Skessuhorn - 27.05.2014, Blaðsíða 66
66 ÞRIÐJUDAGUR 27. MAÍ 2014
Skemmtisnekkjan Amelia Rose sem
skráð er á Akranesi og í eigu Skaga-
mannanna Gunnars Leifs Stefáns-
sonar og Sævars Mattíassonar er nú
komin heilu og höldnu til Fort Lau-
derdale í Flórída í Bandaríkjunum.
Fjórir Íslendingar sigldu henni frá
Kaliforníuflóa við Kyrrahaf, suður
og gegnum Panamaskurðinn og síð-
an norður um Karíbahaf til Flórída.
Ferðin tók alls 52 daga en nokkrar
tafir urðu á leiðinni. Snekkjan er nú
í slipp í Flórída þar sem hún verður
máluð og endurbætt.
Skessuhorn greindi í mars frá
kaupunum á Amelia Rose. Hún er
tíu ára gamalt skip, útbúið miklum
lúxus handa fólki sem hefur nægt
fé milli handanna. Hugmyndin er
að þessi lystisnekkja verði hin fyrsta
sinnar tegundar sem býðst ríkum
ferðamönnum til leigu á meðan þeir
sækja Ísland heim. Þannig yrði hún
alger nýjung í ferðaþjónustu á Ís-
landi.
Tóku til hendinni
Það voru Akurnesingarnir Guð-
mundur Jón Hafsteinsson skip-
stjóri og Guðjón Valgeirsson yfir-
vélstjóri auk Bjarna Bogasonar vél-
stjóra og Markúsar Alexanders-
sonar skipstjóra frá Reykjavík sem
sigldu snekkjunni frá Kaliforníu-
flóa til Flórída. „Skipið var búið að
liggja í einhvern tíma og það þurfti
eðlilega að taka til hendinni áður en
við lögðum af stað. Við unnum í því
í tíu daga fyrir brottför. Við fórum
yfir dælur og ýmsan vélbúnað og
tæki. Við fengum varahluti senda
frá Íslandi og það tafði okkur aðeins
að bíða eftir þeim. Annars leit skip-
ið mjög vel út þegar við tókum við
því. Það var ekkert óvenjulegt mið-
að við að skipið hafði ekki verið not-
að svona lengi,“ segir Guðmund-
ur Jón Hafsteinsson sem var ásamt
Markúsi skipstjóri í ferðinni.
Urðu að leita hafnar
vegna viðgerða
Þeir fjórmenningar flugu erlendis
12. mars og tóku við skipinu í hafn-
arbænum Puerto Penasco í Mexíkó
við botn Kaliforníuflóann. „Sigl-
ingin suður Kaliforníuflóann gekk
mjög vel þar til í ljós kom að ann-
að pústið hjá okkur var orðið svo
tært að við yrðum að skipta um það.
Til að gera það leituðum við hafn-
ar í borg á Kyrrahafsströnd Mexíkó
sem heitir Manzanillo. Þangað vor-
um við komnir 1. apríl og töfðumst
þar í viku vegna þessa. Allt þar tók
sinn tíma. Það var alls ekki á áætlun
að fara þarna inn þannig að við urð-
um að leysa ýmis vandamál svo sem
varðandi peninga frá Íslandi. Það er
ekkert einfalt mál því að á Íslandi
eru gjaldeyrishöft sem flækja allt.
Gunnar Leifur og Sævar, eigend-
ur skipsins stóðu sig mjög vel við að
redda málunum fyrir okkur þannig
að allt fór vel.“
Byrjunarörðugleikarnir voru þó
ekki á enda. „Meðan við lágum
þarna bilaði svo hjá okkur ljósavél.
Olíuleiðsla á henni hristist í sundur.
Við vorum að glíma við mikil vanda-
mál vegna hita. Það var kannski 35
stiga hiti úti undir beru lofti. Hita-
stigið niðri í vélarrúmi var um 50
gráður. Vélstjórarnir gátu vart farið
niður. Ef eitthvað þurfti að gera þá
hlupu þeir niður, unnu smá og svo
þurftu þeir að fara upp aftur. Menn
höfðust ekki við vegna hita, þarna
var allt brennandi heitt,“ segir Guð-
mundur Jón. Öll þessi vandamál
tókst þó að leysa. Nýrri ljósavél var
komið fyrir til bráðabirgða á aftur-
þilfari snekkjunnar.
Kaþólskir héldu
upp á páska
Förinni var svo haldið áfram suð-
ur að Panamaskurði. Amelia Rose
frá Akranesi sigldi áfram suður
með Kyrrahafsströndum Mexíkó,
Guatemala, El Salvador, Nicaragua
og Costa Riga þar til komið var til
Panama og að skipaskurðinum þar.
„Við náðum þangað 16. apríl en
lentum í þvílíkum töfum því þar var
verið að halda upp á páskana. Fólk-
ið í Panama er rammkaþólskt og
þar var ekkert unnið á helgum dög-
um. Það lá bókstaflega allt niðri og á
meðan biðum við hjá mynni skurðs-
ins Kyrrahafsmegin eftir því að kom-
ast í gegn. Svo fórum við loks um
skurðinn 27. apríl. Til að nýta vatnið
sem best í slúsunum, sem eru stíflu-
hólfin í skurðinum, þá voru minni
skip eins og okkar alltaf látin fljóta
með stærri skipum upp á við. Síð-
an þegar farið var niður þá var regl-
an þannig að litlu skipin fóru saman
og síðan stóru skipin. Það var gam-
an að sjá skurðinn og sigla gegnum
hann en þarna var allt til fyrirmynd-
ar. Öll sigling einföld og allt mjög
vel merkt.“
Fær yfirhalningu
í Flórída
Það var ekki eftir neinu að bíða þeg-
ar komið var úr skurðinum Atlants-
hafsmegin. Stefnan var sett norður
og vestur fyrir Kúbu á Flórídaskag-
ann. „Við fengum fyrsta storminn í
ferðinni á þessari leið. Amelia Rose
stóð það vel af sér og sýndi sig að
vera mjög gott sjóskip. Við sigldum
beint til Fort Lauderdale í Flórída.
Þangað komum við 3. maí og höfð-
um lagt að baki 3.287 sjómílur. Í
Fort Lauderdale var siglt í tvo tíma í
gegnum skipaskurði inn í borgina að
skipasmíðastöð. Þar verður Amelia
Rose lagfærð. Amelia Rose er mjög
gott skip, vönduð smíði og aðalvélar
góðar,“ segir Guðmundur Jón Haf-
steinsson. mþh
Ferðalag Akranessnekkjunnar Ameliu Rose
frá Kaliforníuflóa til Flórídaskaga
Guðmundur Jón Hafsteinsson annar skipstjóra Ameliu Rose í ferðinni. Hann
verður skipstjóri á skemmtiskipinu Gullfossi sem væntanlegt er til Akraness í
vikunni.
Markús Alexandersson annar skipstjóra Ameliu Rose í ferðinni
þegar snekkjan var í Panamaskurði.
Þegar komið var til Fort Lauderdale lagðist Amelia Rose fyrir
aftan einkasnekkju Eric Claptons gítarleikara. Hún heitir Blue
Guitar.
Komið að Panamaskurðinum.
Eigendur snekkjunnar eru Gunnar
Leifur Stefánsson og Sævar Matthías-
son.
Amelia Rose frá Akranesi.
Amelía Rose við bryggju.