Skessuhorn - 27.11.2013, Page 76
76 ÞRIÐJUDAGUR 26. NÓVEMBER 2013
Loftur Árni Björgvinsson er fram-
haldsskólakennari í ensku við Fjöl-
brautaskóla Snæfellinga í Grund-
arfirði og vinsæl söngstjarna í leik-
skólanum þar. Christina eigin-
kona hans er frá Þýskalandi og lík-
ar hvergi betur en á Íslandi. Þau
eiga þriggja ára dóttur, fjörkálf
sem heitir Mýrún Lotta. Sjálfur er
hann fæddur og uppalinn á Skaga-
strönd, flutti með foreldrum sín-
um til Mosfellsbæjar 12 ára gamall
árið 1995. Tók fjölbrautanámið og
stúdentspróf á Sauðárkróki og bjó
svo í Reykjavík. Er með háskóla-
menntun í ensku og heimspeki og
sinnir nú MA námi í ensku. Þetta er
Loftur Árni Björgvinsson.
„Mér finnst mjög gott að geta lit-
ið út um gluggann hér og séð bæði
fjöllin og sjóinn á sama tíma,“ seg-
ir Loftur þar sem hann situr með
Mýrúnu Lottu í fanginu. Húsmóð-
irin er að heiman og þau feðgin-
in stytta hvoru öðru stundirnar á
meðan vindurinn æðir ofan fjall-
hlíðarnar niður í þorpið. Úti á firð-
inum er síldveiðflotinn að kapp-
kosta við veiðar. Sá dyntótti fisk-
ur hefur loks gefið færi á sér. Ann-
ars eru fáir á ferli. Einn af þessum
dæmigerðu íslensku vetrarstorm-
um er skollinn á.
Grundafjörður kom
þægilega á óvart
Við fáum okkur kaffi við eldhús-
borðið. „Það er mjög fínt að búa í
Grundarfirði. Umhverfið er mjög
þægilegt, maður er í göngufæri við
allt. Stressið er minna en í Reykja-
vík. Fjölbrautaskólinn er líka mjög
fínn. Hann er dálítið óvenjulega
byggður þar sem kennslan fer fram
í opnum rýmum. Námið er það sem
kallað er leiðsagnarmiðað. Þetta eru
ekki hefðbundnar kennsluaðferðir
þar sem fólk er lokað af í kennslu-
stofum og það eru ekki lokapróf.
Þetta byggir á verkefnavinnu, lestri
og vinnu í kennslustundum. Mér
finnst þetta bæði skemmtilegt og
nýstárlegt á sinn hátt. Fyrst fannst
mér þetta hálf erfitt. Ég hafði van-
ist því að kennarinn stæði og mess-
aði yfir nemendum á meðan þeir
skrifuðu glósur. Það er mjög gaman
að byrja í kennarastarfinu á svona
óhefðbundari nótum.“
Loftur segir að hann hafi lang-
að til að leggja fyrir sig kennslu. Í
sumar hóf hann leit að starfi. „Það
er eins og það sæki tiltölulega fáir
um kennarastörf úti á landsbyggð-
inni. Ég sendi umsóknir út um allt.
Alla leið frá Egilsstöðum og hing-
að vestur. Þessa stöðu fékk ég til af-
leysinga í eitt ár. Sú sem kenndi á
undan mér fór í fæðingarorlof. Það
kemur svo í ljós hvað verður eftir
það. Við vorum dálítið stressuð yfir
því að flytja svona út á land en sam-
starfsfólkið mitt hefur verið boðið
og búið að rétta hjálparhönd. Jó-
hanna, sem ég leysi af, gekk strax í
að kynna mig fyrir fólki, ég hef tek-
ið þátt í körfuboltanum hér, kynnt
mér Víkingafélagið sem starfar í
bænum. Mér finnst fólk eiginlega
opnara hér heldur annars staðar þar
sem ég hef kynnst því hér á Íslandi.
Dóttir okkar fór strax á leikskólann
sem er mjög góður. Þar eru um 60
börn í tveimur deildum. Það kom
Nemendur Laugargerðisskóla á
Snæfellsnesi héldu tónlistardag
fyrir foreldra og ættingja síðast-
liðinn fimmtudag. Tónlistardagar
eru einu sinni á hvorri önn skóla-
ársins. Fylgir þessum dögum oft
töluverður kvíði en jafnframt til-
hlökkun. Það getur verið erfitt að
stíga á svið og syngja eða spila á
hljóðfæri fyrir framan fullt af fólki
en óhætt að segja að börnin hafi
leyst þetta verkefni vel af hendi og
fóru öll brosandi niður af sviðinu.
Krakkarnir í skólanum hafa ver-
ið mjög virkir í tónlistinni und-
anfarin ár og er það ekki síst að
þakka henni Steinunni Pálsdóttir
sem kemur úr Borganesi í hverri
viku til að kenna þeim. Hún hefur
séð um tónlistarkennslu í Laugar-
gerðisskóla í 19 ár og kennir á gít-
ar, píanó, trommur, blokkflautu,
auk söngs.
iss
Tónlistardagur í Laugargerðisskóla
Enskukennari með gítarspil og söng
fyrir yngstu borgarana
mér þægilega á óvart hvað er mik-
ið af ungum börnum hér í Grund-
arfirði.“
Kynntust í heildsölu
Eiginkona Lofts heitir Christina
Klee. Hún er frá Magdeburg sem
áður var í í Austur - Þýskalandi.
„Konan mín er búin að vera sjö ár
samfleytt á Íslandi. Þar á undan
hafði hún heimsótt landið og skoð-
að það. Hún fékk svo vinnu hjá O.
Johnson & Kaaber heildverslun-
inni í Reykjavík þar sem hún vann á
lagernum. Hún lærði heildsölu- og
lagerstjórnun í Austur Þýskalandi.
Þetta var framhaldsnám sem hún
hóf nokkrum mánuðum áður en
Berlínarmúrinn féll. Í gamla Aust-
ur - Þýskalandi var kerfið þannig að
ungt fólk gat sótt um að hefja nám
í tveimur greinum sem þau for-
gangsröðuð; A og B. Ef þú fékkst
ekki óskirnar uppfylltar þá varst þú
bara settur í eitthvað annað. Hún
sótti um að læra klæðskeraiðn en
fékk það ekki. Í staðinn settu stjórn-
völd hana í heildsölu- og lager-
fræði. Hún ákvað þegar múrinn féll
að ljúka þessu námi fyrst hún var
byrjuð. Þannig fékk hún vinnu við
þetta hér á Íslandi mörgum árum
síðar. Það kom sér ágætlega því þar
kynntumst við. Ég var nefnilega líka
að vinna hjá fyrirtækinu.“
Loftur útskýrir að hann sé einn
heima þessa stundina. Christina
sé í kaffiboði á sveitabæ skammt
utan við Grundarfjörð. Hún starfi
við heimaþjónustu og kynnist því
mörgum Íslendingum, ekki síst
eldri borgurum. „Henni þykir mjög
gott að búa á Íslandi, landsmenn eru
vinalegir. Loftið er miklu hreinna
hér á Íslandi, ferskt sjávar- og fjalla-
loft. Magdeburg er um 300.000
íbúa iðnaðarborg með miklum still-
um og mengun sem því fylgir. Ég
tel að hún hafi hlakkað meira til að
flytja frá Reykjavík en ég. Hún tal-
aði góða íslensku fyrir, en það að
hún vinni með eldra fólki ýtir und-
ir að hún æfir sig meira. Hún kemst
ekkert upp með að tala ensku. Nú
er hún orðin mjög fær í íslensku,
stundum næstum hálf forneskjuleg í
máli að mér finnst, eftir að hafa tal-
að við allt eldra fólkið, segir Loft-
ur og hlær.
Söngstjarna á
leikskólanum
Talið berst að leikskólanum í
Grundarfirði. Blaðamaður Skessu-
horns hefur frétt að Loftur sé stjarna
þar á bæ þar sem hann troði reglu-
lega upp með gítarspili og söng.
„Jú það er rétt. Ég fer í leikskólann
á föstudögum klukkan 11 og er þá
með söngstund. Nú er einmitt jóla-
lagavertíðin að bresta á. Við erum
reyndar tveir núna og spilum báð-
ir á gítara og syngjum með börnun-
um. Mótspilari minn heitir Óli og
hann starfar á leikskólanum. Þessi
tími hentar vel því síðasti kennslu-
tími vikunnar hjá mér í framhalds-
skólanum er búinn rétt fyrir 11 á
föstudögum. Þá reyni ég að vera
búinn með allt sem ég þarf að gera
þannig að ég geti farið beint í leik-
skólann og spilað. Þannig byrja
helgarnar hjá mér.“
Loftur Árni segir að þau hjónin
geti vel hugsað sér að búa áfram í
Grundarfirði. „Við höfum jafnvel
hugleitt að ef ég þarf að sækja um
stöðu á nýjum stað fyrir næsta vet-
ur þá sæki ég bara vinnu héðan frá
Grundarfirði. Okkur langar bara að
búa hér áfram.“
mþh
Loftur Árni og Mýrún Lotta höfðu í nógu að snúast þegar blaðamann bar að garði.