Fréttablaðið - 21.02.2015, Síða 2
21. febrúar 2015 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 2
FRÉTTIR
GLEÐIFRÉTTIN
Mallorca
Vikulegt flug í allt sumar
Verð frá 79.900 kr.*
*Flugsæti til Palma – báðar leiðir.
VITA – Skógarhlíð 12 – Sími 570 4444
DÓMSMÁL Tveir sérfræðingar munu meta hvort
Einar Ingi Marteinsson, best þekktur sem Einar
Boom, hafi orðið fyrir tjóni þegar hann var settur í
gæsluvarðhald árið 2012.
Sérfræðingarnir tveir, geðlæknir og lagaprófess-
or, munu meta hvort og þá hvaða afleiðingar gæslu-
varðhaldið hafði á Einar, en hann sat í gæsluvarð-
haldi í sex mánuði þegar hann var grunaður um að
hafa skipulagt hrottafengna árás um jólin 2011 en
var síðar sýknaður árið 2012 bæði í héraðsdómi og
Hæstarétti.
Einar stefndi íslenska ríkinu til greiðslu rúm-
lega 74 milljóna króna í skaðabætur, en því máli var
vísað frá á þeim grundvelli að engin sönnun lægi
fyrir um tjónið sem Einar telur sig hafa orðið fyrir.
Nú hyggst hann hins vegar sanna tjón sitt með mati
sérfræðinga.
Í stefnunni kom fram að Einari leið verulega illa á
meðan á gæsluvarðhaldi stóð og samkvæmt læknis-
vottorði hrakaði andlegu ástandi hans eftir því sem
leið á gæsluvarðhaldið. Hann varð þunglyndur og
glímir að öllum líkindum við áfallastreituröskun á
háu stigi. - fbj
Einar Ingi Marteinsson telur sig hafa hlotið mikið tjón af gæsluvarðhaldi:
Meta andlegt tjón Einars Boom
Það var heldur betur fjör á Hrafnistu í
Reykjavík á miðvikudag þar sem DAS-
hljómsveitin lék fyrir dansi á öskudags-
balli. Um margra ára hefð er að ræða
og mæta margir íbúar Hrafnistu með
höfuðföt á ballið en færst hefur í vöxt
að starfsfólkið klæði sig í búninga.
DAS-bandið fagnar fimmtán ára starfs-
afmæli í ár en forsprakki þess er Böðvar
Guðmundsson. Hann skipaði bandið
ásamt Kristjáni Þorkelssyni í upphafi þar
sem Böðvar lék á harmónikku og Kristján sló taktinn á trommusett. Síðan
hafa bæst við bandið bæði heimilismenn og gamlir kunningjar Böðvars sem
áður voru í hljómsveitum.
Fjör á öskudagsballi Hilmar J. Malmquist, for-stöðumaður Náttúruminja-
safns, sagði að leigusamn-
ingi þess hefði verið sagt
upp og algjör óvissa væri
um öll húsnæðismál safnsins. Staðan væri
verri en nokkru sinni.
MENNING Íslenskur kvikmyndaiðn-
aður er mjög kynjaskiptur. Konur
starfa helst við búninga og gervi en
karlar starfa sem leikstjórar, hand-
ritshöfundar, kvikmyndatökumenn
og semja tónlist. Á síðasta ári störf-
uðu átta konur við búninga en eng-
inn karl. Þá störfuðu sex konur að
gervi og enginn karl. Sjö karlar
leikstýrðu myndum og engin kona
og þrettán karlar skrifuðu hand-
rit kvikmynda síðasta árs en engin
kona. Þá starfa töluvert fleiri karl-
ar en konur að kvikmyndagerð, 77
prósent voru karlar og 23 prósent
voru konur.
Rannveig Jónsdóttir er sjálfstætt
starfandi kvikmyndagerðar kona
sem hefur starfað við tugi kvik-
mynda, auglýsinga og sjónvarps-
þátta. Rannveig, sem í daglegu tali
er kölluð Gagga, segir misrétti og
kynjaskiptingu í kvikmyndagerð
ekki einskorðast við Ísland. „Iðn-
aðurinn er kynjaskiptur á alheims-
vísu. Konur eru í kvennastörfum
og karlar í karlastörfum og tæki
og tól eru meira metin en farði
og flíkur,“ segir hún en skynjar
breytingar í farvatninu. „Ég tel að
þetta sé hægt og bítandi að breyt-
ast, þær konur sem starfa í þess-
um iðnaði þurfa að standa á sínu,
eins og aðrar konur í atvinnulífinu
almennt.“
Starfsaðstæður í kvikmynda-
gerð eru þó með sérstöku sniði.
Flestir koma að verkefnum sem
verktakar og þurfa því að semja
um kaup og kjör sjálfir. Kannski
virðist konur almennt óframfærn-
ari við að biðja um betri kjör. Þá
tali hún út frá sjálfri sér. „Virkari
þátttaka kvenna sem sinna stjórn-
unarstörfum í kvikmyndum, bæði
listrænum og praktískum, stuðl-
ar að því að fleiri konur vinna við
kvikmyndagerð.“
Í Fréttablaðinu í gær var sagt frá
því að engar konur voru leikstjórar
eða handritshöfundar, kvikmynda-
tökumaður eða höfundur tónlistar
á síðasta ári.
Dögg Mósesdóttir, formaður
WIFT, samtaka kvenna í kvik-
myndum og sjónvarpi, minnir á
að stjórnvöld beri mikla ábyrgð.
„Þetta eru ríkisstyrktar myndir
og það gilda jafnréttislög í land-
inu. Sumir vilja meina að staða
kvenna sé betri en tölurnar gefi
til kynna. Það séu til dæmis fleiri
konur í heimildarmynda- og stutt-
myndagerð. En stærstu peningarn-
ir, mestu völdin, eru í kvikmyndum
í fullri lengd og það er fullkomlega
réttlætanlegt að krefjast þess að
ójöfn staða kynjanna sé leiðrétt.“
kristjanabjörg@frettabladid.is
Mikið misrétti kynja
í kvikmyndagerðinni
Íslenskur kvikmyndaiðnaður er mjög kynjaskiptur. Kvennastörf eru lægra metin
en karlastörf í íslenskri kvikmyndagerð. Gagga Jónsdóttir kvikmyndagerðarkona
segir tækin og tólin meira metin en farða og flíkur í heimi kvikmyndanna.
KJARAMÁL Illugi Gunnarsson,
mennta- og menningarmálaráð-
herra, segir mikla vinnu hafa
verið unna varðandi nýtt vinnu-
mat hjá kennurum. Það yrðu
því vonbrigði ef kennarar sam-
þykktu ekki þann legg kjara-
samninganna sem að þeim snýr.
Komið hefur fram að deilt
er innan kennarastéttarinnar
um vinnumatið. Ef kennarar
fella ákvæðið verða samningar
lausir. „Ég vonast auðvitað til að
þetta verði samþykkt því að ég
held að það verði til mikilla bóta
fyrir skólastarfið,“ segir Illugi.
- kóp
Vonast eftir samþykki:
Segir breytingu
bæta skólastarf
STJÓRNSÝSLA Fangelsismálastofnun er flutt úr Borgartúni 7 í rýmra
húsnæði að Austurströnd 5 þar sem Landlæknir var til ársins 2011.
Sérstök viðtalsherbergi eru á nýja staðnum.
„Í Borgartúni komu skjólstæðingar í misjöfnu ástandi inn á skrif-
stofur starfsfólks og jafnvel undir áhrifum fíkniefna. Það gátu skapast
óþægilegar aðstæður,“ segir Páll.
Hann getur þess að til standi að sameina stofnanir sem eru með
skrifstofur í Borgartúni 7. „Fjármálaráðuneytið kannaði afstöðu okkar
til að flytja og við vildum auðvitað vera liðleg,“ segir fangelsismála-
stjóri. Ríkið gerði árið 2002 óuppsegjanlegan leigusamning við Neshús
ehf. um húsnæðið að Austurströnd, sem er 937 fm, til 25 ára. Mánaðar-
leigan er um 2,3 milljónir króna. - ibs
Rýmra um Fangelsismálastofnun sem er komin á nýjan stað:
Vildu vera liðleg við ráðuneytið
PÁLL WINKEL Fangelsismálastjóri er ánægður með betri aðstöðu á nýjum stað.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
SKAÐABÓTAMÁL Einar Boom sat í sex mánuði í gæsluvarð-
haldi en var sýknaður á báðum dómstigum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
➜ Sigrún Magnúsdóttir um-
hverfisráðherra velti því upp
hvort ekki væri hægt að nota
mildara orðalag við þýðingar
Evróputilskipana. Hún
sagði reglugerðafarg-
anið sem bærist í
gegnum Evrópska
efnahagssvæðið,
EES, lengi hafa
verið eitur í
beinum Fram-
sóknarmanna
og annarra.
Dögg Mósesdóttir, for-
maður Wift, samtaka kvenna
í sjónvarpi og kvikmyndum,
segir ákveðinn valdastrúktúr
í kvikmyndagerð sem flestir
séu blindir á. Engar konur voru leikstjórar
eða handritshöfundar í íslenskri kvik-
myndagerð árið 2014.
Kristján Þór Júlíusson
heilbrigðisráðherra greindi
frá vilja sínum til að selja
ríkiseignir til að greiða fyrir
nýtt þjóðarsjúkrahús. Ríkið
ætti umtalsverðar eignir
sem koma mætti í verð.
Haraldur L. Haraldsson,
bæjarstjóri Hafnarfjarðar,
las upp úr tölvupósti á
bæjarstjórnarfundi þar sem
fram kom að í tvígang hefði
verið reynt að finna út hver rætt hefði
við tiltekinn bæjarstarfsmann úr símkerfi
Hafnarfjarðarbæjar.
FIMM Í FRÉTTUM SAFN Á GÖTUNNI OG MILDARA ORÐALAG
HLUTIRNIR BREYTAST HÆGT Gagga Jónsdóttir kvikmyndagerðarkona tekur undir
að kvikmyndaiðnaður sé kynjaskiptur en segist merkja breytingar.
GRIKKLAND Fjármálaráðherr-
ar evruríkjanna nítján reyndu
á neyðarfundi að finna lausn á
skuldastöðu Grikklands eftir að
ný ríkisstjórn landsins hafn-
aði skilmálum lánasamninga
við Evrópska seðlabankann og
Alþjóðagjaldeyrissjóðinn.
Grikkir vildu sex mánaða
framlengingu á afborgunum lána
á gjalddaga næstu mánaðamót
en fengu fjögurra mánaða frest.
„Við erum ekki einu sinni að fara
fram á að þau mæti okkur á miðri
leið heldur aðeins hluta leiðarinn-
ar,“ sagði Yanis Varoufakis, fjár-
málaráðherra Grikklands. - kbg
Samkomulag við Grikki:
Fengu frest í
fjóra mánuði
Leikstjórar 7 karlar 0 konur
Handritshöfundar 13 karlar 0 konur
Kvikmyndataka 8 karlar 0 konur
Klipping 5 karlar 2 konur
Tónlist 7 karlar 0 konur
Hljóðhönnun 10 karlar 0 konur
Leikmynd 7 karlar 2 konur
Búningar 0 karlar 8 konur
Gervi 0 karlar 6 konur
Brellur 4 karlar 0 konur
ÖLL LISTRÆN STÖRF UTAN LEIKS
2
0
-0
2
-2
0
1
5
2
1
:4
6
F
B
1
2
0
s
_
P
1
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
1
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
3
E
0
-9
D
5
0
1
3
E
0
-9
C
1
4
1
3
E
0
-9
A
D
8
1
3
E
0
-9
9
9
C
2
8
0
X
4
0
0
1
B
F
B
1
2
0
s
C
M
Y
K