Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.04.2000, Síða 23

Læknablaðið - 15.04.2000, Síða 23
FRÆÐIGREINAR / HEILSUTENGD LIFSGÆÐI Heilsutengd lífsgæði Islendinga Tómas Helgason1 Júlíus K. Björnsson2 Kristinn Tómasson3 Erla Grétarsdóttir1 Frá 'Ríkisspítulum, stjómun- arsviöi, :Rannsóknarstofnun uppeldis- og menntanjála, 3Vinnueftirliti ríkisins, atvinnusjúkdómadeild, 4geödeild Landspítalans. Bréfaskipti, fyrirspurnir: Tómas Helgason, Stigahlíö 75, 105 Reykjavík. Netfang: tomashe@isholf.is Lykilorð: heilsa, lífsgœði, kyn, aldur, viðmið. Ágrip Inngangur: Tilgangur rannsóknarinnar var að athuga heilsutengd lífsgæði fullorðinna Islendinga með prófi sem samið hefur verið hér, HL-prófinu, hvort þau væru eins hjá körlum og konum og hvort þau breytt- ust með hækkandi aldri. Jafnframt var ætlunin að fá almenn viðmið eftir aldri og kyni svo að hægt væri að meta frávik ákveðinna hópa. Efniviður og aðferðir: HL-prófið var sent til 2800 einstaklinga, lagskipts slembiúrtaks úr þjóðskrá, jafn- margra karla og kvenna á hverju 10 ára aldursbili frá 20-79 ára og 80 ára og eldri. Reiknaðar voru grunn- einkunnir fyrir hvern kvarða prófsins og fyrir prófið í heild, fyrir karla og konur í aldurshópunum, 20-49 ára, 50-69 ára og 70 ára og eldri og þeim breytt í staðaleinkunn, T-einkunn. Niðurstöður: Heildarsvörun var 61%, lægri í yngsta (20-29 ára) og elsta aldursflokknum (80 ára og eldri) en svipuð hjá körlum og konum. Innra brottfall var lítið. Areiðanleiki prófsins í heild reyndist góður (Cronbachs alfa=0,91). Heilsutengd lífsgæði kvenna í heild eru greinilega lakari en karla og á flestum kvörðum. Heilsutengd lífsgæði minnka með hækkandi aldri, með undan- tekningum þó. Áberandi munur er á elsta og yngsta hópnum. Lífsgæði elsta hópsins eru lakari en hinna yngri bæði í heild og á flestum kvörðum nema fjárhag og kvíða. Depurð og samskipti breytast ekki mark- tækt með aldri. Þeir elstu eru áberandi lakastir á kvörðunum almennt heilsufar, þrek og líkamsheilsa. Svefn versnar með hækkandi aldri, einkum hjá kon- um. Fimm meginþættir skýra mest af breytileikanum, almennt heilsufar (23,4%), andleg líðan (20,5%), ánægja (9,0%), svefn (6,9%) og fjárhagur (6,3%). Ályktanir: Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að nauðsynlegt er að þeir sem skipuleggja heilbrigðis- þjónustu og rannsaka árangur meðferðar taki tillit til mismunandi heilsutengdra lífsgæða karla og kvenna og til þeirra breytinga sem verða með aldrinum. Inngangur Þrjár ástæður til að bjóða læknismeðferð eru, lenging lífs, hindrun frekari veikinda og/eða bætt líðan sjúk- linganna (1). Einfalt er að mæla árangur með tilliti til tveggja fyrri atriðanna og menn hafa reynt að láta ýmsar lífeðlis- og lífefnafræðilegar mælingar nægja í staðinn fyrir klínískar mælingar á líðan sjúklinganna. ENGLISH SUMMARY Helgason T, Björnsson JK, Tómasson K, Grétarsdóttir E Health-related quality of life among lcelanders Læknablaöiö 2000; 86: 251-7 Objective: To study health-related quality of life (HRQL) among adults in lceland with a generic lcelandic instru- ment, IQL (lcelandic Quality of Life), if it is the same among men and women, and if it changes by increasing age. Furthermore, it was intended to find norms for men and women in different age groups in order to evaluate patients’ deviation in HRQL. Material and methods: IQL was sent to 2800 individuals, a random sample from the national registry, stratified by sex in 10 years age groups from 20-79 years and those above 80 years. For each sub-scale on the instrument and for the combined instrument raw scores were calculated for men and women in the age groups 20-49 years, 50-69 years and 70 years and older which were converted to a T- score. Results: The response rate was 61 %, lower among the youngest (20-29 years) as well as among the oldest (80 years and older), but similar for men and women. Internal missing values were few. Reliability of the test was good (Cronbach’s alfa=0.91). HRQL among women in general was worse than that of men both in general as well as on most sub-scales. HRQL decreases with advancing age, however, with certain ex- ceptions. A marked difference was found between the youngest and the oldest. The quality of life in the oldest group is worse than among the younger, both in general and on most sub-scales except finance and anxiety. De- pression and social function do not change significantly with age. The oldest are especially worse on the scales general health, energy and physical health. Sleep be- comes worse with increasing age, especially among women. Five factors explain two thirds of the variance, general health (23.4%), mental wellbeing (20.5%), satisfaction (9.0%), sleep (6.9%) and finance (6.3%). Conclusions: When evaluating HRQL among patients it is necessary for health-care providers and researchers to take into consideration the difference in HRQL between men and women and the changes occurring with age. Key words: health, quality of life, sex, age, norms. Correspondance: Tómas Helgason. E-mail: tomashe@isholf.is En eins og læknar vita er ekki beint samband milli niðurstaðna úr slíkum rannsóknum og þess sem sjúk- Læknablaðið 2000/86 251
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.