Skessuhorn - 27.11.2013, Page 54
54 ÞRIÐJUDAGUR 26. NÓVEMBER 2013
Við Skúlagötu, sem er ein af elstu götunum í gamla bænum í Borgarnesi, er að
finna blómabúðina Blómasetrið
sem rekin er af hjónunum Svövu
Víglundsdóttur og Unnsteini Ara-
syni. Blómasetrið er engin venju-
leg blómabúð því hún er þeim
kosti gædd að hýsa notalegt kaffi-
hús, Kaffi Kyrrð, sem þau hjón
reka einnig. Sjón er sögu ríkari
í þessu áhugaverða setri og seg-
ir Svava að þar sé sú meginhugsun
ráðandi að bjóða viðskiptavinum
upp á góða og persónulega þjón-
ustu, fallegar vörur og notalegt
umhverfi til gera jólainnkaupin og
njóta léttra veitinga um leið.
„Við í Blómasetrinu einsetjum
okkur að veita góða þjónustu jafnt
í gleði og sorg allt árið um kring.
Núna er að fara í hönd hátíð ljóss
og friðar og mun því sú stemning
verða allsráðandi í búðinni á að-
ventunni,“ segir Svava. Vöruúr-
valið er fjölbreytt og er hægt að
kaupa blóm í öllum regnbogans
litum, sérútbúnar jólaskreytingar,
gjafavörur á borð við skrautmuni,
súkkulaði, indverska trefla, töskur,
kerti, ilmi og margt, margt fleira.
„Það er ótalmargt sem við bjóð-
um upp á í Blómasetrinu, sjón er
sögu ríkari,“ bætir Svava við, en
að auki er boðið upp á heimagist-
ingu í íbúð eigendanna á hæðinni
fyrir ofan búðina.
Inn af Blómasetrinu er Kaffi
Kyrrð og er þar gott og þægilegt
rými til að setjast niður og slappa
af og njóta búðarbragsins. Til að
krydda jólastemninguna í des-
ember verða viðburðir á döfinni
í versluninni svo sem kynningar
og eiginmannakvöld þar sem veitt
verður gjafaráðgjöf fyrir eigin-
menn. „Fylgjast má með dagskrá
viðburða á Facebook síðu Blóma-
setursins en þar má líka fylgjast
með öllu því sem fram fer í búð-
inni og hvet ég alla til að líka við
síðuna,“ segir Svava að lokum.
Hún minnir á opnunartíma versl-
unarinnar sem er frá kl. 10-22 alla
daga fram að jólum.
Blómasetrið er engin
venjuleg blómabúð
Svava Víglundsdóttir ásamt dóttur sinni Katrínu Huld Bjarnadóttur í Blómasetrinu
sem komið er í jólaham.
Ógrynni af fallegri gjafavöru í jólapakkann er að finna í Blómasetrinu.
Jólin eru komin í Blómasetrið.
Viðburðir í desember
Jólabærinn
Borgarnes
1. desember
Messa í Borgarneskirkju kl. 11.
Messa í Borgarkirkju kl. 14.
Kveikt á Jólatrénu í Borgarnesi á
Kveldúlfsvelli kl. 17.
Skallagrímur – Þór Þorlákshöfn í bikarkeppni
karla í körfubolta í íþróttamiðstöðinni kl. 19:15.
„Ekki-Aðventutónleikar“ systranna Soffíu Bjargar
og Kristínar Birnu Óðinsdætra frá Einarsnesi í
veitingasal Landnámssetursins kl. 20.
4. desember
Rússi spilaður í Edduveröld kl. 20.
5. desember
Skallagrímur – KR í úrvalsdeild karla í körfubolta í
íþróttamiðstöðinni kl. 19:15.
6. desember
Aðventurölt í gamla bænum. Verslanir
opnar til kl. 23. Frábær stemning!
8. desember
Barnaguðsþjónusta í Borgarneskirkju kl. 11:15.
Aðventusamkoma í Borgarneskirkju kl. 20.
10. desember
Aðventusamkoma í Brákarhlíð kl. 20.
12. desember
Lay Low með tónleika í Landnámssetrinu
kl. 21:30.
15. desember
Aðventuhátíð barnanna í Borgarneskirkju
kl. 11:15.
Skallagrímur – Grindavík í úrvalsdeild karla í
körfubolta í íþróttamiðstöðinni kl. 19:15.
Jólatónleikar fjölskyldunnar kl. 20 í Borgar-
neskirkju.
18. desember
Jólatrjáasala Björgunarsveitarinnar Brákar hefst
við Ljómalind (Sólbakka 2).
20. desember
Jólatónleikar KK & Ellenar á Sögulofti
Landnámsseturs kl. 20.
21. desember
Jólatónleikar KK & Ellenar á Sögulofti
Landnámsseturs kl. 17.
Jólakötturinn í Borgarnesi. Viðburðir
um allan bæ: Dans, söngur og gleði. Verslanir
opnar til kl. 22.
22. desember
Tónlistar- og bænastund í Borgarneskirkju kl. 20.
23. desember
Þorláksmessuskatan á boðstólum á
veitingahúsum bæjarins.
24. desember Aðfangadagur
Aftansöngur í Borgarneskirkju kl. 18.
Miðnæturguðsþjónusta í Borgarkirkju kl. 22:30.
25. desember - Jóladagur
Hátíðarguðsþjónusta í Borgarneskirkju kl. 14.
26. desember
Guðsþjónusta í Brákarhlíð kl. 16:30
27. desember
Hinn guðdómlegi gleðileikur í
Hjálmakletti.
28. desember
Flugeldasala Björgunarsveitanna Brákar og
Heiðars hefst í Ljómalind (Sólbakka 2).
31. desember
Aftansöngur í Borgarneskirkju kl. 18.
(Viðburðalistinn er alls ekki tæmandi og birtur með fyrirvara
um villur og breytingar á dagskrá. Byggir á samantekt sem
unnin var 20. nóvember sl.)
Ljósm. Kristín Jónsdóttir
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
3