Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.04.2000, Qupperneq 87

Læknablaðið - 15.04.2000, Qupperneq 87
S M A S J A I N indi sjúklinga og æðri stjórnarskrá lýðveld- isins. Ef hann reynist ekki vera það geta læknar, sem afhenda gögn sjúklinga sinna án upplýsts samþykkis sjúklinga, átt á hættu lögsókn, jafnvel þó þeir afhendi gögnin í skjóli opinberra stofnana. Félagið Mann- vernd hefur ráðið lögfræðing til að prófa réttarstöðu lækna og sjúklinga gagnvart (gullasnanum) gagnagrunnslögunum. Mannvemd hefur einnig leitað til lækna um fjárframlög til að kosta væntanleg málaferli. Undirtektir hafa verið dræmar. Má vera að læknar, hvort sem þeir eru meðmæltir eða andvígir gagnagrunninum, vilji ekki vita um réttarstöðu sína gagnvart lögunum og vilji heldur eiga á hættu að vera kærðir eða kæri sig ekki um að verja rétt sjúklinga sinna sem þeim ber að gera samkvæmt læknaeiðnum? Getur verið að sporslusiðferðið sé orðið svo rótgróið í stéttinni að menn tími eða þori ekki að reiða af höndum fé til að komast að raun um réttarstöðu sína? Getur verið að gullasninn sé að verða húsdýr læknastéttar- innar? Reykjavíkurborg kaupir Mýri Um miðjan marsmánuð var gengið frá sölu húseignarinnar Mýri í Litla-Skerjafirði sem verið hefur í eigu Læknafélags Reykjavíkur í rúman áratug. Kaupandi er Reykjavíkurborg sem hyggst starfrækja þar áfram leikskóla með óbreyttu sniði, í bili að minnsta kosti. Læknafélag Reykjavíkur keypti húsið árið 1989 en árið áður höfðu konur í röð- um unglækna gert kröfu til félagsins um að það brygðist við ófremdarástandi sem þá ríkti í dagvistarmálum í borginni. Magni Jónsson var þá formaður og stjórn hans brá við hart, lét gera könnun á ástandinu meðal félagsmanna og í ljósi hennar var ráðist í kaupin á húsinu. Þetta var ekki óumdeilt en húsið var engu að síður keypt og meðal annars fjármagnað með aukaálagi sem lagðist ofan á félags- gjöld lækna. Húsið var innréttað og settur þar á stofn leikskóli. Gerður var samningur við Reykjavíkurborg til 10 ára um kaupin en foreldrafélag leikskólans sá um rekstur- inn. Þegar samningurinn rann út síðast- liðið haust höfðu aðstæður lækna breyst sem og staðan í dagvistarmálum í borg- inni. Þá voru einungis tvö læknabörn í leikskólanum og forsendur fyrir þátttöku LR í rekstrinum brostnar að flestra mati. Húsið var sett á söluskrá og bárust tvö tilboð í það, bæði frá fólki sem hugðist halda áfram rekstri leikskóla í húsinu. Á endanum gekk Reykjavíkurborg inn í hærra tilboðið og keypti húsið fyrir 32 milljónir króna. Að sögn Ólafs Þórs Ævarssonar for- manns LR ríkir mikil ánægja með þessa sölu í röðum félagsmanna. „Eftir að áhvílandi skuldir hafa verið gerðar upp verður til sjóður sem nemur rúmlega 20 milljónum króna. Honum hefur ekki ver- ið ráðstafað en við höfum hug á að nýta hann til að styrkja starf félagsins að kjara- málum, svo sem með því að kaupa ráð- gjöf og annan stuðning við samninga- nefnd félagsins,“ sagði Ólafur Þór. -ÞH Til lækna ■ Hjálagðar eru vinnureglur Tryggingastofnunar ríkisins um út- gáfu lyfjaskírteina fyrir terbínafín (Lamisil). Eins og kunnugt er var felld niður greiðsluþátttaka TR í þessu lyfi frá og með áramótum, samkvæmt reglu- gerðarbreytingu Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins. Niður- felling greiðsluþátttökunnar hefur mætt mikilli andstöðu lækna, einkum sérfræðinga í húðsjúkdómum, sem hafa fært rök fyrir því, að nauðsyn- legt sé að koma til móts við sjúklinga með alvarlegar og langvinnar sveppa- sýkingar í húð og nöglum. Vinnureglurnar eru settar í sam- ráði við HTR og skýra sig sjálfar. Vakin er athygli á því, að sjúklingi er ætlað að greiða að fullu fyrir lyfið fyrstu tvo mánuði meðferðarinnar og skal læknir votta, að þeirri meðferð sé lokið. Áður innsend vottorð verða end- urskoðuð með tilliti til vinnuregln- anna og óskað eftir frekari upplýsing- um sé þeirra þörf. Tryggingayfirlæknir Vinnureglur ■ Útgáfa lyfjaskírteina fyrir sveppalyf, lyfjaflokkur D01BA02 (terbínafín), vegna sveppasýkinga í nöglum og/eða húð. 1. I umsókn um lyfjaskírteini (lækn- isvottorði) skal læknir votta, að sjúklingur hafi þegar lokið tveggja mánaða meðferð með lyfinu (1). Jafnframt skulu fylgja niðurstöður ræktunar og/eða smásjárskoðun- ar, sem staðfesta greiningu. 2. Gefið er út lyíjaskírteini, sem heim- ilar afgreiðslu á 30 daga skammti, E merkt. Gildistími skírteinis er sex mánuðir frá útgáfudegi. 1. Sjúklingur greiðir að fullu fyrir fyrstu tvo mánuðina. Læknablaðið 2000/86 307
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.