Skessuhorn - 27.11.2013, Page 26
26 ÞRIÐJUDAGUR 26. NÓVEMBER 2013
Þrátt fyrir að hafa lokið BA námi
í sálfræði, unnið á auglýsingastofu,
sem blaðamaður hjá Morgun-
blaðinu og við kennslu, hafði hún
enn ekki fundið sinn rétta vett-
vang. Það var ekki fyrr en tíu árum
eftir útskrift úr framhaldsskóla að
hún rifjaði upp gamlan draum um
að verða læknir og lét hann rætast.
Blaðamaður ræddi við ofurkonuna
Eyrúnu Baldursdóttir sem útskrif-
aðist sem læknir fyrr á þessu ári.
Þorði ekki
í inntökuprófið
Frá unga aldri hafði Eyrún mik-
inn áhuga á líffræði. „Ég hef ver-
ið 10-12 ára þegar ég byrjaði að
læra líffræði og fannst hún fárán-
lega spennandi. Hjartað, nýrun
og meltingarvegurinn var eins og
spennusaga fyrir mér,“ segir Eyrún
og játar að strax þá hafi hugmynd-
in um læknisfræðina verið komin í
kollinn. Eftir að hún lauk stúdents-
prófi af náttúrfræðibraut frá Fjöl-
brautaskóla Vesturlands um jól-
in 1994 lá leiðin samt ekki í clau-
sus í læknisfræði. „Ég þorði ekki í
„claususinn“ því ég var hrædd um
að komast ekki áfram. Í staðinn
fyrir að reyna og kannski mistak-
ast tók ég öruggari valkost um að
finna annað nám,“ segir Eyrún.
Anatómía á hjóli
Það var ekki fyrr en Eyrún var 29
ára að hún lét slag standa. „Þegar
Flóki maðurinn minn fór í mast-
ersnám í Skotlandi reyndi ég að
finna nám þar. Í þessari leit kvikn-
aði bara allt í einu á peru. Það var
eins og ég hefði skyndilega hug-
rekki til að horfast í augu við að
mig langaði í læknisfræði og hefði
alltaf gert,“ segir Eyrún sem á þess-
um tímapunkti komst inn í lækn-
isfræði í Danmörku. Það fór því
svo að hún og Flóki Guðmunds-
son voru í fjarbúð í rúmt ár. „Ein-
hvern veginn fannst mér styttra frá
Danmörku til Skotlands en frá Ís-
landi til Skotlands,“ segir Eyrún
og hlær. „Hann kláraði masterinn
í heimspeki í Skotlandi og á með-
an las ég mér næstum til óbóta í
læknisfræðinni í Danmörku. Ég
nýtti allar stundir og hjólaði í og
úr skólanum tautandi anatómíu og
latnesk heiti í hverri ferð,“ bætir
Eyrún við.
Hagur af eldri
læknanemum
Það fór þó svo að þau komu aftur til
Íslands úr fjarbúð í sambúð og Ey-
rún hélt náminu áfram hér heima.
„Ég þurfti reyndar að fara í inn-
tökupróf sem byggir á námsskrá
framhaldsskólanna og keppa um að
verða ein af 48 efstu. Svo ég einhenti
mér í að rifja upp framhaldsskólann
á stuttum tíma og komst sem bet-
ur fer inn. Þá fékk ég allt sem ég
var búin með metið inn á annað
ár,“ segir Eyrún og bendir á að það
mætti breyta inntökuskilyrðum fyr-
ir fólk sem er löngu búið með fram-
haldsskóla. „Það er hagur af því að
hafa lífsreynslubolta í læknisfræði,“
segir Eyrún.
Ofurmaður
Samhliða læknanáminu hafa Ey-
rún og Flóki sambýlismaður henn-
ar eignast tvær stelpur, þær Dýrleifu
Kristínu 6 ára og Auði Eldey 2 ára.
„Þetta væri náttúrulega ekki hægt
ef maðurinn minn væri ekki svona
duglegur. Fyrir utan það að vera
fjáröflunarstjóri hjá UNICEF á Ís-
landi þá er hann frábær faðir, kaup-
ir í matinn, eldar og gerir það sem
gera þarf, til að hlutirnir gangi upp.
Hann er svona ofurmaður,“ seg-
ir Eyrún, ánægð með sinn mann.
Því það er jú erfitt að vera í krefj-
andi námi og sinna um leið heimili
og börnum.
Ertu til í að kíkja
á svolítið?
Hjarta Eyrúnar slær í læknisfræð-
inni. Hún er núna að ljúka kandí-
datsárinu og vinnur dagvinnu á
heilsugæslustöð sem kemur sér vel
fyrir fjölskyldumynstrið en laun-
in mættu vera hærri. „Grunnlaun
lækna eru skammarlega lág. Sumir
segja að læknar séu svo heppnir af
því þeir geta unnið yfirvinnu. Hvaða
foreldri vill meiri yfirvinnu?“ spyr
hún. „En ég elska starfið mitt. Fólk
leitar til lækna á viðkvæmum tíma
og treystir þeim fyrir vandanum.
Mér finnst dýrmætt að taka þátt í
því og reyna að leysa hlutina á réttan
hátt,“ segir hún. „Svo er bara um að
gera að vera hress, hressleiki er mitt
meðal. Það getur meira að segja ver-
ið hressandi þegar ég er stödd t.d. í
boði einhvers staðar og fólk notfær-
ir sér að ég sé læknir. Ég er jafnvel
dregin afsíðis og beðin um að kíkja á
eitt og annað,“ segir hún.
Eins og flestir sem ljúka kandí-
datsárinu stefnir Eyrún á að sér-
hæfa sig. „Það verður eitthvað sér-
svið með breiða nálgun. Ætli ég
velji ekki annað hvort heimilislækn-
ingar eða öldrunarlækningar. Gam-
alt fólk er svo þakklátt,“ segir geðugi
læknirinn Eyrún sem heldur ótrauð
áfram. Brynh. Stef.
Söðlaði um og fór í læknisfræði
Eyrún Baldursdóttir læknir.