Skessuhorn - 27.05.2014, Blaðsíða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 27. MAÍ 2014
Leiðrétting
SKESSUHORN: Í frétt í
síðasta Skessuhorni þar sem
greint var frá heimsókn ung-
linga úr Þorpinu á Akranesi í
fjósið að Eystri-Leirárgörð-
um í Leirársveit, slæddist
inn villa. Þar var ranglega
haft eftir Andreu húsfreyju
að í lausagöngufjósum í
Danmörku, þar sem ró-
bóti er notaður, væri bann-
að að láta kýrnar út til beitar
að sumrinu. „Bannað“ var
ranga orðið í setningunni,
í stað þess átti að standa að
það væri ekki skylda að beita
kúnum að sumrinu og var
meining Andreu við blaða-
mann. Beðist er velvirðing-
ar á þessum mistökum.
-þá
Tilboð á leik
Skagakvenna
og Vals
AKRANES: Í dag, þriðju-
daginn 27. maí, mæta
Skagastúlkur kvennaliði
Vals á Akranesvelli klukk-
an 19:15 í úrvalsdeildinni.
Í hálfleik mun áhorfendum
bjóðast nýtt tilboð, að fá sér
kaffi og kleinur í hátíðarsal
íþróttafélagsins auk happa-
drættismiða fyrir 500 krón-
ur. Í verðlaun verður falleg-
ur gripur úr smiðju Dýr-
finnu Torfadóttur og verður
vinningsmiðinn tilkynntur í
lok leiks.
–jsb
Starfsemi
Efnalaugar
hætt
BORGARNES: Eins og
fram hefur komið í Skessu-
horni hætti Efnalaug Borg-
arfjarðar starfsemi í húsi við
Borgarbraut 55 í Borgarnesi
um páskana. Nýlega kom
fram í frétt hér í blaðinu
að leitað væri að öðru og
hentugra húsnæði í Borg-
arnesi. Eigendur Efnalaug-
ar Borgarfjarðar hafa hins
vegar nú ákveðið að leggja
starfsemi fyrirtækisins nið-
ur, eins og fram kemur í til-
kynningu. Eru vélar og tæki
því til sölu.
-mm
Skessuhorn vill minna alla sem eru
á kosningaaldri á að nýta lögvar-
inn rétt sinn og kjósa.
Útlit er fyrir suðlægar áttir og
fremur milt veður næstu dagana.
Spáð er skúrum á stöku stað og
súldarlofti um mestallt land flesta
dagana, en yfirleitt verði bjart fyrir
norðan. Ágætur hiti verður á land-
inu, einkanlega fyrir norðan en
þó gæti þar gætt þokulofts með
ströndinni þegar líður að helginni.
Í síðustu viku var spurt á vef
Skessuhorns. „Er fjórflokkurinn að
líða undir lok?“ Fólk skiptist algjör-
lega í tvo hnífjafna flokka með af-
stöðu til spurningarinnar, eða um
45% í hvorn fyrir sig. „Já örugg-
lega“ sögðu 26,06% og „já lík-
lega“ 19,26%. „Nei, örugglega ekki“
sögðu 24,93% og „nei, sennilega
ekki“ var svar 20,11%. 9,63% tóku
ekki afstöðu.
Í þessari viku er spurt:
Kýstu það sama og fyrir fjórum
árum?
Sjómenn eru Vestlendingar vik-
unnar.
Til minnis
Veðurhorfur
Spurning
vikunnar
Vestlendingur
vikunnar
AKRANES
Laugardaginn 31.maí er kosningakaffi á
kosningaskrifstofu okkar að Skólabraut 26-28
Kosningavakan hefst kl 22:00 á Gamla Kaupfélaginu
Björgunarskipið Björg í Rifi var
kallað út um sjöleytið síðastliðinn
fimmtudagskvöld vegna báts sem
varð vélarvana við Beruvík á Snæfells-
nesi. Báturinn var á leið vestur á firði
frá Hafnarfirði og voru tveir menn um
borð. Nærstaddir bátar voru einnig
kallaðir til aðstoðar og tók einn þeirra
þann bilaða í tog þar til Björgin kom
að, tók við og dró bátinn til hafnar í
Rifi. Þar var honum komið í lag áður en
förinni var haldið áfram vestur.
mm/ Ljósm. Ægir Þór.
„Þessir laxar sem eru að mæta í árn-
ar núna eru tveggja ára laxar, þetta
10-12 punda fiskar,“ sagði Þröst-
ur Elliðason leigutaki og fiskeld-
isfræðingur í samtali við Skessu-
horn. Laxar hafa nefnilega verið að
sjást snemma í ánum, mun fyrr en
undanfarin ár. Þrátt fyrir að síðasta
sumar hafi verið allgott í veiðinni,
eru menn því vongóðir um sumarið
verði vatnsbúskapurinn góður. Nú
þegar hefur sést til laxa í Hítará,
Norðurá, Laxá í Leirárssveit og
Laxá í Kjós. Þröstur segir að veiði-
sumarið gæti byrjað með látum.
„Í fyrra var mikið af smálaxi, núna
gæti orðið meira af tveggja ára laxi
og því von á skemmtilegri byrjun,“
segir Þröstur. gb/ Ljósm. úr safni.
Tveggja ára laxinn mætir snemma
Sóttu vélarvana bát við Beruvík
Byrja hönnunarvinnu vegna
Sundabrautar í sumar
Ríkisstjórnin samþykkti á afmæl-
isfundi sínum síðastliðinn föstu-
dag tillögu Hönnu Birnu Krist-
jánsdóttur innanríkisráðherra um
að hefja formlegar viðræður ríkis-
ins og einkaaðila um undirbúning,
hönnun og lagningu Sundabraut-
ar í Reykjavík í því skyni að flýta
mögulegum framkvæmdum. Yrði
byggt á tillögum stýrihóps ráðherra
sem hefur haft það hlutverk að fara
yfir hvaða samgönguframkvæmd-
ir koma til greina í samvinnu rík-
is og einkaaðila. Fjögurra ára sam-
gönguáætlun liggur nú fyrir Al-
þingi og verður tekin til umfjöllun-
ar þegar þing kemur saman að nýju
í haust. Þar er meðal annars fjallað
um fyrirhugaða Sundabraut og að
kostir einkaframkvæmdar verði
skoðaðir. Í greinargerð með frum-
varpi til fjárlaga segir einnig að um-
talsvert fé þurfi til að viðhalda og
byggja upp samgöngukerfi lands-
ins á næstu árum og því talið rétt að
huga að aðkomu einkaaðila í sam-
starfi við opinbera aðila. Í því sam-
bandi verði litið til góðrar reynslu
margra nágrannaþjóða af slíku
samstarfi fjárfesta, rekstraraðila og
ríkisvalds.
Um miðjan apríl skipaði ráð-
herra stýrihóp sem hefur það hlut-
verk að fara yfir hvaða samgöngu-
framkvæmdir koma til greina í sam-
vinnu ríkis og einkaaðila. „Ljóst er
að leita þarf leiða til að fjármagna
ýmis og brýn samgönguverkefni
með öðru móti en beinum framlög-
um úr ríkissjóði. Um leið og minna
fé hefur á síðustu árum verið veitt
í stofnframkvæmdir í vegakerfinu
fer þörfin sífellt vaxandi og því var
ákveðið að kanna rækilega hvaða
framkvæmdir unnt væri að ráðast
í með samvinnu ríkis og einkaað-
ila, allt frá undirbúningi og hönn-
un og að rekstri og þjónustu við slík
mannvirki,“ segir í tilkynningu frá
innanríkisráðuneytinu.
mm
Annar áfangi Sundabrautar eins og hann var á sínum tíma kynntur í tillögu að
matsáætlun sem fyrirtækið Línuhönnun hf. stóð að. Þessi áfangi er 8 km langur.
Allar hugmyndir um Sundabraut fóru í frost við bankahrun, en nú hefur ríkis-
stjórnin áhuga á að hefja undirbúning.
Eru flugur, flær eða
maurar að ergja þig
og bíta?
áhrifaríkur
og án
allra
eiturefna.
Allt að
8 tíma
virkni.
Fæst í flestum apótekum,
heilsubúðum og hjá N1
www.gengurvel.is