Fréttablaðið - 21.02.2015, Qupperneq 75
KYNNING − AUGLÝSING Húðflúr21. FEBRÚAR 2015 LAUGARDAGUR 3
Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000 Umsjónarmaður auglýsinga: Gunn-
hildur Geira, geira@365.is, s. 512 5036 Ábyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson.
Þetta verður glæsileg hátíð og öllu tjaldað til í tilefni tíu ára afmælisins. Gamla bíó var
nýlega endurnýjað og er orðið eitt
glæsilegasta hús borgarinnar,“ segir
Össur Hafþórsson, annar eigenda
Reykjavík Ink og skipuleggjandi ráð-
stefnunnar.
Á ráðstefnunni verða um 25 lista-
menn sem koma víðsvegar að úr
heiminum til landsins og taka þátt
í hátíðinni að þessu sinni. „Hing-
að koma þekktir húðflúrarar eins og
Bill Loika frá Hollandi og Jason June
frá New York, Scott Ellis frá Texas og
Holly Ellis frá San Francisco. Hátíðin
er orðin að árlegum menningarvið-
burði í miðborg Reykjavíkur. Gamla
bíó verður eins og ein risastór tatt-
ústofa þessa helgi. Á svæðinu verð-
ur blaðamaður frá einu þekktasta
tattútímariti sem gefið er út um allan
heim, einnig mætir plötusnúður á
svæðið og þeytir skífum fyrir gesti
og gangandi á meðan ráðstefnan er,“
segir Össur.
Hann bætir því við að frítt sé inn
á ráðstefnuna fyrir börn, tólf ára og
yngri. „Það er um að gera að venja
þau snemma við,“ segir hann léttur
í bragði.
Gamla bíó breytist í tattústofu
The Icelandic Tattoo Convention verður haldin í tíunda skiptið dagana fimmta til sjöunda júní næstkomandi og verður hátíðin að
þessu sinni í Gamla bíói við Ingólfsstræti. Þar verða um 25 listamenn frá öllum heimshornum.
Húðflúrarar á Reykjavik Ink sérhæfa sig
í „cover-ups“ en þá eru eldri húðflúr löguð.
„Alls konar fólk í öllum stöðum og stéttum kemur hingað til að fá sér flúr. Þetta er alls ekki
bundið við einhverja ákveðna hópa eins og raunin var kannski áður,“ segir Linda Mjöll.
Húðflúrmenning á Íslandi, líkt og annars
staðar, er orðin miklu almennari en áður
var, að sögn Lindu.
Össur Hafþórsson hefur veg og vanda af skipulagninu The Icelandic Tattoo Convention.
MYNDIR/VILHELM
Hingað koma
þekktir
húðflúrarar eins og Bill
Loika frá Hollandi og Jason
June frá New York, Scott
Ellis frá Texas og Holly
Ellis frá San Francisco.
ICELANDIC TATTOO
CONVENTION
The one and only 10th ANNUAL
5-7 JUNE 2015 LOCATION GAMLA Bio
ARTIST FROM AROUND THE WORLD
more info Facebook.com/reykjavikink
2
0
-0
2
-2
0
1
5
2
1
:4
6
F
B
1
2
0
s
_
P
0
8
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
7
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
3
E
0
-F
B
2
0
1
3
E
0
-F
9
E
4
1
3
E
0
-F
8
A
8
1
3
E
0
-F
7
6
C
2
8
0
X
4
0
0
3
A
F
B
1
2
0
s
C
M
Y
K