7 | 1. október 2014 | miðvikudagur
LOÐNUVINNSLAN
Stærsta eign
Kaupfélags
Fáskrúðsfirðinga
er Loðnuvinnslan.
Fréttablaðið/GVA
bréf í Icelandair fyrir 11 millj-
ónir króna að nafnverði, en sá hlut-
ur var liðlega 200 milljóna króna að
markaðsvirði við áramót. Einnig á
KEA hlut í Högum sem var um 116
milljón krónur að markaðsvirði við
áramót. Í ársreikningi kemur fram
að rekstur KEA var með svipuðu
móti á síðasta ári og á árinu 2012.
Hagnaðurinn nam 226,7 milljónum
króna í fyrra, en hann var tæplega
279 milljónir króna árið á undan.
Stærstur hluti eigna KEA var
seldur fyrir um það bil áratug,
eða áður en efnahagshrunið skall
á. Fyrir þann tíma átti fyrirtækið
afurðastöð, útgerð og fl eira líkt og
önnur kaupfélög. Nú er félagið að
vinna að nýju í fjárfestingum, en í
ársskýrslu félagsins fyrir síðasta ár
segir að gengið hafi hægar en vonir
stóðu til að ná að framfylgja stefnu
félagsins, það er að fjárfesta stórt
í fáum og jafnvel einu fyrirtæki.
Félagið hafi einnig búið við þá sér-
kennilegu stöðu að keppa um fjár-
festingarkosti við aðila sem hafa
keypt krónur á 20-30% lægra verði
en öðrum býðst í gegnum svokall-
aða fjárfestingarleið Seðlabankans.
„Jafnframt fjölgar sífellt sjóðum
sem sérhæfa sig í að fi nna og fjár-
festa í sambærilegum verkefnum og
KEA leitar að. Nú eru a.m.k. sex sér-
hæfðir sjóðir starfandi á þessu sviði
með 5-10 milljarða í fjárfestagetu
hver og einn; tugir milljarða króna
bíða á hliðarlínunni. Samkeppni um
hin fáu verkefni er því hörð og langt
í frá að þessir sjóðir og önnur fjár-
festingarfyrirtæki hafi enn þá náð
markmiðum sínum um fjárfesting-
ar,“ segir í ársskýrslunni.
Verslunarrisi
Kaupfélag Suðurnesja er ólíkt
hinum félögunum á þann hátt að eig-
infjárstaða félagsins er neikvæð. Í
ársreikningnum kemur fram að
skuldir samstæðunnar umfram
eignir séu um það bil 1.120 millj-
ónir króna og eiginfjárstaða móð-
urfélagsins neikvæð um 696 millj-
ónir króna. Í ársreikningi fyrir árið
2013 segir að móðurfélagið hafi árið
2012 gert samkomulag við stærstu
lánardrottna sína sem leiði til þess
að rekstrarhæfi félagsins sé tryggt.
Á árinu 2013 hafi náðst samkomulag
við aðra lánardrottna. Þetta þýddi
að höfuðstóll skulda móðurfélags-
ins var færður niður um 1,5 millj-
arða króna og samstæðunnar um
1,6 milljarða króna á árinu 2012 og
í fyrra voru skuldir færðar niður
um 54 milljónir króna. Þetta leiðir
til þess að félagið getur staðið undir
greiðslu skuldbindinga. Stærsta
eign Kaupfélags Suðurnesja er
hlutur í Samkaupum en í heild áttu
Kaupfélagið og dótturfélög þess um
63 prósent hlut í lok síðasta árs.
Samkaup reka 48 verslanir á 34
stöðum um landið. Þar á meðal er
Nettó, Kaskó, Samkaup úrval og
Samkaup strax. Velta Samkaupa
og dótturfélagsins Búrs, var tæp-
lega 23,5 milljarðar á síðasta ári og
jókst um tæp 3,6 prósent frá fyrra
ári. Stærstu eigendur Samkaupa
voru, auk Kaupfélag Suðurnesja,
Kaupfélag Borgfi rðinga ásamt dótt-
urfélagi sem átti 21,9 prósenta hlut.
Við höfum verið að
efla félagið smátt
og smátt og við höfum
verið að afla meiri veiði-
heimilda og keyptum nýtt
skip í uppsjávarfiski.
Kaupfélag Skagfirðinga á rétt tæplega tíu prósenta hlut í útgáfufélaginu
Árvakri sem gefur meðal annars út Morgunblaðið og heldur úti frétta-
vefnum mbl.is. Eignatengslin eru þannig að kaupfélagið á níu prósenta
hlut í eignarhaldsfélaginu Þórsmörk ehf., sem á svo aftur 99 prósenta
hlut í Árvakri. Á meðal annarra hluthafa í Árvakri er Hlynur A, sem er
í eigu Guðbjargar Matthíasdóttur, aðaleiganda Ísfélagsins. Krossanes,
sem er í eigu Þorsteins Más Baldvinssonar í Samherja, á fimmtungs-
hlut í Þórsmörk og Áramót ehf., í eigu Óskars Magnússonar, á einnig um
fimmtungshlut. Aðrir eiga minna.
Eiga tæplega 10 prósent hlut í Árvakri
ÁRVAKUR Útgáfufélag Morgunblaðsins er að hluta til í eigu Kaupfélags Skagfirðinga í
gegnum eignarhaldsfélagið Þórsmörk. FRÉTTABLAÐIÐ/ GVA
KEYPTU BÚR Heildverslunin Innnes keypti Búr. Tilkynnt var um söluna um miðjan
síðasta mánuð. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Samkaup hf., Kaupfélag Vestur-Húnvetninga og Kaupfélag Steingríms-
fjarðar seldu Innnesi um miðjan september hlut sinn í Búri ehf.,
dótturfélagi Samkaupa. Búr ehf. var stofnað árið 1995 og sérhæfir sig í
innlendum og innfluttum vörum á ávaxta- og grænmetismarkaði. Í til-
kynningu vegna kaupanna sagði að Búr ehf. byði upp á yfir 400 vöruliði
að staðaldri í ferskum ávöxtum og grænmeti. Íslensk framleiðsla nemur
um þriðjungi af sölu fyrirtækisins.
Seldu Búr til Innnes
Húseign kynnir til leigu frábærlega staðset tar skrifstofur miðsvæðis í Reykjavík til leigu, möguleiki á
sameiginlegri mót töku og símsvörun, bókhaldsþjónustu. Ljósleiðara internet. Góð fundarherbergi og
ráðstefnusalur. Möguleiki á að leigja eingöngu skrifborð í alrými.
Allar nánari upplýsingar veitir Baldvin Ómar í síma 898-1177 eða á skrifstofu Húseignar í síma 585-0100
Suðurlandsbraut 48, Reykjavík s. 585-0100
www. huseign.is huseign@huseign.is
Opið hús í skrifstofuhóteli að Laugavegi 178, Reykjavík
fimmtudaginn 2. október frá kl. 16-18.