Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.04.2000, Page 78

Læknablaðið - 15.04.2000, Page 78
UMRÆÐA & FRÉTTIR / LEIÐBEININGAR UM STÖÐUVAL Matthías Kjeld Höfundur er sérfræðingur í meinefnafræði á rannsókna- stofu Landspítala Hringbraut. Messías - hinn síðari „ - og tvö þúsund árum síðar komst þú, komst þú - “ ÍSLENSKUR PRÓFESSOR VIÐ LÆKNADEILD KÍngS Col- lege í London, Ingvar Bjarnason, vakti upp nokkra umræðu um stöðuveitingar í læknadeild Háskóla íslands rétt fyrir síðustu jól. í kjölfarið urðu nokkrar umræður í rafpósti (e-mail) milli nokkurra helstu leikara í leikritinu Prófessorsstaða í lífefnafrœði sem fært var upp fyrir nokkrum árum. Ekki er með vissu vitað hver er höfundur verksins enda ekki útilokað að hann hafi verið undir áhrifum æðri máttarvalda og því erfitt um vik að eigna sér eða hafna stykkinu. Umsækjendum um stöðuna var ýmist boðið að sækja um hana ellegar að þeir gerðu það af hollustu við hefðir samfélagsins, þar á meðal undirritaður. Var nú skipuð þriggja manna dómnefnd sem deildarforseti talaði lítið við. Dómnefndin (mats- nefndin) mun því hafa fengið vitrun og sá strax að hún gæti ekki notað jarðbundnar leiðbeiningar lækna- deildar, sem þá giltu, um val í kennarastöður. Sam- þykkti hún því sínar eigin leiðbeiningar (guidelines) sem birtust á ensku, en einn nefndarmanna, kapps- fullur sameindalífefnafræðingur, var Breti, nú starf- andi í Ástralíu, horfinn frumsýningarströndum. Guidelines for the evaluation committee (Lausleg íslensk þýðing) „Matsnefndin hefur samþykkt eftirfarandi leiðbein- ingar: Lífefnafræðideild Háskólans hefur möguleika á að verða brennipunktur læknisfræðilegra grunnrann- sókna fyrir allt ísland, ekki aðeins í lífefnafræði held- ur einnig í sameindaerfðafræði svo og klínískri erfða- fræði, læknisfræðilegri líftækni og sameindafræði- legri meinafræði. Það þýðingarmesta kann þó að vera að svið lífefnafræðinnar er að færast út og með tilkomu sameindalíffræði og erfðafræði verður það nú aflmikið fag sem verður að vökva og eiga sam- skipti við mörg önnur klínísk og meinafræðileg fög. Með þetta í huga verður auðveldara að ákveða persónu þá sem ætti að verða ráðin. Hann eða hún ætti auðvitað að hafa til að bera hinar venjulegu dyggðir þess sem hefur getið sér mikils orðstírs á sviði lækna- og lífvísinda, með áhuga á lífefnafræði/ sameindalíffræði/sameindaerfðafræði. Hann eða hún ætti að vera góður uppfræðari og kennari. Vegna tengsla við árið 1994 og Háskóla íslands er samt sem áður um frekari nauðsyn að ræða - ráðningu fram- sýnnar manneskju sem á auðvelt með tjáskipti og getur haft forystu fyrir mörgum á öðrum sviðum, án þess að hóta þeim með því að láta líta svo út sem hún muni óska eftir að „taka allt yfir til sín“ eða fram- kvæma hluti án skilnings á heildaráhrifum þess fyrir Háskólann og þjóðina alla. Þegar besti umsækjandinn er kosinn verða einstaklingsbundin færni og alhliða forystuhæfileikar jafn mikilvæg og vísindaleg eða læknisfræðileg sérkunnátta sem slík. Líklegt er að persóna sú sem kosin verður hafi unnið bæði á íslandi og erlendis á sviði sem hefur framtíðarmöguleika. Bestu umsækjendurnir eru ekki líklegir til að vera eldri en 45 ára og ekki yngri en 35 ára nema um algera undantekningu sé að ræða. Þeir ættu að hafa í ritskrá sinni merki um stöðugan fjölda af árlegum ritrýndum greinum sem birst hafa í góðum vísindatímaritum. Vænta mætti þess að umsækjendur hefðu stjómunarreynslu. Ef til vill er þó mikilvægast af öllu að fram komi vitnisburður um að umsækjand- inn hafi til að bera sveigjanleg og þróttmikil tök á líf- og læknisfræðilegum vísindum til þess að tryggja að sá sem ráðinn verður geti hámarkað forystuhlutverk sitt á víðum grunni næstu tvo áratugina.“ Eftir lestur þessarar hógværu samþykktar fyrir næstu tuttugu ár kemur manni í hug kvæði Steins Steinarrs, Mannkynssaga fyrir byrjendur: Og sjö þúsund árum síðar kom Ghagga Ghú. Um Ghagga Ghú finnst hvergi nein heimild nú. Og sjö þúsund árum síðar komst þú, komst þú. Á flugi nær sólu hitar mjök svo sem reyna mátti Ikarus forðum áður en hann féll í sjóinn, eins og pró- fessorstaðan gerði nú. Sóknarhiti Ieiksins kann að valda nokkru um að erfitt er að ráða í hvort að baki framangreindum leiðbeiningum hefur staðið inn- blástur eða - útblástur, ellegar þá önnur tegund blást- urs sem líka var þekkt á tímum Sing Sing Hó. 300 Læknablaðið 2000/86
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.