Skessuhorn - 27.11.2013, Page 68
68 ÞRIÐJUDAGUR 26. NÓVEMBER 2013
Framkvæmdir eru nú að komast
á lokastig að Vegamótum á Snæ-
fellsnesi. Þarna er greinilega mikil
gróska. Það er verið að reisa gisti-
hús. Staðurinn hefur einnig fengið
nýtt nafn. Gömlu Vegamótin heita
nú Rjúkandi og draga þannig nafn
sitt af því að vera á háhitasvæði.
Ungt fólk með framtíðina fyrir sér
í ferðaþjónustu er að hasla sér völl
á þessum stað. „Mér finnst ferða-
mannaiðnaðurinn afar spennandi á
Íslandi. Við hér á Snæfellsnesi höf-
um upp á svo ótrúlega mikið að
bjóða. Ef við tökum okkur sam-
an hér á svæðinu og styrkjum okk-
ar bönd og vinnum saman þá eigum
við að geta boðið upp á algera para-
dís fyrir gesti sem koma til Íslands.
Ferðamannatímabilið er að lengjast
og sífelllt fleiri koma til landsins“
segir Sigrún Erla Eyjólfsdóttir.
Uppbyggingg
nýtt nafn
Það er mikill hugur í fólki á Rjúk-
anda á Vegamótum „Við ætlum
Framfarafélag Borgfirðinga held-
ur jólamarkað laugardaginn 7. des-
ember næstkomandi. Markaðurinn
verður haldinn í gömlu hlöðunni í
Nesi í Reykholtsdal. Fjölbreytnin
verður mikil. „Snorrastofa verð-
ur með bækur og hljómdiska, það
verður ýmiss konar handverk frá
okkar hagasta fólki. Þarna verð-
ur Árni í Árdal með eitthvað góð-
gæti, Guðrún í Hespu, Mýranaut,
geitabændur, Erpsstaðabændur og
kvenfélagið með heilmikið úrval.
Einnig verður Nanna í Sólbyrgi í
félagsskapnum en hún stendur að
Ljómalind,“ segja þær Jóhanna
Sjöfn Guðmundsdóttir og Bryn-
dís Geirsdóttir sem báðar sitja í
stjórn Framfarafélags Borgarfjarð-
ar. Listinn er þó ekki tæmandi.
Mikil stemning hefur mynd-
ast fyrir sveitamörkuðum undan-
farin ár. „Beint frá býli“ er öflugt
í landshlutanum. Eftirspurnin eft-
ir fersku hráefni, beint úr heima-
byggð er að aukast jafnt og þétt.
Vesturland státar af mikilli fjöl-
breytni í þessum efnum. „Fólk er
orðið meðvitað um hvað það vill
borða og eyða fjármunum sínum í.
Það kýs frekar að kaupa vörur sem
eru ekki unnar af börnum í nauð-
ungarvinnu eða matvöru sem búið
er að drekkja í aukaefnum. Við
erum svo heppin hér á landi að
þurfa ekki að nota slík efni í þess-
um mæli. Neytendur vilja kaupa
heilbrigða vöru og hafa gaman af
því að geta keypt beint af fram-
leiðendum,“ halda þær áfram.
„Ég er svo hrifin af öllu þessu
góða hráefni sem íslenskar sveit-
ir bjóða uppá. Það er frábært að
fólk er farið að nýta það í auknum
mæli. Að geta keypt góðar vörur
úr góðu hráefni úr nærumhverfinu
eykur lífsgæðin fyrir þá sem hafa
ekki tök á að gera allt sjálfir,“ bæt-
ir Bryndís við.
Markaðurinn mikil-
vægur fyrir framleið-
endur
„Jólamarkaðurinn er mikilvæg-
ur til að vekja athygli á frumfram-
leiðendum á Vesturlandi. Hér
verða fulltrúar alls staðar að úr
nærumhverfinu og alveg vestur á
firði. Segja má því að kjördæmið
sé allt undir,“ segja Íris Ármanns-
dóttir og Edda Arinbjarnar stjórn-
arkonur í Framfarafélaginu. „Það
var gaman hvað menn tóku vel í
að koma og taka þátt. Þessi góða
afspurn hefur sýnt sig vel í hvað
menn eru tilbúnir að hjálpa til við
auglýsingu og styðja þannig fram-
takið. Við erum einkar þakklát-
ar viðmóti þeirra góðu fyrirtækja
sem studdu við verkefnið og einnig
Bjarna, Rúnu og Einari í Nesi fyr-
ir að leggja til þessa góðu aðstöðu.
Með heimsókn á markaðinn gefst
fólki tækifæri til að stuðla að frek-
ari nýsköpun og framkvæmdagleði
í sveitunum. Enda er ekki ama-
legt að kaupa þessar flottu vörur, í
svona fallegu umhverfi og góðum
félagsskap.“
„Við hjá Framfarafélaginu höf-
um hlotið töluverða reynslu af
því að halda markaði. Þeir verða
skemmtilegri og betri með hverju
ári. Við leggjum upp úr því að fólk
geti notið þess að koma saman og
skoða það sem verður á boðstól-
um. Nú verða líka skemmtileg-
ar uppákomur sem eiga að koma
á óvart. En það er algjört leyndar-
mál.“ Með þessum orðum kveðj-
um við þessar kraftmiklu konur
í Borgarfirði og leyfum þeim að
halda áfram að undirbúa jólamark-
aðinn í Nesi.
grþ
Vörur frá Vesturlandi á
jólamarkaði í Nesi í Reykholtsdal
Stjórn Framfarafélags Borgarfjarðar, f.v. Íris Þórlaug, Kristjana, Bryndís, Edda og Jóhanna Sjöfn.
Breyta Vegamótum í Rjúkanda
að byrja með 13 herbergi sem eru
brátt fullbúin. Það verður eftir ára-
mót, vonandi í janúar. Síðan á einn-
ig að opna matsal og sal sem hægt
verður að leigja út fyrir minni veisl-
ur og fundi. Rjúkandi verður þann-
ig fjölnota staður. Við ætlum líka að
breyta gamla hlutanum. Hann hef-
ur hingað til verið skyndibitastað-
ur við þjóðveginn en nú viljum við
fara skrefinu lengra og gera Rjúk-
anda að veitinga- og kaffihúsi.“
Foreldrar Sigrúnar Erlu þau Val-
gerður Hrefna Birkisdóttir og Eyj-
ólfur Gísli Garðarsson hafa rekið
þjónustumiðstöðina að Vegamótum
síðan 1998. „Núna í haust ákváð-
um við að breyta heitinu á staðn-
um, þannig að nú erum við stödd
að Rjúkanda á Vegamótum. Það
er glæsilegt nafn enda nóg af heitu
vatni allt í kringum okkur. Gufu-
strókarnir rísa til himins bæði hér
rétt hjá að Lynghaga og svo í Eið-
húsum. Við erum ótrúlega ánægð
með það.“
Aðspurð segist Sigrún Erla hafa
flutt á Snæfellsnes með foreldrum
sínum 1996 frá Sandgerði. Hún
var fyrst einn vetur í Laugagerð-
isskóla. „Síðan flutti ég til föður-
ömmu minnar og bjó hjá henni
í eitt ár í Sandgerði. Hún veikt-
ist það ár og féll svo frá. Þá flutti
ég að Ytri -Tungu í Staðarsveit og
bjó hjá Jónínu ömmusystur minni
og Guðmundi. Þar dvaldi ég virka
daga til að geta sótt skóla og tekið
10. bekkinn en var svo hér að Vega-
mótum um helgar. Eftir það lá leið
mín aftur suður með sjó. Ég bjó hjá
móðurömmu minni og afa í sex ár
og sótti nám við Fjölbrautaskóla
Suðurnesja og síðan Iðnskólann í
Hafnarfirði. Þaðan lauk ég sveins-
prófi í hársnyrtiiðn 2005.“
Dvaldist langdvölum
erlendis
Eftir hárgreiðslunámið þótti Sig-
rúnu Erlu tímabært að fara erlend-
is og skoða heiminn. „Ég flutti til
Parma á Ítalíu þar sem ég bjó í tæp
þrjú ár og vann á hárgreiðslustofu.
Það var ótrúlega gaman og lær-
dómsríkt að læra ítölsku og kynn-
ast ítalskri menningu. Eftir þetta
ákvað ég að fara heim til Íslands og
læra meira. Ég fór í Háskóla Íslands
og lauk námi sem leikskólakennari
2010. Ég lét hrunið og kreppuna
ekki hafa áhrif á mig, langaði bara
til að ná mér í meiri menntun. Eftir
það vann ég hér heima á Íslandi.“
Ævintýri í útlöndum heilluðu þó
enn. Aðeins um ári síðar flutti Sig-
rún Erla til Svíþjóðar ásamt vin-
konu sinni. „Hún var og er forfall-
inn „lindy-hoppari“. Það er ákveðið
afbrigði af swing-dansi og er dans-
að undir jazztónlist. Lindy-hopp
dansinn er mjög vinsæll meðal Svía.
Við skelltum okkur í þessa ævin-
týraferð sem var mjög skemmti-
leg. Ég kynntist mörgu góðu fólki
og starfaði sem leikskólakennari
þarna í eitt ár. Þá flutti ég til Spán-
ar. Beina leið til Barcelona. Þar fór
ég að vinna fyrir íslensk hjón við
að passa yngstu tvær dætur þeirra
meðan þau bjuggu þar. Í Barce-
lona kynntist ég manninum mín-
um Gabriel Franch. Við eignuð-
umst svo dóttur 22. febrúar á þessu
ári sem við skírðum Astrid Nóru.
Þá voru pabbi og mamma búin að
taka ákvörðun um að fara út í hótel-
rekstur hér á Vegamótum. Þau eru
kletturinn í þessu öllu. Þegar það lá
fyrir ákváðum við að flytja frá Spáni
og setjast að hér á Vegamótum til
að taka þátt í uppbyggingunni og
hér erum við nú.“
Bjart framundan
Sigrún Erla segir að árin í útlönd-
um hafi kennt sér margt sem eigi
eftir að koma að góðum notum í
ferðaþjónustunni. „Ólöf systir mín
og kærastinn hennar, Bjarni Ómar
Nielsen sem er frá Stykkishólmi,
verða líka með okkur. Hún er nú
í námi í ferðamálafræðum við Há-
skóla Íslands. Ég tala ítölsku og
sænsku, auk ensku og að sjálfsögðu
íslenskuna. Síðan skil ég spænskuna
og katalónskuna. Þegar ég kynntist
Gabriel manninum mínum þá töl-
uðum við saman á ítölsku. Nú er
hann að læra íslensku og auk þess
talar hann ensku, spænsku, kata-
lónsku, ítölsku og smá í frönsku
og portúgölsku. Það verður eng-
inn skortur á tungumálakunnáttu
hjá okkur,“ segir Sigrún Erla og
brosir.
Hún bætir við að mannin-
um hennar líki afar vel á Íslandi.
„Hann er lærður tölvuverkfræð-
ingur og getur unnið að verkefn-
um héðan. Nettengingin mætti
þó vera betri hér á Vegamótum en
vonandi batnar það með tímanum.
Slæm nettenging er líka vond fyr-
ir okkur sem erum í ferðaþjónust-
unni því flestar bókanir fara fram
á netinu. Það hefur verið umræða
um að leggja ljósleiðara og ég vona
að það verði að veruleika. Slíkt
myndi gerbreyta aðstæðum til hins
betra hér í dreifbýlinu á Snæfells-
nesi.“
Það ríkir mikil bjartsýni á Rjúk-
anda á Snæfellsnesi. „Umferð-
in var mikil í sumar. Ferðaþjón-
ustan er að verða að atvinnugrein
sem hægt er að stunda allt árið um
kring. Hátíðir eins og Airwaves-
tónlistarhátíðin dregur ekki aðeins
ferðamenn til Reykjavíkur heldur
er náttúran á Snæfellsnesi aðdrátt-
arafl sem fáir ferðamenn fá staðist.
Norðurljósin eru vinsæl og heilla
jafnt hinn almenna ferðamann sem
og þá sem leggja ljósmyndun fyr-
ir sig. Við erum mjög spennt fyr-
ir framtíðinni, annars værum við
ekki að fara út í þetta.“ mþh
Nýi gistihúshluti Rjúkanda á Vegamótum á Snæfellsnesi verður brátt fullbúinn.
Sigrún Erla ásamt eiginmanni sínum Gabriel Franch og dótturinni Astrid Nóru.