Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.04.2000, Page 99

Læknablaðið - 15.04.2000, Page 99
Nuvelle (Schering) TÖFLUR; G 03 F B 01 R, E Hver pakkning inniheldur 16 hvítar og 12 bleikar töflur. Hver hvít tafla inniheldur: Estradiolum INN, valerat, 2 mg. Hver bleik tafla inniheldur: Estradiolum INN, valerat, 2 mg, Levonorgestrelum INN 75 mícróg. Eiginleikar: Nuvelle inniheldur estradíól valerat (valerinsýru ester af náttúrulega estrógen kvenhormóninu, estradíól) og sam- tengt prógestogen, levónorgestrel. Estradíól valerat bætir upp minnkaða estrógenframleiðslu í líkamanum við tíðahvörf. Levónorgestrel viöbót á síöari hluta hvers tímabils viðheldur reglulegum tíðahring og vinnur gegn ofvexti í legslímhúð. Estra- díól valerat og levónorgestrel frásogast vel frá meltingarvegi og koma fram í blóði innan 15 mín. Viö frásog og fyrstu umferð um lifur klofnar estradíól valerat í estradíól og valerin sýru. Á sama tíma umbrotnar estradíól áfram og er virkasta umbrotsefnið estrón. Próteinbinding estradíóls er 97%. Estradíól valerat er ekki útskilið á óbreyttu formi umbrotsefni estradíóls eru skilin út í þvagi og galli. Levónorgestrel er útskiliö sem óvirk umbrots- efni í þvagi og saur. Ábendingar: Uppbótarmeðferð við einkennum estrógenskorts við tíðahvörf. Til varnar beinþynningu hjá konum með aukna áhættu á beinþynningu (þ.e. eftir brottnám eggjastokka, snemm- bær tíðahvörf, ættgeng tilhneiging til beinþynningar, skert hreyfigeta og langvinn meöferö meö sterum og konur undir kjör- þyngd). Nuvelle dugir ekki sem getnaðarvörn. Frábendingar: Þungun, truflun á lifrarstarfsemi, gula eða þrá- látur kláði á fyrri meðgöngu, Dubin-Johnsons heilkenni, Rotor heilkenni, segabláæöabólga eða blóðsegamyndun eða saga um það, sigðfrumublóðleysi, grunur um hormónatengda sjúkdóma eða æxli í legi og brjóstum, ógreind óregluleg blæðing frá legi, truflun á blóöfituefnaskiptum, saga um meðgöngubólu (herpes gestationis), otosclerosis sem hefur versnað viö fyrri meðgöngu, endometriosis, alvarleg sykursýki með æðabreytingum, brjósta- kvilli (mastopathy). Meðganga og brjóstagjöf: Lyfiö á hvorki að nota á með- göngutíma né af konum með barn á brjósti. Aukaverkanir: Langvarandi einhliða meöferö með estrógenum getur hugsanlega aukið líkur á illkynja æxlum í legbolsslímhúð og brjóstum, en sú hætta minnkar við notkun estrógen-gestagen blöndu, sem líkir eftir hormónaferli tíöahringsins. Fyrstu mánuöi meðferðarinnar getur borið á milliblæð- ingum og spennu í brjóstum. Þetta eru venjulega tíma- bundin einkenni og hverfa við áframhaldandi meðferð. Algengar (>1%): Brjóstaspenna, höfuðverkur, blæöingatrufl- anir. Sjaldgæfar (0,1-1%): Bjúgur, vökvasöfnun, uppþemba og aukin matarlyst. Önnur einkenni sem geta komiö fram eru: kvíði, hjartsláttarónot, depurð, svimi, meltingatruflanir, verkir í fótum, breytingar á kyn- hvöt, ógleöi, útbrot, uppköst, þyngdarbreyting. Uppbótarmeð- ferö með östrógenum eykur hættu á blóösegamyndun. Milliverkanir: Hætta skal notkun á hormónagetnaðarvörnum þegar meðferð hefst með Nuvelle og nota getnaðarvarnir sem ekki innihalda hormón. Lyf sem virkja lifrarenzým, t.d. barbit- úröt, flogaveikilyf og rífampicín, geta dregið úr verkunum lyfs- ins. Varúð: Hætta skal töku lyfsins þegar í stað ef grunur er um þungun, ef mígreni eöa slæm höfuðverkjarköst byrja eða versna við töku, ef slys, sjúkdómur eða ráögerð skurðaðgerö eru talin geta aukið hættu á segamyndun, við gulu, lifrabólgu, versnun á flogaveiki og viö verulega hækkun á blóðþrýstingi, við merki um blóðtappa, bláæðabólgu eða segarek. Fyrirliggjandi sléttvöðva- hnútar í legi geta stækkað vegna áhrifa frá estrógenum. Ef þetta kemur í Ijós á að hætta meðferð. Hjá sjúklingum með vægan langvinnan lifrarsjúkdóm á að fylgj- ast með lifrarstarfsemi á 8-12 vikna fresti. Endurtekin milliblæð- ing á meðan á meðferð stendur kallar á athugun á legslímu og jafnvel töku vefjasýnis. Örsjaldan hafa komið fram góðkynja og enn sjaldnar illkynja æxli í lifur við notkun hormónalyfja af svipuöu tagi og Nuvelle. Af þessum sökum skal hafa lifraræxli í huga viö greiningu ef kviðverkir, stækkuð lifur eöa merki um blæöingar í kviðaholi koma fyrir. Athugið: Lyfið skal einungis gefið eftir nákvæma almenna læknisskoðun og kvenskoöun. Slíka skoöun á að endurtaka a.m.k. einu sinni á ári við langtímameðferð, en að auki í hvert sinn sem ber á truflunum á blæðingum. Áöur en meðferö hefst þarf að útiloka að þungun sé til staðar. Skammtastærðir handa fullorðnum: 1 tafla daglega. Meö- ferð hefst á 5. degi tíða eða á hvaða degi sem er eftir tíðahvörf. Fyrstu 16 dagana eru hvítu töflurnar teknar og síðari 12 dagana bleiku töflurnar. Blæðing, lík tíðum, kemur 2-3 dögum eftir að byrjað hefur veriö á nýrri pakkningu. Ekki er gert hlé á milli pakkninga. Skammtastærðir handa börnum: Lyfið er ekki ætlað börn- um. Læknum skal bent á að lesa varnaðarorð og varúðar- reglur í nýjustu útgáfu sérlyfjaskrár. Pakkningar: 28 stk. (þynnupakkaö) x 1; 28 stk. (þynnupakk- að) x 3. Heimildir: Marslew. U.et al. „Two new combinations of estro- gen and progestogen for prevention of postmenopausal bone loss: long term effects on bone, calcium and lipid metabolism, climacteric symptoms and bleeding." Obst.Gyn.1992; 79(2); 1-9. 2. Kenemans. P. et al. „Practical HRT“. Medical Forum lnt.1996. 3. Whitehead. M.l. „Prevention of endometrial abnormalities" Acta Obstet. Gynaecol. Scand. 1996; 134: 81-91. UIS-00-18- 15.02.2000 nuve lle* ÖSTRADÍÓLVALERAT + LEVÚNORGES TREL Ákjósanleg lágskammtameðferð með östrogeni í 28 daga að viðbœttu gestageni í 12 daga. Thorarensen Lyf Vacrugarðar 18 - 104 Rtykjavík - Sfmi 530 7100 • Fax 530 7101 SCHERING
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.