Læknablaðið - 15.04.2000, Blaðsíða 94
RÁÐSTEFN U R / STYRKIR / FUNDIR
XIV. þing Félags
íslenskra lyflækna
Þing Félags íslenskra lyf-
lækna, hið XIV. í röðinni
verður haldið á Egils-
stöðum dagana 9.-11.
júní næstkomandi.
Á þinginu verður að venju
frjáls erindaflutningur og
kynning á veggspjöldum.
Gestafyrirlesari verður
Guðmundur Jóhannsson
sem fjalla mun um vaxt-
arhormón.
Skilafrestur fyrir ágrip
erinda og veggspjalda er
15. apríl. Höfundar taki
strax fram:
• Hvort þeir óska eftir að flytja erindi eða birta veggspjald.
• Hvaða útbúnað þeir óska eftir að nota við flutning erindis og hvort þeir hafi útbúnað meðferðis, svo sem fis-
tölvur, og þá með hvaða forriti.
• Gefi upp netfang.
Veggspjöld: Stærð veggspjalda er 90x120 cm. Höfundar komi með veggspjöld tilbúin til uppsetningar.
Ágrip: Frágangur ágripa verði eftirfarandi: titill, nöfn höfunda, nafn flytjanda feitletrað, vinnustaðir með tilvísun til
höfunda, inngangur, efniviður og aðferðir, niðurstöður, ályktanir. Semja þarf sérstaklega um birtingu mynda og
grafa. Hámarkslengd ágrips er 1800 letureiningar (characters with spaces). Ágrip skal senda í tölvupósti sem
viðhengi til framkvæmdastjóra þingsins Birnu Þórðardóttur, sjá netfang að neðan. Ágrip sem ekki er unnt að
senda rafrænt sendist á disklingi með útprenti til BÞ, Læknablaðinu, Hlíðasmára 8, 200 Kópavogi.
Stjórn Félags íslenskra lyflækna áskilur sér rétt til þess að hafna innsendum ágripum og eins að meta hvort kynnt
verði með erindi eða veggspjaldi. Þau ágrip erinda og veggspjalda sem stjórn Félags íslenskra lyflækna samþykk-
ir verða birt í Fylgiriti Læknablaðsins sem kemur út í byrjun júní.
Skráning: Framkvæmdastjóri tekur við skráningu, þátttakendur er hvattir til að skrá sig tímanlega.
Þátttökugjald: Þátttökugjald er kr. 13.000 fullt gjald, kr. 10.000 fyrir unglækna og kr. 3000 fyrir læknanema,
greiðist við skráningu á þingstað. Innifalið í þátttökugjaldi er hádegisverður laugardag og sunnudag. Auk þess
sem þátttakendum er boðið til kvöldverðar bæði á föstudags- og laugardagskvöldi. Ekki er tekið við greiðslukort-
um, en hraðbankar eru á staðnum.
Gisting: Gist verður á fjórum hótelum á Egilsstöðum, Hótel Eddu, Gistihúsinu, Valaskjálf og Hótel Héraði. í
tveggja manna herbergi kostar nóttin frá kr. 4.400 að kr. 5.800 fyrir einstakling. Gistingu skal panta hjá fram-
kvæmdastjóra þingsins frá og með 17. apríl næstkomandi, sjá síma að neðan.
Flug: Flogið er með Flugfélagi íslands, verð kr. 10.430. Flugfar pantar hver og einn fyrir sig. Taka skal fram að um
sé að ræða þátttakendur á þing Félags íslenskra lyflækna.
Framkvæmdastjóri þingsins: Birna Þórðardóttir, símar: 564 4104 (v) / 552 9075 (h) / 862 8031, netfang:
birna@icemed.is
FELAG
ÍSLENSKRA
LYFLÆKNA
Félag íslenskra gigtarlækna
auglýsir til umsóknar 1-2 styrki samtals að upphæð kr. 400 þúsund. Styrkurinn er einkum ætlaður læknum sem
eru í eða hafa nýlokið sérnámi í gigtarlækningum og stunda gigtarrannsóknir á íslandi. Einnig geta læknanemar
og unglæknar sem stunda gigtarrannsóknir undir handleiðslu gigtarlækna sótt um styrkinn.
Umsóknum með lýsingu á verkefni,kostnaðaráætlun og ferilsskrá umsækjanda skal skila til stjórnar FÍG c/o Árni
Jón Geirsson lyfjadeild Landspítala Hringbraut, 101 Reykjavík, fyrir 01.05. 2000.
314 Læknablaðið 2000/86