Fréttablaðið - 21.02.2015, Qupperneq 16
21. febrúar 2015 LAUGARDAGURSKOÐUN
ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI: Sævar Freyr
Þráinsson ÚTGEFANDI OG AÐALRITSTJÓRI: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRI:
Sigurjón M. Egilsson sme@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á
höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið
áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871
S
jávarútvegsráðherra hefur gefist upp. Hann mun ekki
freista þess að gera breytingar á lögum um stjórn fiskveiða.
Sjálfstæðisflokkurinn leggst gegn breytingum á gildandi
lögum, og hefur betur. Þar með hefur flokkurinn náð fram
vilja sínum og hagsmunum. Þar á bæ þykir betra að hafa
núverandi lög óbreytt en með boðuðum breytingum ráðherrans.
Sigurður Ingi Jóhannsson hefur
sem sagt verið borinn ofurliði af
samherjum sínum í ríkisstjórn.
Ráðherrann vann samkvæmt
stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar-
innar, en þar segir meðal annars:
„Áfram verður unnið með tillögu
sáttanefndar sem starfaði á liðnu
kjörtímabili um að samningsbund-
in réttindi um nýtingu aflaheimilda taki við af varanlegri úthlutun.“
Nú er ljóst að hér endar málið. Engar breytingar verða gerðar á
lögum um stjórn fiskveiða, allavega ekki í næstu framtíð. Fyrsta
grein í gildandi lögum er ótvíræð: „Nytjastofnar á Íslandsmiðum eru
sameign íslensku þjóðarinnar.“ Og: „Úthlutun veiðiheimilda sam-
kvæmt lögum þessum myndar ekki eignarrétt eða óafturkallanlegt
forræði einstakra aðila yfir veiðiheimildum.“
Vilji var til á meðal þingmanna, og sennilega þá líka ráðherra,
Sjálfstæðisflokksins að kvótinn, það er veiðirétturinn, verði eign
útgerðarinnar, kvótahafanna. Í hinu andvana frumvarpi ráðherrans
var gert ráð fyrir að ekki færi á milli mála að aflaheimildirnar yrðu
áfram eign þjóðarinnar. Vegna ágreinings milli stjórnarflokkanna
verður ekkert af breytingum á lögunum, ekki nú frekar en áður.
Þótt lögin um stjórn fiskveiða verði óbreytt í næstu framtíð er víst
að ágreiningurinn hverfur ekki. Fram undan eru átök um breytingar
á veiðigjöldum. Svo kann að vera að ríkisstjórnarflokkarnir nái
saman um breytt veiðigjöld. Það mun samt ekki duga. Stjórnarand-
staðan mun búa sig undir harða varnarbaráttu. Fátt, jafnvel ekkert,
veldur eins miklum deilum meðal þjóðarinnar og afgjald útgerðar-
innar fyrir að fá að nýta sameiginlega auðlind okkar.
Afdrif frumvarps Sigurðar Inga Jóhannsson sjávarútvegs-
ráðherra er skýrasta dæmið um ágreining innan ríkisstjórnarinnar.
Einstaka stjórnarsinnar hafa á síðustu dögum reynt af veikum mætti
að gera lítið úr ágreiningnum. Sigurður Ingi á hrós skilið fyrir að
hafa sagt hlutina eins og þeir eru.
Hér er tekist á um hugsjónir og mikla hagsmuni. Til þessa hefur
Sjálfstæðisflokkurinn náð sínu fram á kostnað Framsóknarflokks-
ins. Víst er að það eykur ekki kæti Framsóknar en þrátt fyrir að
framsóknarmenn fari með sjávarútvegsráðuneytið þurftu þeir að
lúta í gras í málinu. Eflaust er það sárt. Hverjar afleiðingarnar verða
fyrir stjórnarsamstarfið er of snemmt að segja til um. Það skýrist.
Ríkisstjórninni veitir trúlega ekki af að berja í brestina eigi henni
að takast að koma í gegn nokkrum veigamiklum málum á þeim um
þrjátíu fundardögum sem eftir eru af þinghaldinu nú á vorþinginu.
Þar má nefna breytingar á veiðigjöldum, tillöguna um að draga
aðildarumsóknina að Evrópusambandinu til baka, breytingar á
rammanum, að ná fram náttúrupassa auk annarra stórra mála. Víst
er að eitthvað mun undan láta.
Ríkisstjórnin á á hættu að verða undir í komandi baráttu.Að ná
ekki fram sumum af sínum helstu málum og það þrátt fyrir að ríkis-
stjórnin hafi drjúgan meirihluta á Alþingi.
FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is AÐSTOÐARFRÉTTASTJÓRI: Andri Ólafsson andri@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Erla Björg Gunnarsdóttir erla@frettabladid.is MENNING: Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is
VÍSIR: Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚTLITSHÖNNUN: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is
SPOTTIÐ
MÍN SKOÐUN: JÓN GNARR
Sigurjón Magnús
Egilsson
sme@frettabladid.is
Viðbrögðin við síðustu grein minni, Guð er ekki til, hafa verið gríðarlega mikil. Fjöldi fólks hefur
tjáð sig á samfélagsmiðlum og
víðar. Margir prestar hafa stigið
fram og skrifað svargreinar bæði
á visir.is og á tru.is. Mér finnst ég
knúinn til að koma með andsvar,
leiðrétta rangfærslur og misskiln-
ing og útskýra afstöðu mína betur.
Ég hef verið gagnrýndur fyrir
að alhæfa. Samt alhæfi ég ekki
mikið í greininni. Flest sem ég
segi byggi ég á persónulegri skoð-
un, reynslu og
upplifun og tek
það skýrt fram.
Ég segi aldrei
að trú stríði
gegn heilbrigðri
skynsemi held-
ur skynsemi
minni. Þar er
stór munur á.
Ég meira að segja takmarka það við
trúna á persónulegan guð. Ég segi
ekki að trú og vísindi séu andstæð-
ur heldur að þau séu það oft. Kemur
það á óvart? Ég get nefnt þróunar-
kenningu Darwins og umræður um
loftslagsmál af mannavöldum eða
stofnfrumurannsóknir og svona
mætti lengi telja. Margir telja að
taugarannsóknir verði sú grein vís-
inda sem muni verða í hvað mestri
andstöðu við ríkjandi trúarbrögð
í heiminum á næstu árum því þar
stíga vísindamenn inn á einkalóð
trúarbragða og heimspeki; manns-
andann sjálfan. Það er alveg rétt
hjá mér að vísindin hafi velt trúar-
brögðunum af þeim stalli sem þau
sátu eitt sinn á. Þau eru ekki lengur
það ægivald sem þau voru.
Guð ©
Varðandi mannréttindi held ég varla að ég þurfi að tíunda allt það óréttlæti og
mannréttindabrot sem framin eru
í heiminum í nafni trúarbragða.
Reglulega fara fram mótmæla-
göngur í Frakklandi og víðar til
að mótmæla samkynhneigðum.
Þar eru áhrif trúar og kennisetn-
inga mjög áberandi. Þeir sem sjá
það ekki vilja einfaldlega ekki sjá
það. Staða kvenna er annað dæmi.
Mér og mörgum öðrum finnst
trúar brögðin gjarnan gera lítið úr
konum og setja þær skör lægra en
karlmenn. Þetta staðfestist hræði-
lega með afstöðunni til fóstureyð-
inga. Þar víkja sjálfsögð réttindi
kvenna til að ráða yfir sínum lík-
ama gjarnan fyrir trúarkredd-
um. Árið 2012 lést Savita Halapp-
anavar á spítala á Írlandi vegna
fóstur missis. Læknar hefðu líklega
getað bjargað lífi hennar en gátu
ekki samkvæmt lögum sem banna
fóstur eyðingar.
Að halda því fram að mannrétt-
indi séu í fullkominni harmóníu við
hinn svokallaða kærleiksríka guð
reynist því ekki standast skoðun.
Alhæfingar presta um annað reyn-
ast innantómar þversagnir. Séra
Sigurður Árni Þórðarson, sóknar-
prestur í Hallgrímskirkju, segir
til dæmis í svargrein sinni Guð og
Jón Gnarr 17. febrúar að „Afstaða
til samkynhneigðra sé t.d. oft-
ast fremur menningarmál en mál
trúar“. Ég er ekki sammála því.
Auk þess er það afstaða þjóðkirkj-
unnar að „Hin evangelíska lúterska
þjóðkirkja er samofin menningu og
sögu íslensku þjóðarinnar sem og
annarra norrænna þjóða“. Og er
það ekki þannig úti um allan heim?
Hommar og konur verða aldrei páfar
Margir þeirra sem tjá sig segja að þeim finnist ég ekki hafa rétt á að tjá mig
á þennan hátt, ég hafi hvorki mennt-
un né vit til að ræða um þessi mál,
„hvorki siðferðilegan né vitsmuna-
legan rétt“, eins og séra Sigurður
Árni segir í grein sinni. Bæði hann,
séra Bjarni Karlsson og fleiri virðast
líka þeirrar skoðunar að ekki megi
gera grín að trú fólks. Það þykir mér
hættulegt viðhorf. Erum við örugg-
lega ekki að grínast með það? Flestir
gera alvarlega athugasemd við að ég
skuli alhæfa að guð sé ekki til. Samt
alhæfa þeir sjálfir hið gagnstæða
á hverjum degi og hafa gert lengi.
Guð er ekki bara til, hann er kær-
leikur og hann er svona og hinsegin.
Hvað er það sem gefur þeim rétt til
þess en meinar mér þess sama? Ég
get ekki fallist á það. Ég get heldur
ekki fallist á þá niðurstöðu margra
að þótt ég hafi ekki fundið guð þá
hafi guð fundið mig. Séra Sigurvin
Jónsson, prestur í Neskirkju, gerði
grein mína að umtalsefni í prédikun
sinni 15. febrúar og sagði meðal ann-
ars: „Hugmyndin um persónulegan
Guð er ekki fjarlæg og óskynsamleg,
heldur aðgengileg öllum sem eru fús
að leita hans í bæn.“
Þarna er verið að snúa út úr og
svara alhæfingu með annarri alhæf-
ingu. Það er líka verið að hæðast að
minni sögu og gera lítið úr minni
lífsskoðun. Það skipti engu máli hvað
mér finnst því guði finnst annað og
eina ástæðan fyrir að ég hafi ekki
fundið hann sé að ég sé rati og hafi
ekki leitað nógu vel.
Ég vil minna trúmenn á að trú-
leysi er lögvarin lífsskoðun á Íslandi.
Ég er meðlimur í Siðmennt, félagi
siðrænna húmanista. Ég er stolt-
ur húmanisti. Ég hef nákvæmlega
sama rétt og hver annar til að tjá
mig um lífsskoðanir mínar og tjá
mig á hvern þann hátt sem mér sýn-
ist. Ólíkt mörgum öðrum er ég svo
heppinn að vera borgari í lýðræðis-
samfélagi sem virðir tjáningar-
frelsið. Guð er ekki einkamál presta.
Þeir eru engir rétthafar að guðshug-
takinu. Prestar hafa atvinnuöryggi
sitt og lífsafkomu af því að tala um
og boða trú. Þeir nýta þann rétt eins
og þeim þykir þurfa. Ég þekki þessa
presta alla og að góðu einu og bið þá,
og aðra trúaða, um að virða minn
rétt, eins og þeir virða önnur trúar-
brögð. Ég hef atvinnu og lífsafkomu
af gríni. Ég geri grín að því sem mér
þykir þurfa að gera grín að, á þann
hátt sem ég vil og þegar ég vil.
Ég er Charlie!
Grín er dauðans alvara
Komdu í yoga
Lækkar blóðþrýstinginn
Betri svefn
Áhersla á mjóbak og axlir
Rétt öndun góð slökun
Kennt í Sjúkraþjálfaranum í Hafnarfirði - Sími: 691 0381 - Kristín Björg
Hjónaafsláttur
Yoga l /stólar
• Ertu með vefjagigt
• Ertu Í yfirþyngd
• Ertu að ná þér
eftir veikindi
• Ertu komin á efri árin
Yoga ll
• Aukinn liðleiki
• Aukinn kraftur
• Aukinn styrkur
• Aukið jafnvægi
Yoga lll
Ertu að æfa en vilt ná
lengra með krefjandi
yogaæfingum
Mikill skoðanamunur innan ríkisstjórnarinnar:
Ráðherra varð
heimaskítsmát
2
0
-0
2
-2
0
1
5
2
1
:4
6
F
B
1
2
0
s
_
P
1
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
1
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
0
1
K
_
N
Ý.
p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
3
E
0
-9
8
6
0
1
3
E
0
-9
7
2
4
1
3
E
0
-9
5
E
8
1
3
E
0
-9
4
A
C
2
8
0
X
4
0
0
1
A
F
B
1
2
0
s
C
M
Y
K