Fréttablaðið - 01.10.2014, Page 64
1. október 2014 MIÐVIKUDAGUR| SPORT | 36
Það er ekkert ósvip-
að að fara inn í svona leik
og bikarúrslitaleik; þú
færð engan annan séns.
Gunnlaugur Jónsson
Ingvi Þór
Sæmundsson
sport@frettabladid.is
SPORT
MIÐASALAN á úrslitaleikinn um Íslandsmeistaratitilinn hefst
á morgun, en FH-ingar eru búnir að skipta upp stúkunum og fyrir-
komulag við sölu miða á leikinn verður með sérstökum
hætti. Miðaverðið á leikinn er 1.500 krónur. Börn 11
ára og yngri fá frítt í stæði í fylgd með fullorðnum.
Foreldrar þurfa samt að sækja miða fyrirfram sökum
takmarkaðs fjölda miða. Stjarnan fær úthlutað
1.000 miðum til sölu til sinna áhangenda frá og með
deginum í dag. Almenn forsala hefst í Kaplakrika
fimmtudagsmorguninn 2. október kl. 09.00 og er
opin til kl. 19.00 fimmtudag og föstudag. Ber að
athuga að fjöldi sæta í stúku eru einungis um 3.000
og heildarfjöldi miða í boði verður að hámarki um
6.000. Því er mikilvægt að tryggja sér miða í tíma en
engin miðasala verður á leikdag.
3DAGAR Í ÚRSLITALEIK OG
FÓTBOLTI Handrið í stúku á Kapla-
krikavelli uppfyllir ekki örygg-
iskröfur um lágmarkshæð eins
og þær voru skilgreindar í sam-
þykktum aðaluppdráttum bygg-
ingarinnar. Handriðið er 84 cm
sem er sex sentímetrum of lágt.
Handrið í stúku á Kaplakrika-
velli, Kópavogsvelli og Samsung-
vellinum í Garðabæ eru öll undir
lágmarkshæð handriða eins og hún
er almennt skilgreind í byggingar-
reglugerð.
Erlendur Árni Hjálmarsson,
forstöðumaður Fasteignafélags
Hafnarfjarðar, segir í skriflegu
svari til Fréttablaðsins að enn sé
unnið við lokafrágang stúkunnar
á Kaplakrikavelli, þar með talið
atriði er varði öryggis og aðgeng-
ismál. „Umrætt handrið er eitt af
því sem verður fullgert nú í vetur,“
kom enn fremur fram í svari hans.
Nýlega hlaut áhorfandi á knatt-
spyrnuleik alvarlega áverka er
hann féll niður úr stúku á Þórs-
velli á Akureyri eftir að hafa hall-
að sér fram yfir handriðið. Þó er
handrið á Þórsvelli 120 cm og því
34 cm hærra en á Kaplakrikavelli.
Þess ber að geta að mæling
Fréttablaðsins leiddi í ljós að hæð
handriðs á Samsung-vellinum í
Garðabæ er 87 cm en engin svör
hafa borist frá bæjaryfirvöldum
Garðabæjar við ítrekuðum fyrir-
spurnum Fréttablaðsins vegna
málsins né heldur frá yfirvöldum
í Kópavogsbæ en handrið í stúku
á Kópavogsvelli er 100 cm að hæð.
Í grein 6.5.4 í byggingarreglu-
gerð Mannvirkjastofnunar segir
að „handrið stiga, stigapalla og
svala skulu minnst vera 1,10 m að
hæð“ en þó er ekki talað sérstak-
lega um stúkur eða áhorfendapalla
í reglugerðinni.
Á laugardaginn fer fram leikur
Stjörnunnar og FH í lokaumferð
Pepsi-deildar karla en búist er við
miklum fjölda á leikinn. Fullvíst
er að umrædd stúka á Kaplakrika-
velli verði fullsetin.
Þórir Hákonarson, fram-
kvæmdastjóri KSÍ, segir að það
sé í höndum byggingaryfirvalda á
hverjum stað að tryggja að mann-
virkin uppfylli kröfur sem til
þeirra eru gerðar. „Það er ekki í
höndum KSÍ að gera slíka úttekt
heldur þar til bærra yfirvalda sem
fylgja því eftir að öryggiskröfur
séu uppfylltar,“ segir Þórir.
- esá
Handrið í stúku Kaplakrikavallar of lágt
Enn er unnið við lokafrágang stúkunnar á Kaplakrikavelli og verður handriðið fullgert í vetur.
KAPLAKRIKAVÖLLUR Búist er við fjöl-
menni í Hafnarfjörðinn á laugardag.
FRÉTTABLAÐIÐ/XXX
FÓTBOLTI Á laugardaginn ráðast
úrslitin í Pepsi-deild karla þegar
FH og Stjarnan mætast í Kapla-
krika. Þetta er í fyrsta sinn í 13
ár sem Íslandsmótinu lýkur með
hreinum úrslitaleik milli tveggja
efstu liðanna og í fjórða skiptið á
síðustu 18 árum sem slíkur leikur
fer fram.
„Það er frábært að fá þennan
úrslitaleik. Það er ekkert ósvipað
að fara inn í svona leik og bikar-
úrslitaleik; þú færð engan annan
séns,“ segir Gunnlaugur Jónsson
sem þekkir það betur en flestir
hvernig er að spila úrslitaleiki um
Íslandsmeistaratitilinn.
Hann lék tvo slíka með ÍA á
sínum tíma; gegn KR 1996 og ÍBV
fimm árum seinna. Fréttablaðið
fékk Gunnlaug, sem er þjálfari
ÍA í dag, til að spá í spilin fyrir
úrslitaleik FH og Stjörnunnar.
Mikil hefð hjá FH
FH hefur verið á toppnum íslensk-
um fótbolta undanfarinn áratug,
en Hafnarfjarðarliðið hefur ekki
endað neðar en í 2. sæti síðan
2003. Sex Íslandsmeistaratitlar
hafa unnist á þessum tíma, auk
tveggja bikarmeistaratitla. Stjarn-
an hefur ekki enn landað stórum
titli í karlaboltanum, en liðið tap-
aði í úrslitum bikarkeppninnar
2012 og 2013. Gunnlaugur segir
að sigurhefðin gæti skipt sköpum
á laugardaginn.
„Það er komin ofboðsleg hefð
hjá FH. Kjarninn er búinn að
vera þarna öll þessi ár, þeir hafa
aldrei lent neðar en í öðru sæti,
spilað bikarúrslitaleiki og unnið
titla. Það er nánast einsdæmi í
íslenskum fótbolta hversu vel þeir
hafa haldið á spöðunum. Auðvitað
skiptir það líka máli að leikurinn
verður á þeirra heimavelli,“ sagði
Gunnlaugur sem segir að FH-ing-
ar séu orðnir öllu vanir.
„FH-ingar vita alveg hvernig
á að undirbúa svona leiki og þeir
hafa gert þetta svo oft áður. Þeir
hafa það fram yfir Stjörnuna, líkt
og við höfðum sigurhefðina fram
yfir KR 1996,“ sagði Gunnlaugur.
Stjarnan er, líkt og FH, taplaus
í deildinni, auk þess sem liðið fór
langt í forkeppni Evrópudeildar-
innar. „Ég dáist að frammistöðu
Stjörnunnar í sumar,“ segir Gunn-
laugur.
„Þetta er ótrúlega sterkt hjá
þannig séð óreyndu þjálfarateymi.
Þótt Rúnar Páll (Sigmundsson)
hafi talsverða reynslu er þetta
fyrsta tímabilið hans sem þjálfari
í efstu deild. En hann og aðstoðar-
menn hans hafa unnið stórkostlegt
starf. Nú er bara spurning hvort
þeir nái að klára þennan stóra
leik.“
Stjarnan þarf að stoppa Atla
Stjarnan er þó langt frá því að vera
með reynslulaust lið. Veigar Páll
Gunnarsson var til að mynda í lyk-
ilhlutverki þegar KR varð Íslands-
meistari 2002 og 2003. Gunnlaug-
ur segir að ekki megi vanmeta
mikilvægi hans: „Stjarnan hefur
Veigar Pál og hann kynntist því
að vinna titla með KR. Hann einn
gæti sett stórt strik í reikning FH-
inga á laugardaginn.“
Gunnlaugur sagði jafnframt
að Atli Guðnason væri maðurinn
sem Stjarnan yrði að stoppa, en
Atli fór á kostum gegn Val í síð-
ustu umferð; skoraði þrennu og
átti stoðsendingu, og það á afmæl-
isdaginn sinn.
„Atli Guðnason er klárlega mað-
urinn sem Stjarnan þarf að stoppa.
En FH er með öflugt kantspil, vel
samhæfða vörn og hafa Davíð Þór
Viðarsson inni á miðjunni, en hann
hefur spilað mjög vel í sumar. Það
er þannig séð hvergi veikan hlekk
að finna í FH-liðinu. Að sama
skapi er Stjarnan með mjög sterkt
lið þótt þeir sakni Michael Præst.
Það kemur til með að reyna mikið
á Þorra Geir Rúnarsson, ungan
miðjumann Stjörnunnar, á sunnu-
daginn.“
Gunnlaugur segir að það sé
spennandi að sjá hvernig þjálfar-
ar liðanna ætli að leggja leikinn
upp. Hann gerir þó ekki ráð fyrir
að liðin taki mikla áhættu í byrj-
un leiks.
„Það verður gaman að sjá
hvernig þjálfarateymi Stjörnunn-
ar kemur til með að skipuleggja
liðið. Stjarnan hefur gert það áður
í sumar að bakka aðeins aftar,
þétta liðið og beita skyndisóknum,
en þeir hafa mikinn hraða fram
á við,“ sagði Gunnlaugur og hélt
áfram:
„Báðir þessir þjálfarar (Rúnar
Páll og Heimir Guðjónsson, þjálf-
arar FH) hafa unnið frábært starf
í sumar. Heimir er reyndar hættur
að koma manni á óvart – hann er
orðinn það reyndur. Og ég veit að
hann elskar þetta, að búa lið undir
svona stórleiki,“ sagði Gunnlaugur
að endingu.
Sigurhefðin með FH-ingum
Gunnlaugur Jónsson segir að reynslan og hefðin verði með FH í liði gegn Stjörnunni í úrslitaleiknum um
Íslandsmeistaratitilinn á laugardaginn. Hann segist dást að frammistöðu Garðabæjarliðsins í sumar.
GULLNAR MINNINGAR GULLA
29. september 1996
ÍA vinnur 4-1 sigur á KR á Akranesvelli í hreinum úrslitaleik
en KR nægði jafntefli til að vinna titilinn. Gunnlaugur Jónsson
spilaði allan leikinn sem hægri bakvörður en hann byrjaði 8 af 18
leikjum ÍA.
23. september 2001
ÍA gerir 2-2 jafntefli við ÍBV á Hásteinsvelli í hreinum
úrslitaleik og vinnur á markatölu. Gunnlaugur Jónsson
spilaði allan leikinn sem miðvörður og tók við Íslands-
bikarnum í leikslok en hann spilaði alla 18 leikina og var
valinn leikmaður ársins í lok tímabilsins.
ÚRSLIT
MEISTARADEILD EVRÓPU
E-RIÐILL
CSKA MOSKVA - BAYERN MÜNCHEN 0-1
0-1 Thomas Müller, víti (22.)
MANCHESTER CITY - ROMA 1-1
1-0 Sergio Agüero, víti (4.), 1-1 Francesco Totti
(23.).
Staðan: Bayern 6 stig, Roma 4, City 1, CSKA 0.
F-RIÐILL:
PSG - BARCELONA 3-2
1-0 David Luiz (10.), 1-1 Lionel Messi (11.), 2-1
Marco Verratti (26.), 3-1 Blaise Matuidi (54.), 3-2
Neymar (56).
APOEL - AJAX 1-1
0-1 Lucas Andersen (28.), 1-1 Gustavo Manduca
(32.).
Staðan: PSG 4, Barcelona 3, Ajax 2, APOEL 1.
G-RIÐILL:
SPORTING - CHELSEA 0-1
0-1 Nemanja Matic (34.)
SCHALKE - MARIBOR 1-1
0-1 Damjan Bohar (37.), 1-1 Klaas-Jan Huntelaar
(56.)
Staðan: Chelsea 4, Maribor 2, Schalke 2, Sporting
1.
H-RIÐILL
SHAKHTAR DONETSK - PORTO 2-2
BATE BORISOV - ATHLETIC BILBAO 2-1
Staðan: Porto 4, BATE 3, Shakhtar 2, Athletic 1.
FÓTBOLTI Kári Árnason skoraði
sitt fyrsta mark fyrir Rotherham
í ensku B-deildinni í gær er liðið
vann 2-0 sigur á Blackburn.
Þetta var fyrsti sigur liðsins í
deildinni í rúman mánuð en liðið
er í sautjánda sæti með ellefu
stig. Kári skoraði með skoti í teig
eftir hornspyrnu strax á fimmtu
mínútu.
Brighton og Cardiff gerðu 1-1
jafntefli en Aron Einar Gunn-
arsson spilaði allan leikinn í liði
Cardiff sem er í þrettánda sæti
deildarinnar með þrettán stig.
- esá
Kári skoraði
fyrsta markið
LANGÞRÁÐUR SIGUR Kári skoraði í 2-0
sigri Rotherham á Blackburn í ensku
B-deildinni í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
FÓTBOLTI Átta leikir fóru fram í
riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu
í gær en frönsku meistararnir í
PSG urðu fyrstir til að leggja stórlið
Barcelona að velli á tímabilinu þrátt
fyrir að hafa verið án framherjans
Zlatan Ibrahimovic sem er meiddur.
Chelsea vann sinn fyrsta sigur í
riðlakeppninni er liðið vann Sporting
í Portúgal, 1-0, með marki Nemanja
Matic en Manchester City varð að
sætta sig við jafntefli gegn AS Roma
á heimavelli, 1-1. Þá spilaði Kolbeinn
Sigþórsson allan leikinn er Ajax gerði
1-1 jafntefli gegn APOEL Nicosia á
Kýpur. - esá
Fimm marka fl ugeldasýning á Parc des Princes
FAGNAÐ
Marco Ver-
atti skoraði
fyrir PSG
gegn Barce-
lona í gær
en stjörnum
prýtt lið
Börsunga
varð að
sætta sig
við tap í
Frakklandi.
AFP