Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.07.2000, Page 39

Læknablaðið - 15.07.2000, Page 39
FRÆÐIGREINAR / BARNALÆKNISFRÆÐI Figure 1. Icelandic boys 6-20 years of age. Height for age. Mean values ± I and 2 slandard deviation. Figure 2. Icelandic boys 6-20 years ofage. Weight for age. Mean values ±1 and 2 standard deviation. um hópi. Dæmi um skilgreiningu aldursárs: Til sjö ára aldurshópsins töldust öll böm sem voru frá og með 6,50 ára til og með 7,49 ára. I tölvuforritinu voru reiknuð meðaltöl og staðal- frávik hvers aldursárs samkvæmt áðurgreindri skil- greiningu og töflur gerðar fyrir hæð, sethæð og þyngd hvors kyns fyrir sig. Úr töflunum voru síðan gerð vaxt- arlínurit með línuritaforriti Excel. Við tölfræðilega út- reikninga var notuð fervikagreining (ANOVA). Bon- ferrini eftirpróf var notað til að kanna marktækni milli aldurshópa. Niðurstöður I rannsókninni tóku þátt 3173 stúlkur og 3327 dreng- ir, samtals 6500 böm og unglingar og var það meira en 95% af úrtakshópnum. Tafla I sýnir fjölda stúlkna í hverjum aldurshópi, meðalhæð þeirra, meðalþyngd og meðalsethæð ásamt staðalfrávikum. Tafla II sýnir sambærilegar niðurstöður fyrir drengi. Ekki fannst tölfræðilega marktæk aukning í vexti pilta eftir 18 ára aldur og stúlkna eftir 17 ára aldur. Á myndum 1 og 2 eru birt línurit yfir hæð og þyngd íslenskra drengja á aldrinum 6-20 ára. Á myndum 3 og 4 em á sama hátt birt línurit yfir hæð og þyngd íslenskra stúlkna 6-18 ára. Á myndum 5 og 6 eru birt Iínurit yfir sethæð íslenskra drengja og stúlkna. Línuritin sýna meðaltalslínu og línur fyrir eitt og tvö staðalfrávik ofan og neðan meðaltalsins. Gerður var samanburður á niðurstöðum á mæl- ingum barna á Reykjavíkursvæðinu og barna á landsbyggðinni. Ekki kom fram neinn marktækur munur. Umræða Tvær aðferðir eru aðallega notaðar til rannsókna á vexti og þroska barna og unglinga. Annars vegar langtíma (longitudinal) rannsókn þar sem fylgt er eftir vexti hvers barns frá fæðingu til fullvaxtar og mælingagildi skráð með vissu millibili (8,10,11). Hins vegar þverskurðar- (cross sectional) rannsókn, þar sem börn úr öllum aldurshópum eru mæld á sama tíma eins og gert var í okkar rannsókn (12,13). Báðar aðferðirnar hafa sína annmarka. Langtímarannsókn- ir taka að minnsta kosti tvo áratugi og eru erfiðar í framkvæmd. Úrtakið á að endurspegla vaxtarferli heillar þjóðar, en val úrtaksins vill oft verða þröngt og staðbundið. Aldarbreytur (secular trend) geta Læknablaðið 2000/86 511

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.