Læknablaðið - 15.04.2000, Blaðsíða 88
UMRÆÐA & FRETTIR / IÐORÐASAFN LÆKNA 121
Sameinað sjúkrahús
Jóhann Heiðar
Jóhannsson
Netfang:
johannhj@rsp.is
Ríkisspítalar og Sjúkrahús Reykjavíkur hafa
verið sameinuð. Leitað var til starfsfólks á sjúkrahús-
unum og einhverra fleiri aðila um hugmyndir að
nafni á hina nýju stofnun. í fréttasafni á heimasíðu
Ríkisspítala má finna lista yfir þær 84 tillögur sem
bárust. Spaugfuglar gripu tækifærið (Báknið, Hús
Andanna, Landskotaspítalinn, Selskapssjúkrahúsið),
ekki síður en aðrir (Háskólasjúkrahús íslands, Há-
skólaspítalar íslands, Landssjúkrahúsið, Ríkisspítal-
ar). Hugmyndaauðgi tillögusmiða virðast engin tak-
mörk hafa verið sett (Björg, Ból, Fjöl, Hörn, Tögg,
Vermir, Vör, Þor, Þöll og Öflga), en úrskurðarnefnd
var skipuð og niðurstaða fékkst. í reglugerð Heil-
brigðis- og tryggingamálaráðuneytisins, nr. 127/2000
frá 2. mars 2000, kemur fram að hin nýja stofnun ber
nafnið Landspítali, háskólasjúkrahús.
Tillögusafnið fékk að sjálfsögðu einnig umfjöllun
spekinganna í matsalnum. Þar sýndist sitt hverjum og
varð hin besta skemmtun af. Ein af spurningunum,
sem þar komu fram, er tilefnið að umfjöllun á þessum
vettvangi: Hvers vegna heitir spítalinn „Landspítali“
en ekki„Landsspítali"?
Málfræði orðmyndunar
Ýmsir halda því fram að nafnið „Landspítali" sé ekki
rétt myndað og að um villu sé að ræða, „s“-in eigi að
vera tvö en ekki eitt. Því er til að svara að þarna er
um svonefnda stofnsamsetningu að ræða, þegar stofn
fyrra orðsins er tengdur við síðara orðið „spítali" til
að mynda heitið, Landspítali. Stofn orðsins „land“
finnst í þolfalli, en orðið er eins í nefnifalli og þolfalli.
Þessi orðmyndun er því málfræðilega rétt, en jafnrétt
er hins vegar að nota eignarfallssamsetningu til að
búa til heitið Landsspítali.
í símaskrá „Landssímans“ eru eignarfallssamsetn-
ingar nafna sem byija á „Land-“ heldur fleiri (dæmi:
Landsafl, Landsbanki, Landsbjörg, Landsbókasafn,
Landsnefnd, Landssam-
band, Landsvirkjun) en
stofnsamsetningar (dæmi:
Landbúnaðarráðuneyti,
Landgrœðsla, Landlœknir,
Landmœlingar, Landvari,
Landnáma, Landvernd).
í ritinu Leiðbeiningar
fyrir orðanefndir (Islensk
málstöð 1991) er sagt frá
því að eignarfallssamsetn-
ingar séu rniklu algengari,
en um val á samsetningar-
leiðum er þetta sagt: „Best
Ákveðinn greinir eða ekki?
í fundargerð stjórnar sjúkrahúsanna í Reykjavík
þann 1. mars 2000 segir frá því að greidd hafi verið
atkvæði um þá valkosti sem þannig er lýst:
„Land(s)spítali(nn)“ og „Háskólasjúkrahús(ið)“.
Sá kostur að láta stofnunina heita „Landspítalinn“
fékk ekki brautargengi. Vera má að ætlunin hafi
verið sú að hið nýja nafn yrði með formlegri og
virðulegri blæ en hið eldra. Forvitnilegt verður að
fylgjast með því hvort almenningur tekur ástfóstri
við hið nýja nafn eða heldur áfram að tala um
„Landspítalann" eins og gert er við „Landsbankann“
sem ber hið formlega nafn „Landsbanki Islands“.
308 Læknablaðið 2000/86
er að taka mið af hliðstœðum orðum eða hefð og láta
máltilfinningu ráða. “
Merkingarlega getur verið um mun að ræða eftir
því hvor samsetningaraðferðin er notuð. Nægir að
taka sem dæmi orðin landmaður (starfsmaður sem
vinnur að afla í landi) og landsmaður (íbúi, borgari
lands). Merkingarmunurinn þarf ekki að vera fylli-
lega rökréttur, en byggist að hluta á því að orðhluti
hafi nokkrar mismunandi merkingar. Land merkir til
dæmis þurrlendi, árbakki, vatnsbakki, strönd, ríki,
landareign, landsvœði, flatur hluti e-s.
Þá kemur einnig fram ábending um að forðast þær
„samhljóðasamsetningar" á liðamótum samsettra
orða, sem óþægilegar verða í framburði. Dæmið, sem
þar er tekið um óþægilega eignarfallssamsetningu, er
„fisksbúð“ í stað hinnar hefðbundnu og lipru stofn-
samsetningar „fiskbúð". Nafnið Landspítali er óneit-
anlega þægilegra í framburði en Landsspítali.
Landspítali
í ritmálsskrá Orðabókar Háskólans má finna bæði
orðin: landsspítali (heimild frá 1863) og landspítali
(frá 1896). „Landsspítali“ virðist því upprunalegri
orðmynd, en Ijóst er að snemma hefur það gerst að
annað „s“-ið hafi stundum fallið brott. I ritmáls-
skrána hafa einnig verið skráð nokkur margsamsett
orð, sem ýmist innihalda eitt „s“ eða tvö: landsspítala-
hugmynd, landspítalamál, landsspítalamál (frá 1917),
landspítalasjóður (frá 1927), landsspítalastofnun (frá
1897), landspítalaskortur (frá 1897) og landsspítala-
þörf (frá 1917). Ákveðin hefð virðist því ekki hafa
myndast á þessum árum.
Vilmundur Jónsson, landlæknir, fjallar ítarlega um
stofnun Sjúkrahúss Reykjavíkur árið 1866 (Lækning-
ar og saga 1969) og rekur margt úr þeirri umræðu
sem fram fór á næstu áratugum um stofnun kennslu-
spítala. í þeirri umfjöllun er alltaf notað heitið
„landsspítali".
Gunnar M. Magnús segir frá því í Landspítalabók-
inni (Ríkisspítalar 1981) að á fyrsta almenna lækna-
fundinum í Reykjavík (árið 1896) hafi eitt af dagskrár-
málunum verið „Landsspítali“ og að rúmum 30 árum
seinna, þegar spítalinn hafði verið reistur, var sett
lágmynd á burst hans sem bar áletrunina „Landsspítali
íslands“. Þessi áletrun sést nú ekki en yfir suðurdyrum
er áletrunin „Landsspítalinn“. Sjálfur notar Gunnar
heitið „Landspítali" í umfjöllun sinni en gefur ekki
neina vísbendingu um það hvenær „s“-ið hafi fallið
brott. Lengra komst undirritaður ekki með þessa
sögulegu athugun og veit ekki enn hvort eða hvenær
tekin hafi verið formleg ákvörðun um breytinguna.