Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.04.2000, Page 80

Læknablaðið - 15.04.2000, Page 80
UMRÆÐA & FRETTIR / MENNTUNARMAL LÆKNA Endurmenntun Guðjón Lárusson Höfundur er sérfræðingur í efnaskipta- og innkirtla- lækningum. Um síðustu áramót bárust pær fréttir, að lækn- ar á Sjúkrahúsi Reykjavíkur hefðu tekið upp sérstakt endurmenntunarkerfi. Byggist það á því, að vissum fjölda punkta er safnað yfir ákveðinn tíma. Svo og svo margir punktar fást fyrir samningu og flutning fyrirlestrar, svo og svo margir fyrir að sitja námskeið eða þing, innlend eða erlend. Petta svokallaða punktakerfí hefur árum saman verið vel þekkt í Bandaríkjunum. Tilgangurinn með þessu er sá að reyna að tryggja sem best endurmenntun lækna og er að öllu leyti lofs- verður. Ekki er þó alveg ljóst um viðurlög, ef ein- hverjum þætti of mikið á sig lagt. Þetta frumkvæði gaf mér tilefni til að rifja upp nokkur atriði úr sögu St. Jósefsspítala á Landakoti. Formlegir, skráðir fræðslufundir hófust þar 2. október 1965, svonefndir laugardagsfundir. kl. 8.15 þótt stakir fundir og fyrirlestrar hafi verið haldnir þar áður. Læknaráð var stofnað 1968, hið fyrsta á íslenskum spítala. Samhliða því var krafist 75% skyldumætingar á læknaráðsfundi og laugardagsfundi. Viðurlögin voru einföld: missir starfsleyfis á spítalanum, eða eins og segir í upprunalegu reglugerð læknaráðs: „Starfandi sérfræðingum spítalans er skylt að sækja læknaráðs- fundi. Sæki þeir ekki 3/4 hluta funda yfir árið, nema forföll hamli, sem stjórn læknaráðs tekur gild, er litið svo á, að sá sérfræðingur óski eftir að hætta störfum við spítalann. Sama gildir um nefndarfundi og viku- lega fundi um læknisfræðileg efni (laugardagsfundi).“ Kvaðir þessar voru augljóslega settar til þess að tryggja annarsvegar þátttöku allra lækna í starfsemi læknaráðs, en tilgangurinn með stofnun þess, var að bera faglega ábyrgð á staðli spítalans. A þeim tíma voru ekki allir læknar Landakots, frekar en annars staðar, sammála um að þörf væri á slíkum staðli. Hinsvegar sá að tryggja eftir mætti, að læknarnir héldu menntun sinni við. I september 1973 samþykkti læknaráð viðauka við reglugerðina, þar sem bætt var inn skilyrði um að sér- fræðingarnir „...noti nokkuð af efniviði spítalans og þá væntanlega fyrst og fremst eigin sjúklinga til rann- sóknarstarfa, og er það skilyrði til þess að halda vinnuaðstöðu við sjúkrahúsið (leturbreyting GL). Þykir hæfilegt lágmark að hver læknir skili einu verki fyrir hver þrjú ár, sem hann starfar við spítalann. Skili hann fleiri verkum en einu á þriggja ára fresti, hefur hann unnið af sér þrjú ár fyrir hvert fullgilt verk, sem hann skilar. Þetta eru fullgild verk: 1. Grein birt í viðurkenndu læknariti. 2. Erindi flutt á læknaþingi. 3. Erindi flutt á almennum fundi í LR og sé það byggt á eigin efniviði en ekki yfirlitserindi....“ A árinu 1978 voru endurmenntunarákvæði lækna- ráðs endurskoðuð og tekið upp punktakerfí. Krafist var að lágmarki 100 punkta á tveimur árum. Árið 1986 var punktakerfið endurskoðað og lækn- unum þá gert að safna 150 punktum á tveimur árum. Fræðslunefnd læknaráðs fylgdist reglulega með því að ákvæðin voru uppfyllt og kom aldrei til vandræða vegna þess. Þessar hugleiðingar eru ekki skrifaðar til að gera lítið úr framtaki lækna á Sjúkrahúsi Reykjavíkur, sem er hið besta mál. Vonandi leggst það ekki af við sam- einingu spítalanna. Mér fannst þó ástæða til að leggja áherslu á, að endurmenntunarkerfi var við lýði á Landakoti fyrir meir en 30 árum og punktakerfi fyrir meir en 20 ár- um. Mér er ekki kunnugt um, að slík ákvæði hafi ver- ið til á neinum öðrum íslenskum spítala þá eða fyrr en nú, eða að nein önnur heilbrigðisstétt - eða yfirleitt neinir aðrir - hafi lagt svipaðar kvaðir á sjálfa sig. 302 Læknablaðið 2000/86
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.