Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.07.2000, Page 45

Læknablaðið - 15.07.2000, Page 45
FRÆÐIGREINAR / BARNALÆKNINGAR vegna hita og fimm daga sögu um verk í hægri fæti. Hann hafði haft bólgu og roða yfir hægri ökkla í tvo daga. Tveim- ur vikum áður hafði hann verið með útbrot sem samræmst gátu „hand, foot and mouth disease". Líkamsskoðun við innlögn leiddi í ljós 37,5°C hita. Ökklinn var Table I. The description ofthe cases diagnosed with K.kingae infection and the main taboratory results on the day of admission. Case Age mo Sex Site of culture Laboratory results wbc CRP ESR x 109/1 mg/l mm/hour Culture agar asp BACTEC asp blood Antibiotic treatment Type and length in wks i.v. wks p.o. wks i 24 girl left knee 13.8 22 10 - + - cxm 2 aug 3 2 24 boy right tibia 10.5 11 64 - + - amp 1 amx 4 3 18 girl right elbow 14.0 13 15 - + - cxm 3 aug 2 4 19 girl left humerus 10.9 37 40 + + - amp 2 amx 2 5 17 boy blood 14.2 11 15 O O + 0 ery 1 6 24 girl left ankle 12.2 23 35 - + - amp 1 cmx 2 wbc: white blood cell count asp: aspirate +: positive culture amx: amoxicillin CRP: C reactive protein i.v.: intra venous negative culture amp: ampicillin ESR: erythrocyte sedimentation rate p.o.: per os o: not done aug: amoxicillin+clavulanic acid mo: months wks: weeks cxmxefuroxime ery: erythromycin bólginn, heitur, rauður og aumur. Röntgenmynd af ökklanum sýndi bólgu í mjúk- vefjum og ísótópaskann sýndi aukna upptöku í sköfl- ungnum aðlægt ökklaliðnum, ásamt mjúkvefjum ökklaliðarins. Gerð var bein- og liðástunga. Grams- litun var neikvæð en á þriðja degi óx K. kingae úr lið- sýnum þeim sem ræktuð voru í loftháðu blóðræktun- arglösunum en enginn vöxtur var úr beinsýninu (tafla I). Niðurstöður næmisprófa eru sýndar í töflu II. Drengurinn var meðhöndlaður með cefúroxími í æð í fimm daga, síðan ampicillíni í æð í sjö daga og að lokum með amoxicillíni um munn í fjórar vikur. Við eftirlit tveimur mánuðum seinna hafði hann náð sér að fullu. Table II. Antibiotic susceptibility ofK. kingae. Case 1 Case 2 Case 3 Case 4 Case 5 Case 6 Penicillin R s R S R s Ampicillin R s R S R s Cloxacillin 0 R O R R R Cefuroxime S S S S S S Amoxicillin + Clavulanic acid S S S S S S Tetracyclin S S S S S S Erythromycin S S S S S S Clindamycin S 1 0 1 R O Chloramphenicol S S S S S O Sulphamethoxazole + Trimethoprim R R R S R S S: Sensitive; I: Intermediate; R: Resistant; 0: Susceptibility results were not available Sjúkratilfelli 3. Átján mánaða stúlka var lögð inn vegna verkja í vinstri handlegg. Hún hafði undan- farna fimm daga verið með útbrot í munni, á fótum og bleiusvæði. Hún hafði verið meðhöndlun með trímetóprími-súlfametoxazóli í fimm daga. Við skoðun var stúlkan óróleg, hafði 37,9°C hita og vægt nefrennsli. Hún hélt vinstri handlegg að lík- amanum og olnboginn var heitur og rjóður. Röntgen- mynd af olnbogunum sýndi engin merki um beineyð- ingu. Við liðástungu fékkst blóðlitaður liðvökvi. Gramslitun var neikvæð en fimm dögum síðar óx K. kingae úr loftháðu blóðræktunarglösunum (tafla I). Niðurstöður næmisprófa eru sýndar í töflu II. Stúlkan var meðhöndluð með cefúroxími í æð í þrjár vikur og amoxicillíni og klavúlansýru í tvær vik- ur. Við eftirlit tveimur mánuðum seinna hafði stúlk- an náð sér að fullu. Sjúkratilfelli 4. Nítján mánaða stúlka var lögð inn vegna stöðugra verkja í vinstri olnboga sem varað höfðu í tvær vikur. Skömmu áður hafði hún fengið högg á handlegginn. Við skoðun var stúlkan hitalaus en allar hreyfingar í olnboganum voru sársaukafullar. Á röntgenmynd deginum áður sást beineyðing í fjær- enda upphandleggsbeinsins. Gerð var beinástunga og á þriðja degi óx K. kingae á ræktunarskálum og loftháðu blóðræktunar- glösunum (tafla I). Niðurstöður næmisprófa eru sýndar í töflu II. Stúlkan var meðhöndluð með kloxacillíni í æð í fimm daga, ampicillíni í æð í 10 daga og síðan amoxi- cillíni um munn í tvær vikur. Stúlkan hafði náð sér að fullu við eftirlit einum mánuði seinna. Sjúkratilfelli 5. Sautján mánaða drengur var lagður inn vegna verkja í hægri fótlegg. Hann hafði auk þess tveggja vikna sögu um efri öndunarvegasýkingu. Við skoðun var hann hitalaus en með roða í hálsi og hor í nös. Hægri ökkli var dálítið bólginn og húð heit en án roða. Hreyfingar í ökkla voru sársaukafullar. Fylgst var með drengnum án þess að sýklalylja- meðferð væri hafin og daginn eftir var hann ein- kennalaus. Á öðrum degi óx K. kingae úr loftháðum blóðræktunarglösum sem tekin voru við upphafs- skoðun (tafla I). Niðurstöður næmisprófa eru sýndar í töflu II. Drengurinn var kallaður til skoðunar og var áfram einkennalaus. Endurtekin blóðræktun var neikvæð og ísótópaskann var eðlilegt. Sýkingin virtist þannig hafa læknast af sjálfu sér en þrátt fyrir það var hann meðhöndlaður í sjö daga með erýtrómýcíni. Við eftirlit einum mánuði seinna var hann einkennalaus. Sjúkratilfelli 6. Tveggja ára stúlka var lögð inn vegna helti á vinstra fæti og bólgu um vinstri ökkla. Hún hafði veikst með hita og helti fjórum dögum fyrir innlögn. Við skoðun var hún með hita, rúmlega 38°C, ásamt roða og bólgu við vinstri ökkla. Hreyfing í ökklalið var Læknablaðið 2000/86 517

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.