Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.07.2000, Síða 36

Læknablaðið - 15.07.2000, Síða 36
r FRÆÐIGREINAR / BARNALÆKNISFRÆÐI Table 1. Height and weight oflcelandic boys 6-20 years ofage. Height was measured in standing and sitting positions. Mean values and standard deviation (SD) are given for each age group. Age No Height (cm) Height SD Weight (kg) Weight SD Height sitting (cm) Ht.s. SD 6 97 120.04 4.95 22.73 2.61 66.93 2.61 7 243 124.28 5.28 24.85 3.86 69.1 2.93 8 275 129.89 5.54 27.45 4.46 71.14 3.04 9 262 135.73 7.37 30.76 6.02 73.76 3.45 10 306 140.6 5.83 34.03 6.12 75.47 2.86 11 312 145.81 6.74 37.71 6.46 77.6 3.28 12 288 151.4 6.8 42.05 7.97 79.65 3.64 13 272 158.04 8.96 47.32 9.79 82.6 4.5 14 307 165.27 8.65 53.29 11.33 86.43 4.81 15 240 171.82 9.1 59.38 11.85 89.87 5.2 16 195 176.13 6.89 65.53 9.79 92.55 4.04 17 142 178.6 5.7 70.04 8.38 93.21 3.25 18 104 180.09 5.91 73.12 9 94.7 2.7 19 103 180.04 6.61 73.23 9.53 94.83 3.27 20 96 180.61 6.16 76.76 11.37 95.26 3.15 Table II. Height and weight oflcelandic girls 6-18 years ofage. Height was measured in standing and sitting positions. Mean values and standard deviation (SD) are given for each age group. Age No Height (cm) Height SD Weight (kg) Weight SD Height sitting (cm) Ht.s. SD 6 78 119.15 5.18 22.62 3.24 66.34 2.75 7 286 123.4 5.54 24.31 4.01 68.21 3.17 8 231 128.39 5.61 27.08 4.46 70.52 3.27 9 279 133.88 5.87 30.02 5.13 72.66 3.07 10 292 139.8 6.69 34.14 7.07 75.15 3.6 11 329 146.23 7.6 38.15 7.68 77.97 4.5 12 269 152.64 7.14 44.01 9.24 81.13 4.02 13 287 158.63 7.26 48.35 8.92 84.2 4.2 14 275 163.08 5.83 53.62 8.59 86.99 3.51 15 244 165.31 5.56 56.61 9.7 88.4 3.22 16 228 165.16 5.7 57.28 8.08 88.41 3 17 151 166.08 5.23 61.41 9.36 88.74 2.63 18 114 167.24 5.92 62.56 8.78 89.28 2.93 reykvískra skólabama á aldrinum 7-17 ára, en þær töflur voru hvorki notaðar við klíníska vinnu né til að búa til vaxtarlínurit (4). í rannsóknargögnum Hjarta- verndar hafa verið birtar tölur um hæð og þyngd fullorðinna fslendinga á ýmsum aldursskeiðum (5,6). Á vegum Mannfræðistofnunar Háskóla íslands hafa verið gerðar ýmsar mannfræðirannsóknir á vissum hópum íslendinga, þar á meðal mælingar á hæð (7). Mælinganiðurstöður hafa ekki áður verið birtar um sethæð íslenskra barna og unglinga. Mælingar á sethæð geta gefið mikilvægar upplýsingar um líkams- hlutföll og geta verið gagnlegar við greiningar á sjúk- dómum er raska vexti barna, til dæmis Marfans heil- kenni og ýmsum afbrigðum beina og brjósksjúkdóma sem valda dvergvexti. Ennfremur gætu niðurstöður þeirra mælinga komið að notum við hönnun hús- gagna fyrir börn. Engar staðlaðar rannsóknir hafa áður verið gerð- ar á vexti og þroska íslenskra barna og hafa því ein- göngu verið notuð erlend vaxtarlínurit við heilbrigð- iseftirlit barna á íslandi. Rannsókn sú, sem hér er sagt frá, er hluti af stærri þverskurðarrannsókn á vexti, þroska og næringarástandi íslenskra barna og ung- linga á aldrinum 6-20 ára. Efniviður og aðferðir Nemendur í grunnskólum og framhaldsskólum víðs vegar um landið tóku þátt í rannsókninni. Foreldrum eða forráðamönnum var sent bréf þar sem rannsókn- inni var lýst og fengið skriflegt samþykki þeirra fyrir þátttöku barnanna. Tölvunefnd samþykkti að úrtakshópurinn yrði valinn úr þjóðskrá og í upphafi var valinn úrtakshóp- ur barna af höfuðborgarsvæðinu á aldrinum 6-16 ára. Af tölfræðilegum ástæðum var hópurinn valinn þannig, að öll skólabörn sem fædd voru fjórða hvern dag hvers mánaðar, það er 1.-5.-9.-13. og svo fram- vegis voru beðin um að taka þátt í rannsókninni. Uti- lokuð frá rannsókninni voru börn og unglingar með líkamlegar fatlanir eða langvinna sjúkdóma, sem hugsanlega gætu haft áhrif á vöxt þeirra. Utan höfuðborgarsvæðisins voru valdir ákveðnir grunnskólar og framhaldsskólar í öllum landsfjórðung- um og allir nemendur viðkomandi skóla rannsakaðir. Fengið var leyfi skólayfirvalda til að rannsóknin færi fram í húsnæði grunnskólanna og veittu skóla- hjúkrunarfræðingar viðkomandi skóla aðstoð við undirbúning og framkvæmd rannsóknarinnar. For- eldrar eða forráðamenn gáfu skriflegt samþykki fyrir þátttöku barnanna. Rannsóknin, það er mælingar og skoðun barn- anna, fór fram á árabilinu 1983-1987 og var fram- kvæmd af höfundum þessarar greinar sem allir eru barnalæknar. í árslok 1989 voru framkvæmdar við- bótarmælingar í framhaldsskólum á þeim unglingum sem voru á aldrinum 17-20 ára. Eftirfarandi upplýs- ingar voru skráðar þegar þær fengust: Fæðingarþyngd, fjöldi systkina og röð barnsins í hópi systkina, hvort barnið var fleirburi, fjölskyldu- stærð, aldur foreldra og störf. í heilsufarssögu komu fram upplýsingar um uppruna barnsins (þjóðerni/ kynþáttur), langvinna sjúkdóma og sjúkrahúslegur. Hæð barnana var mæld með Harpenden stadio- meter (8). Börnin voru mæld í uppréttri stöðu, ber- fætt og þrýst var létt undir kjálkabörð til að rétta vel úr hálsi (standandi mæling). Börnin voru einnig mæld sitjandi á sérsmíðuðum stól, 40 cm háum. Sethæð var skilgreind sem mæld hæð frá hvirfli að stólsetu. Síðan voru börnin vegin léttklædd með lög- giltri reisluvog. Mesta höfuðummál var mælt með stálmálbandi. Auk almennar líkamsskoðunar var kynþroskastig ákvarðað samkvæmt kvarða Tanners (9). Stúlkur með kynþroskastig tvö eða meira voru spurðar hvort tíðablæðingar væru hafnar og svar skráð: Já eða nei. Húðfitulag var mælt með Harpenden húðþykkt- armæli neðan herðablaðs (subscapuler) og aftan á upphandlegg (triceps). Tölulegar niðurstöður rannsóknanna voru skráð- ar inn í tölvuforrit (Filemaker Pro). Hvert aldursár var skilgreint þannig að öll börn fædd frá og með -0,50 ár til og með +0,49 ár voru reiknuð saman í ein- 510 Læknablaðið 2000/86

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.