Læknablaðið - 15.04.2000, Qupperneq 27
FRÆÐIGREINAR / HEILSUTENGD LIFSGÆÐI
Mynd 3. Konur telja
heilsutengd lífsgœði sín
marktœkt lakari í heild en
karlar og á öllum kvörð-
um nema samskiptum,
einbeitingu ogfjárhag.
Tafla III. Niðurstöður þáttagreiningar sem sýna hvað skýrir mest af breytileika niöurstaðna prófsins.
Þáttur Skýrður breytileiki % Skýrt alls %
Almennt heilsufar 23,5 23,5
Andleg líöan 20,5 44,0
Ánægja 9,1 53,1
Fjárhagur 6,9 60,0
Svefn 6,3 66,3
eru karlar að meðaltali ívið ánægðari en konur,
mælt á kvarðanum 1-10 (karlar 7,48, konur 7,19;
p=0,033). Anægjan minnkar með hækkandi aldri
(20-49 ára 7,53; 50-69 ára 7,26 og 70 ára og eldri
7,07; p=0,008). Rúmlega 5% svarenda töldu heilsu-
far sitt slæmt, marktækt fleiri konur en karlar
(p=0,006) og fleiri eftir því sem þeir voru eldri
(p<0,0001).
mennt heilsufar (23,4%), andleg líðan (20,5%),
ánægja (9,0%), svefn (6,9%) og fjárhagur (6,3%)
(tafla III). I almennu heilsufari felast nokkurn
veginn sömu atriði og í prófþáttunum almenn
heilsa, líkamsheilsa og þrek. Andleg líðan nær
fyrst og fremst til depurðar, kvíða og sjálfsstjórnar.
Fjárhagur og svefn byggist aðallega upp af sömu
þáttum og áður. I þættinum ánægja vega þyngst
spurningar um ánægju með lífið í dag, ánægju með
félagslega stöðu og ánægju með frístundir.
Til samanburðar við fjölþjóðlegu könnunina
sem áður er getið voru athuguð sérstaklega svör
við spumingunum um heilsufar og „ertu ánægð(ur)
með líf þitt eins og það er í dag?“. Samkvæmt þeim
Umræða
Þeir sem leitað var til í rannsókninni voru fundnir
sem tilviljunarúrtak úr ákveðnum aldurshópum í
þjóðskrá. Niðurstöðurnar er því ekki hægt að skoða
sem mælingu á heilsutengdum lífsgæðum hjá heil-
brigðu fólki, heldur er um að ræða mat meðal-íslend-
ings, sem er fær um og vill svara spurningalista sem
lagður eru fyrir hann, á heilsutengdum lífsgæðum sín-
um. Til þess að prófið sé nothæft þurfa mælingarnar
að vera réttmætar, áreiðanlegar og næmar fyrir
breytingum. Mismunandi lífsgæði skilgreindra hópa
(4,6) og breytingar á lífsgæðum sem mælast með
prófinu sýna réttmæti þess. (Óbirtar niðurstöður úr
rannsókn sem verið er að vinna að.)
Mynd 4. Heilsutengd lífs-
gæði versna í heild með
hœkkandi aldri, sérstak-
lega heilsufar almennt,
þrek og líkamsheilsa.
Læknablaðið 2000/86 255