Fréttablaðið - 21.02.2015, Page 118

Fréttablaðið - 21.02.2015, Page 118
21. febrúar 2015 LAUGARDAGUR| LÍFIÐ | 74 „Maðurinn minn er alsæll með þetta. Ég borða fyrir tvo og hann drekkur fyrir tvo.“ KEIRA KNIGHTLEY UM ÞAÐ HVAÐ EIGINMANNI HENNAR FINNST UM MEÐGÖNGUNA Í SPJALLÞÆTTI ELLEN DEGENERES. Á yfirlitssýningu Bjarkar Guð- mundsdóttur á Museum of Mod- ern Arts, eða MoMA-safninu í New York, verður meðal annars að finna búning sem Gjörninga- klúbburinn gerði fyrir plötuna hennar Volta. „Við gerðum þenn- an búning fyrir hana árið 2007 en hún er í honum inni í umslaginu á Volta,“ segir Jóní Jónsdóttir, ein af myndlistarkonunum í Gjörn- ingaklúbbnum, en með henni eru þær Eirún Sigurðardóttir og Sig- rún Hrólfsdóttir myndlistarkonur. Mikil vinna fór í að gera bún- inginn fyrir Björk. „Það tók okkur þrjár nokkra mánuði að gera hann, en þetta er stór og þungur heklað- ur keipur. Búningurinn var aðal- lega gerður fyrir plötuumslagið, en hún notaði hann nokkrum sinn- um í upphafi tónleika á Volta-tón- leikaferðalaginu og fór svo fljótt úr honum því hann er mjög þung- ur og heitur,“ segir Jóní. Innblásturinn segir hún hafa komið frá plötunni sjálfri. „Volta er mjög rytmísk og takturinn er oft þungur. Þessi þungi og massi skilar sér í búningnum, sem er meðal annars innblásinn af Afr- íku og mjög litríkur,“ segir hún. Samstarfið milli þeirra og Bjarkar kom til eftir að Björk sá sýninguna „Cardiac Circus“ sem þær gerðu 2004 í gallerí i8. „Þar var meðal annars verk sem samanstóð af heklaðri grímu, nælonsokkabuxna- brjósti og hekluðum stígvélum, sem var eins og fuglshamur fyrir manneskju,“ segir Jóní. Búningurinn fyrir Volta var mikil samvinna. „Björk kom með sínar hugmyndir og athugasemdir út frá tilfinningu plötunnar, hún vissi alveg hvað hún vildi, við tókum það svo áfram og unnum út frá okkar hugmyndum og verk- fræði. Það var alveg ótrúlega gaman og mikill heiður að vinna með henni,“ segir Jóní. Fyrir MoMA-sýninguna hefur Gjörningaklúbburinn unnið ný verk sem meðal annars tengjast Volta-búningnum og Volta-tón- leikaferðinni. Þau verk eru gerð eingöngu fyrir MoMA og Bjarkar- sýninguna. „MoMA keypti þessi verk sem er frábært og skemmti- legt fyrir okkur. Vonandi leið- ir þetta allt eitthvað meira og skemmtilegt af sér,“ segir Jóní. adda@frettabladid.is Búningar Bjarkar sýndir á MoMA Búningur sem Gjörningaklúbburinn hannaði og heklaði fyrir Björk Guðmunds- dóttur fyrir plötuna Volta verður til sýnis á MoMA-safninu í New York. BÚNINGURINN Björk Guðmundsdóttir í búningnum, en myndin var á plötuumslagi Volta. MYND/ INEZ VAN LAMSWEERDE OG VINOODH MATADIN. Þann 8. mars opnar yfirlitssýning Bjarkar Guðmundsdóttur á MoMA- safninu í New York. Sýningin spannar tuttugu ára feril Bjarkar og á henni verða allar plöturnar hennar átta ásamt myndum og myndböndum sem hún hefur gert. ➜ Á fyrstu hæðinni verða til sýnis hljóðfærin sem notuð voru á Biophilia- plötunni. ➜ Á annarri hæðinni verða tvö rými. Í öðru þeirra verður nýtt mynd- bandsverk sýnt við lagið Black Lake af nýju plötunni hennar, Vulnicura. Í hinu verða öll tónlistarmyndbönd Bjarkar sýnd. ➜ Á þriðju hæðinni verða lagatextar Bjarkar og ljóð. Þar verður einnig hægt að hlusta á allar plöturnar hennar. ➜ Búningar og kjólar Bjarkar verða einnig til sýnis á þriðju hæð, meðal annars vélmennabúningurinn sem Chris Cunningham hannaði fyrir „All Is Full of Love“, svanakjóllinn frægi frá Óskarnum 2001 og svo auðvitað búningurinn sem Gjörningaklúbburinn hannaði og gerði fyrir Björk. Um yfirlitssýningu Bjarkar á MoMA Búningurinn var aðallega gerður fyrir plötuumslagið, en hún notaði hann nokkrum sinnum í upphafi tón- leikanna og fór svo úr honum því hann er mjög þungur og heitur. GEFUR ÚT SKÁLDSÖGU Blaðamaðurinn Valur Grettisson hefur skrifað undir út- gáfusamning hjá Bjarti forlagi. Hans fyrsta skáldsaga mun koma út í vor. „Þetta eru nú aldeilis athyglis verð tímamót. Bjartur gefur mína fyrstu skáldsögu út í vor. Ég dálítið stoltur og rosalega spenntur. Eða öfugt,“ sagði Valur á Facebook- síðu sinni. - asi FENGU STYRK FRÁ KVIKMYNDASJÓÐ Þeir félagarnir Bergur Ebbi Bene- diktsson og Halldór Halldórsson, betur þekktur sem Dóri DNA, fengu í gær seinni handritsstyrk frá Kvikmyndasjóði Íslands til að klára handrit að íslensku jólamyndinni Þú komst með jólin til mín. „Við erum mjög spenntir fyrir þessu. Handritið er komið vel á veg og nú ættum við að geta klárað það,“ segir Bergur Ebbi, en myndin á að fanga hinn sanna íslenska jólaanda. - asi SJEIKINN EYÐILAGÐI LAKKIÐ Marta María Jónasdóttir á Smartlandi er áhugakona um bíla og líkams- rækt. Hún blandaði sér í umræðu um fæðubótarefni sem verið hefur síðan Kastljós fjallaði um innihald þeirra. „Vegna umræðunnar um fæðubótar- efni langar mig að deila því með ykkur að fyrir nokkrum árum missti ég próteinsjeik yfir bílinn minn með þeim afleiðingum að lakkið eyðilagðist. Síðan þá hef ég látið allt duft eiga sig og get staðfest að það hefur ekki með nokkru móti komið niður á líkamlegum styrk.“ - kbg 2 0 -0 2 -2 0 1 5 2 1 :4 6 F B 1 2 0 s _ P 1 1 8 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 1 0 7 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 3 E 0 -A C 2 0 1 3 E 0 -A A E 4 1 3 E 0 -A 9 A 8 1 3 E 0 -A 8 6 C 2 8 0 X 4 0 0 3 A F B 1 2 0 s C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.