Skessuhorn - 27.11.2013, Page 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 26. NÓVEMBER 2013
Skopmyndaskreytt úrval vísnaþátta úr Skessuhorni
252 síður – 1.760 tækifæris- og lausavísur - 128 skopteikningar
Höfundar: Dagbjartur Dagbjartsson og Bjarni Þór Bjarnason
Bráðsmellin bók sem passar ótrúlega vel í jólapappír!
STOLIN KRÆKIBER
Fæst í betri bókaverslunum og auk þess í nokkrum
stórmörkuðum í desember.
Einnig er hægt að panta bókina í síma 433 5500, á vef Skessuhorns eða á
netfangið: tinna@skessuhorn.is og fá hana senda heim að kostnaðarlausu.
Liðin vika var viðburðarík á síld-
veiðunum við norðanvert Snæfells-
nes. Miðvikudaginn 20. nóvem-
ber dró skyndilega til tíðinda þegar
síldveiðiskipin komust í mokveiði á
stórri og fallegri síld inni á Grund-
arfirði. Eftir langa aflatregðu birt-
ist síldin í firðinum og menn áttu
auðvelt með að fylla skipin á nokkr-
um klukkustundum. Smábátar nir
veiddu einnig vel. Síld var út um
allan fjörð og háhyrningar mættu
strax til veislunnar. Tveimur dög-
um síðar barst svo fréttin sem allir
höfðu beðið með ugg. Um hádegis-
bil á föstudag var ljóst að hrygning-
arstofn íslensku sumargotssíldar-
innar væri byrjaður að synda und-
ir brúna yfir Kolgrafafjörð og þar
með inn í þá dauðagildru sem olli
því að tugþúsundir tonna af síld
drápust þar úr súrefnisskorti á síð-
asta vetri.
Miklar lóðningar og
grænt ljós á veiðar
,,Við erum bara með dýptarmæli
en þarna voru massalóðningar. Við
sigldum undir brúna um tvöleit-
ið í dag á útfallinu. Þarna eru meiri
lóðningar en rétt utan við brúna.
Við tókum einn hring þarna inni og
sáum að þetta voru upp í 15 faðma
(27 metra) þykkar breiður. Þetta var
alveg hellingur,“ segir Arnar Krist-
insson á Kidda RE við blaðamann
Skessuhorns á föstudag. Arnar seg-
ir að tiltölulega lítið væri utan við
brúna þar sem báturinn var á lag-
netaveiðum. Engin merki sáust um
dauða síld í firðinum.
Sama dag heimilaði Sigurður
Ingi Jóhannsson sjávarútvegsherra
síldveiðar án fyrirfram fenginna
leyfa, innan brúar í Kolgrafafirði
á Snæfellsnesi til og með þriðju-
dagsins 26. nóvember 2013. Það
voru fjórir dagar. Samkvæmt henni
skyldi heimilt að veiða allt að 1.300
tonn fyrir innan brú. Í reglugerð
sem fylgdi voru síðan viðbótar-
ákvæði við gildandi reglugerð sem
heimila smábátum að veiða 700
tonn af síld í Breiðafirði án skilyrða
hvar þau eru veidd. Eigendum smá-
bátanna var eftir sem áður gert að
greiða 13 kr. gjald til ríkissjóðs fyr-
ir hvert kíló sem þeir veiða af síld-
inni. Með þessari aðgerð vonast
ráðherrann til að veiðar geti hvoru
tveggja bjargað verðmætum og haft
mögulegan fælingarmátt þannig að
síldin gangi fyrr aftur út úr firðin-
um en ella. Ráðuneyti sjávarútvegs-
mála hefur sömuleiðis tilkynnt að
Hafrannsóknarstofnun muni í þess-
ari viku hefja tilraunir með að fæla
síldina burt með sérstökum útbún-
aði sem gefur frá sér háhyrninga-
hljóð. Menn þykjast vita að síldin
forðist slík hljóð undir venjulegum
kringumstæðum.
„Fullur fjörður af síld“
Um helgina var talið að mjög mikið
af síld væri komin inn á Kolgrafa-
fjörð. Tugur smábáta voru þegar
byrjaðir veiðar þar og sjómenn lýstu
því svo að „fjörðurinn væri fullur af
síld.“ Bæjarstjórnir Grundarfjarð-
ar og Stykkishólms funduðu með
hagsmunaaðilum á laugardag til að
ræða ástandið þar sem margir hafa
þungar áhyggjur af því að síldar-
dauði síðasta vetrar endurtaki sig.
Á laugardag voru einnig uppi
bollaleggingar hvort og þá hvern-
ig væri hægt að gera síldartrillun-
um kleift að landa afla innan við
brú í Kolgrafafirði svo þær þyrftu
ekki að sigla ótt og títt undir brúna.
„Það fylgir því hætta að sigla þarna
undir. Þarna eru mikil straumköst
og lítið má út af bera. Þar fyrir utan
verða menn að sæta sjávarföllum og
það setur mönnum auðvitað miklar
skorður við veiðarnar. Annars segja
sjómennirnir á trillunum að þeir
sjái mikið af síld á fiskleitartækj-
unum. Veiðin innan brúar dapr-
aðist þó nokkuð eftir hádegi í dag.
Aðeins eitt skip fékk afla utan við
brúna. Það var Vilhelm Þorsteins-
son EA sem náði um 800 tonna
kasti. Það virðist því ekki mikið af
síld þar úti nema hún sé þá ann-
ars uppi í harða landi. Þetta er óút-
reiknanlegur fiskur, síldin,“ sagði
Hafsteinn Garðarsson hafnarstjóri
í Grundarfirði í samtali við Skessu-
horn síðdegis á laugardag.
mþh
Mikil óvissa og uggur í Kolgrafafirði
Vísindamenn voru mættir með tæki og tól á laugardag til að mæla súrefnisstigið í Kolgrafafirði. Á meðan stunduðu trillurnar
lagnetaveiðar innan brúar á meðan stóru skipin lónuðu eftir afla fyrir utan. Ljósm. tfk
Þessi mynd var fyrsta sönnun þess að
síldin er gengin inn í Kolgrafafjörð.
Hún var tekin um hádegisbil á
föstudag um borð í bátnum Kidda
RE 89 sem var staddur innan við
brúna yfir fjörðinn. Myndin er af skjá
dýptarmælis og sýnir lóðningar af
síld. Rauði liturinn á skjánum er síldin.
Þétt síldarmergð var þá komin inn á
fjörðinn. Þykkt torfunnar nær frá um
sjö til tíu föðmum undir yfirborði niður
á um 25 faðma.
Það var Arnar Kristinsson á síldartrillunni Kidda RE 89 sem fyrstur uppgötvaði á föstudag að Breiðafjarðarsíldin væri nú á
þessu síðhausti byrjuð að ganga inn í þá dauðagildru sem Kolgrafafjörður sýndi sig vera í fyrravetur. Ljósm. tfk