Fréttablaðið - 21.02.2015, Page 46

Fréttablaðið - 21.02.2015, Page 46
KYNNING − AUGLÝSINGHúðflúr LAUGARDAGUR 21. FEBRÚAR 20152 Ólafía Kristjánsdóttir er húðf lúrari á Reykjavík Ink. Hún er sjálf með mörg húðflúr, öll í black and grey-stíl. „Mér finnst lituð flúr mjög falleg en fannst passa best við mig að hafa allt black and grey.“ Hún segist stundum fá skrítn- ar hugmyndir inn á borð til sín en þar stendur upp úr húðflúr af tveimur pylsum með remúl- aði. „Sama hver hugmyndin er þá reyni ég alltaf að útfæra flúr- ið á flottan og faglegan hátt. Ferl- ið í því að fá sér tattú er þannig að fólk kemur og við ræðum saman og þróum hugmyndina. Ég teikna svo flúrið upp eftir ósk viðkom- andi, síðan er búinn til stensill sem er límdur á og þá er byrjað að flúra. Tíminn sem það tekur fer eftir stærð húðflúrsins og hversu mikil smáatriði eru. Minnstu flúr- in geta tekið um það bil fimmtán mínútur en sumir eru í stólnum alveg í sex til átta tíma. Verkin eru stundum það stór að það er betra að skipta þeim niður og fólk kemur í nokkur skipti.“ Ólafía segist ekki eiga í nein- um erfiðleikum með að f lúra í svo langan tíma í einu. „Þetta er svo skemmtilegt að ég gleymi mér alveg og hugsa ekki um neitt annað. Maður verður bara að passa að taka sér pásur til að næra sig,“ segir hún og hlær. Nýtur þess að vera í vinnunni Húðflúraranum Ólafíu Kristjánsdóttur finnst svo gaman að flúra að hún gleymir sér stundum við verkið. Hún sérhæfir sig í svokölluðum black and grey realistic-húðflúrum. Ólafía er sjálf með mörg húðflúr. Ólafía Kristjánsdóttir er húðflúrari á Reykjavík Ink. Henni finnst svo skemmtilegt að flúra að hún gleymir sér við verkið. MYNDIR/VILHELM Á Reykjavík Ink vinna marg-ir húðflúrarar sem sérhæfa sig í alls kyns stílum. „Við hér á Reykjavík Ink gerum allar gerðir af húðflúri, „walk in’s“, lítil, stór og lögum húðflúr sem aðrir treysta sér ekki í, en mest erum við í sérhönnuðum flúrum. Fólk kemur hingað inn með alls kyns hugmyndir og svo er unnið út frá þeim. Viðkomandi fær tíma og spjall með húðflúrara sem teikn- ar að ósk viðskiptavinarins og úr því verður fallegt húðflúr,“ segir Linda Mjöll Þorsteinsdóttir, annar eigenda Reykjavík Ink, en hún og eiginmaður hennar, Össur Haf- þórsson, eiga stofuna. Linda Mjöll segir þau á Reykja- vík Ink gera mikið af svokölluð- um cover-up-húðflúrum en þá eru gömul flúr löguð eða annað flúr sett yfir. „Við erum þekkt fyrir að laga ýmislegt sem aðrir treysta sér ekki til að gera. Fólk þarf virkilega að vanda valið þegar það velur sér húðflúr þar sem þetta er varan- legt.“ Á Reykjavík Ink koma erlend- ir gesta húðf lúrarar í hverjum mánuði. Þeir koma með nýjustu strauma og stefnur, reka sjálf- ir stofur í sínum heimalöndum og vita hvað þeir eru að gera, að sögn Lindu Mjallar. „Við leggjum upp úr því hér að vera ekki með langa biðlista og reynum að hafa ekki meira en viku bið í flúr. Hér er opið frá tólf til tíu alla daga nema á sunnudögum. Að sögn Lindu Mjallar er húð- flúrmenning á Íslandi, líkt og ann- ars staðar, orðin miklu almenn- ari en áður var. „Það eru allir með húðflúr, að minnsta kosti mjög margir. Alls konar fólk í öllum stöðum og stéttum kemur hingað til að fá sér flúr. Þetta er alls ekki Fallegt tattú er eins og skartgripur Á Reykjavík Ink vinna margir húðflúrarar sem sérhæfa sig í alls kyns stílum en mest eru þeir þó í því að gera sérhönnuð húðflúr. Á stofuna koma erlendir gestahúðflúrarar í hverjum mánuði með nýjustu strauma og stefnur. Margir karlmenn fá sér svokallaða sleeve eða ermi. Linda Mjöll segir konur vera orðnar óhræddari við að fá sér stór tattú. Fallegt tattú og mikið um smáatriði. Black and grey-myndir eru vinsælar. Linda Mjöll og Össur Hafþórsson, eiginmaður hennar, eiga Reykjavik Ink. MYNDIR/VILHELM Húðflúrin sem Ólafía gerir eru listaverk. bundið við einhverja ákveðna hópa eins og raunin var kannski áður. Ég hef mjög gaman af því hve margar konur eru orðnar óhrædd- ar við að fá sér stærri og meira áberandi húðflúr. Að mínu mati er fallegt tattú eins og fallegur skart- gripur. Maðurinn minn segir að það sé orðið staðalbúnaður að vera með eitt slíkt, “ segir hún og brosir. Það er oft sagt að þeir sem fái sér eitt húðflúr fái sér annað áður en langt um líður. Linda Mjöll sam- sinnir þessu og segir að f lest- ir sem komi til þeirra komi aftur. Hún segir ákveðna staði á lík- amanum vera vinsælli en aðra. „Konur fá sér oft „half a sleeve“, tattú undir brjóstin, á síðuna, á öxlina eða fallegt stykki á lærið. Karlmenn fá sér svokallaða sleeve eða ermi, bakstykki, fá húðflúr á kálfann eða á bringuna.“ Aðspurð segir hún alla stíla vera í gangi en vissulega séu tísku- bylgjur í þessu eins og öðru. „Trib- al-tattúin eru sem betur fer dottin úr tísku. Einhverjir bera þau alveg en við erum mikið í því að breyta þeim fyrir fólk í dag. Það er alveg hægt að breyta húðflúrum og fólk þarf því ekki að skammast sín fyrir þau eftir tuttugu ár.“ 2 0 -0 2 -2 0 1 5 2 1 :4 6 F B 1 2 0 s _ P 0 8 6 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 7 5 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 3 E 0 -F B 2 0 1 3 E 0 -F 9 E 4 1 3 E 0 -F 8 A 8 1 3 E 0 -F 7 6 C 2 8 0 X 4 0 0 3 A F B 1 2 0 s C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.