Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.04.2000, Page 88

Læknablaðið - 15.04.2000, Page 88
UMRÆÐA & FRETTIR / IÐORÐASAFN LÆKNA 121 Sameinað sjúkrahús Jóhann Heiðar Jóhannsson Netfang: johannhj@rsp.is Ríkisspítalar og Sjúkrahús Reykjavíkur hafa verið sameinuð. Leitað var til starfsfólks á sjúkrahús- unum og einhverra fleiri aðila um hugmyndir að nafni á hina nýju stofnun. í fréttasafni á heimasíðu Ríkisspítala má finna lista yfir þær 84 tillögur sem bárust. Spaugfuglar gripu tækifærið (Báknið, Hús Andanna, Landskotaspítalinn, Selskapssjúkrahúsið), ekki síður en aðrir (Háskólasjúkrahús íslands, Há- skólaspítalar íslands, Landssjúkrahúsið, Ríkisspítal- ar). Hugmyndaauðgi tillögusmiða virðast engin tak- mörk hafa verið sett (Björg, Ból, Fjöl, Hörn, Tögg, Vermir, Vör, Þor, Þöll og Öflga), en úrskurðarnefnd var skipuð og niðurstaða fékkst. í reglugerð Heil- brigðis- og tryggingamálaráðuneytisins, nr. 127/2000 frá 2. mars 2000, kemur fram að hin nýja stofnun ber nafnið Landspítali, háskólasjúkrahús. Tillögusafnið fékk að sjálfsögðu einnig umfjöllun spekinganna í matsalnum. Þar sýndist sitt hverjum og varð hin besta skemmtun af. Ein af spurningunum, sem þar komu fram, er tilefnið að umfjöllun á þessum vettvangi: Hvers vegna heitir spítalinn „Landspítali“ en ekki„Landsspítali"? Málfræði orðmyndunar Ýmsir halda því fram að nafnið „Landspítali" sé ekki rétt myndað og að um villu sé að ræða, „s“-in eigi að vera tvö en ekki eitt. Því er til að svara að þarna er um svonefnda stofnsamsetningu að ræða, þegar stofn fyrra orðsins er tengdur við síðara orðið „spítali" til að mynda heitið, Landspítali. Stofn orðsins „land“ finnst í þolfalli, en orðið er eins í nefnifalli og þolfalli. Þessi orðmyndun er því málfræðilega rétt, en jafnrétt er hins vegar að nota eignarfallssamsetningu til að búa til heitið Landsspítali. í símaskrá „Landssímans“ eru eignarfallssamsetn- ingar nafna sem byija á „Land-“ heldur fleiri (dæmi: Landsafl, Landsbanki, Landsbjörg, Landsbókasafn, Landsnefnd, Landssam- band, Landsvirkjun) en stofnsamsetningar (dæmi: Landbúnaðarráðuneyti, Landgrœðsla, Landlœknir, Landmœlingar, Landvari, Landnáma, Landvernd). í ritinu Leiðbeiningar fyrir orðanefndir (Islensk málstöð 1991) er sagt frá því að eignarfallssamsetn- ingar séu rniklu algengari, en um val á samsetningar- leiðum er þetta sagt: „Best Ákveðinn greinir eða ekki? í fundargerð stjórnar sjúkrahúsanna í Reykjavík þann 1. mars 2000 segir frá því að greidd hafi verið atkvæði um þá valkosti sem þannig er lýst: „Land(s)spítali(nn)“ og „Háskólasjúkrahús(ið)“. Sá kostur að láta stofnunina heita „Landspítalinn“ fékk ekki brautargengi. Vera má að ætlunin hafi verið sú að hið nýja nafn yrði með formlegri og virðulegri blæ en hið eldra. Forvitnilegt verður að fylgjast með því hvort almenningur tekur ástfóstri við hið nýja nafn eða heldur áfram að tala um „Landspítalann" eins og gert er við „Landsbankann“ sem ber hið formlega nafn „Landsbanki Islands“. 308 Læknablaðið 2000/86 er að taka mið af hliðstœðum orðum eða hefð og láta máltilfinningu ráða. “ Merkingarlega getur verið um mun að ræða eftir því hvor samsetningaraðferðin er notuð. Nægir að taka sem dæmi orðin landmaður (starfsmaður sem vinnur að afla í landi) og landsmaður (íbúi, borgari lands). Merkingarmunurinn þarf ekki að vera fylli- lega rökréttur, en byggist að hluta á því að orðhluti hafi nokkrar mismunandi merkingar. Land merkir til dæmis þurrlendi, árbakki, vatnsbakki, strönd, ríki, landareign, landsvœði, flatur hluti e-s. Þá kemur einnig fram ábending um að forðast þær „samhljóðasamsetningar" á liðamótum samsettra orða, sem óþægilegar verða í framburði. Dæmið, sem þar er tekið um óþægilega eignarfallssamsetningu, er „fisksbúð“ í stað hinnar hefðbundnu og lipru stofn- samsetningar „fiskbúð". Nafnið Landspítali er óneit- anlega þægilegra í framburði en Landsspítali. Landspítali í ritmálsskrá Orðabókar Háskólans má finna bæði orðin: landsspítali (heimild frá 1863) og landspítali (frá 1896). „Landsspítali“ virðist því upprunalegri orðmynd, en Ijóst er að snemma hefur það gerst að annað „s“-ið hafi stundum fallið brott. I ritmáls- skrána hafa einnig verið skráð nokkur margsamsett orð, sem ýmist innihalda eitt „s“ eða tvö: landsspítala- hugmynd, landspítalamál, landsspítalamál (frá 1917), landspítalasjóður (frá 1927), landsspítalastofnun (frá 1897), landspítalaskortur (frá 1897) og landsspítala- þörf (frá 1917). Ákveðin hefð virðist því ekki hafa myndast á þessum árum. Vilmundur Jónsson, landlæknir, fjallar ítarlega um stofnun Sjúkrahúss Reykjavíkur árið 1866 (Lækning- ar og saga 1969) og rekur margt úr þeirri umræðu sem fram fór á næstu áratugum um stofnun kennslu- spítala. í þeirri umfjöllun er alltaf notað heitið „landsspítali". Gunnar M. Magnús segir frá því í Landspítalabók- inni (Ríkisspítalar 1981) að á fyrsta almenna lækna- fundinum í Reykjavík (árið 1896) hafi eitt af dagskrár- málunum verið „Landsspítali“ og að rúmum 30 árum seinna, þegar spítalinn hafði verið reistur, var sett lágmynd á burst hans sem bar áletrunina „Landsspítali íslands“. Þessi áletrun sést nú ekki en yfir suðurdyrum er áletrunin „Landsspítalinn“. Sjálfur notar Gunnar heitið „Landspítali" í umfjöllun sinni en gefur ekki neina vísbendingu um það hvenær „s“-ið hafi fallið brott. Lengra komst undirritaður ekki með þessa sögulegu athugun og veit ekki enn hvort eða hvenær tekin hafi verið formleg ákvörðun um breytinguna.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.