Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.07.2000, Side 52

Læknablaðið - 15.07.2000, Side 52
UMRÆÐA & FRÉTTIR / A F VETTVANGI LÆKNASAMTAKANNA Viðræður Læknafélags íslands og íslenskrar erfðagreiningar Meðfylgjandi bréf sendi formaður Læknafélags íslands öllum félögum í LÍ Til félaga í Læknafélagi íslands Kópavogi 20. júní 2000 Góðu collegar Eins og ykkur öllum er kunnugt ályktaði aðalfundur LI á liðnu ári, að lögum um miðlægan gagnagrunn á heilbrigðissviði (MGH) væri áfátt, þar sem þau gerðu ekki ráð fyrir upplýstu samþykki sjúklings fyrir flutn- ingi heilsufarsupplýsinga í MGH og notkun þeirra þar. Fulltrúar stjórnar LÍ ítrekuðu þessa afstöðu á fundi með heilbrigðisráðherra og starfsmönnum hennar í Heilbrigðisráðuneytinu í nóvember s.l. Lýsti ég því yfir, að ræða mætti samþykki af öðrum toga og án lagabreytinga, en félagið áskildi sér þá allan rétt til að hafa áfram uppi gagnrýni á gagnagrunnslögin og krefjast nauðsynlegra endurbóta á þeim. Ráðherra gaf síðan út starfsleyfi í janúar til Islenskrar erfða- greiningar án þess að í nokkru væri tekið tillit til þessara ábendinga LÍ. í kjölfar þess var afstaða LÍ enn á ný ítrekuð á opinberum vettvangi. í byrjun febrúar hafði Kristján Erlendsson, læknir, f.h. Islenskrar erfðagreiningar (IE) sam- band við mig og kannaði möguleikana á viðræðum um, hvort LÍ og IE gætu fundið sameiginlega lausn á því, hvernig virða mætti sjálfsákvörðunarrétt sjúklinga að því skilyrði uppfylltu, að lausnin yrði ekki sértæk fyrir MGH, heldur altæk fyrir sam- bærilega grunna hér á landi. Var fallist á viðræður á stjórnarfundi LI 8. febrúar og formlegar viðræð- ur teknar upp skömmu seinna. í lok mars var fleirum en undirrituðum orðið ljóst, að lítið hafði miðað og langt í land að sam- eiginleg sýn fyndist, hvað varðaði ýmis kjarnaat- riði. Við Kári Stefánsson, forstjóri ÍE, áttum fund í byrjun apríl, þar sem við urðum ásáttir um að reyna til þrautar að finna leið úr þessum vanda og fá til liðs við okkur Sigurð Guðmundsson, land- lækni og Vilhjálm Árnason, prófessor í heimspeki og formann stjórnar Siðfræðistofnunar Háskóla íslands. Viðræður þessa hóps voru af heiliridum, opinskáar og frjóar og grundvölluðust á plaggi, sem Sigurður og Vilhjálmur lögðu fram til lausnar málinu. Þann 25. f.m. lagði ég fram tillögur að lausn, sem kynntar voru í stjórn LÍ 30. maí. Fékk ég síðan heimild stjórnarinnar að halda viðræðunum áfram á þeim grundvelli. í framhaldi þess átti ég fund með Kára Stefánssyni 2. júní, þar sem hann fékk tillögurnar formlega í hendur. I fáum dráttum byggðust þær á: • að leitað yrði eftir skriflegri upplýstri heimild ein- staklinga til að nota heilsufarsupplýsingar úr sjúkraskrám til rannsókna • að eyða mætti öllum upplýsingum um einstaklinga í MGH skv. þeirra ósk • að opinberar skrár yrðu undanþegnar þessu og um þær yrðu sett sérstök lög • að sérleyfishafinn fengi umþóttunartíma til vinnslu gagna skv. lögum um MGH, en að engin vinnsla/flutningur færi fram eftir tiltekinn „D- dag“ og gögnum um þá, sem ekki hefðu gefið hina skriflegu heimild, yrði þá eytt. Svar við þessum tillögum var boðað innan fárra daga en hefur ekki borist enn. Kœru félagar. Ég hef haft það að leiðarljósi að finna lausn, sem þið gætuð við unað m.t.t. trúnaðarskyldna og með vísan til framtíðar. Ég geri mér grein fyrir, að ekki er hægt að ganga til viðræðna af þessu tagi setj- andi öll sjónarmið fram sem úrslitakosti. Stjórn LÍ hefur staðið vel saman um skrefin í þessu ferli. Þó skal það viðurkennt, að ég hef orðið fyrir gagnrýni að því leyti, að of langt hafi verið seilst til samkomulags. Engar raddir eru um það í forystusveit LÍ, að of skammt hafi verið gengið. Mörg ykkar hafa beðið lengi eftir að niðurstaða fengist í þessum viðræðum. Ánægjulegt hefði ver- ið, að bréf þetta hefði borið þá frétt. Því miður er því ekki þannig farið og ekki ljóst, hvort niður- staða fæst. Ég taldi þó rétt á þessu stigi að þið fengjuð vitneskju um stöðu málsins. I raun erum við stödd á sama stað og í byrjun febrúar. Ekkert er handfast. Því verður hver læknir að eiga það við samvisku sína, hvernig hann bregst við því, sem að höndum ber í gagnagrunnsmálinu á næstu vikum. Frekari leiðsagnar af hendi stjórnar er tæplega að vænta á næstunni nema nýr flötur á málinu komi upp. Með félagskveðju, SlGURBJÖRN SVEINSSON formaður LÍ 522 Læknablaðið 2000/86

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.