Skessuhorn - 27.05.2014, Blaðsíða 85
ÞRIÐJUDAGUR 27. MAÍ 2014 X-2014 SVEITARSTJÓRNAKOSNINGAR 85
Nafn framboðs og listabókstaf-
ur: Sjálfstæðisflokkurinn, X-D
Nafn og aldur: Kristín Björg
Árnadóttir, 40 ára, skipar 1. sæti
listans.
Atvinna: Verkefnastjóri.
Hjúskaparstaða og fjölskylda:
Ég er gift Smára Björnssyni tækni-
fræðingi og við eigum 3 börn,
Amalíu Rún 15 ára, Arnór Inga 11
ára og Aldísi Maríu 6 ára.
Búseta: Þegar við fluttum til Snæ-
fellsbæjar fyrir 11 árum þá flutt-
um við fyrst á Hellissand og svo
byggðum við hús í Ólafsvík þar
sem við búum í dag.
Núverandi og fyrri störf að sveit-
arstjórnarmálum: Fyrsta aðkoma
mín að sveitarstjórnarmálum var
þegar ég hóf störf hjá SSV sem
ráðgjafi. Þar fékk ég góða innsýn í
sveitarstjórnarmálin á Vesturlandi
ásamt því að kynnast því góða fólki
sem sinnir þeim málum. En svo var
mér boðið sæti á D-listanum fyrir
síðustu kosningar eða árið 2010 og
ákvað ég að taka þátt enda hef ég
mikinn áhuga á að hafa áhrif á mitt
samfélag, og svo núna árið 2014 þá
er ég oddviti listans og er afar stolt
af því, ég er afar ánægð með þann
hóp sem er með mér á listanum.
„Helstu stefnumál D-listans eru
fjölmörg en snúa fyrst og fremst
um að gera gott enn betra. Kíkið á
stefnuskránna okkar og þá sjáið þið
hver okkar helstu stefnumál,“ seg-
ir Kristín Björg aðspurð um helstu
stefnumál hennar lista.
Kristín Björg er sátt við störf
sveitarstjórnar á þessu kjörtíma-
bil. „Núverandi sveitarstjórn hef-
ur að mínu mati tekist mjög vel upp
enda skilum við af okkur sveitarfé-
lagi sem er vel statt fjárhagslega og
getur haldið áfram með uppbygg-
ingu og eflingu samfélagsins.“
Ef þú fengir þrjár óskir fyrir þitt
sveitarfélag og töframaður myndi
galdra þær, hverjar yrðu þær? „Nr.1
væri að finna heitt vatn og lækka þar
með húshitunarkostnað. Nr.2 væri
að koma á ljóshraðaneti í öllu sveit-
arfélaginu ásamt öflugu gsm sam-
bandi og síðast en ekki síst að stað-
ið yrði við tuttugu ára gamalt lof-
orð vegna sameiningarinnar 1994
um að klára Fróðárheiði.“
„Þróun íbúafjölda er nokkuð sem
er afskaplega spennandi viðfangs-
efni og nauðsynlegt fyrir sveit-
arstjórnarmenn að velta vel fyr-
ir sér. Íbúafjöldi Snæfellsbæjar hef-
ur verið á bilinu 1700-1800 undan-
farin fjögur ár og er það að mínu
mati eðlileg sveifla í fjölda. Snæ-
fellsbæingar hafa aftur á móti ver-
ið duglegir við að „sjálfbæra“ íbúa-
fjölgun og hefur það orðið til þess
að leikskólarnir hjá okkur fylltust.
Því ánægjulega verkefni tókum við
fagnandi og opnuðum tímabund-
ið nýja deild. Í Snæfellsbæ er einn-
ig töluverður fjöldi íbúa af erlendu
bergi brotnu, eða um 200 talsins.
En fjöldi þjóðerna er nú kannski
mikilvægari þáttur fyrir sveitarfé-
lögin að vera meðvituð um frek-
ar en fjöldi einstaklinga. Því um
leið og fjölbreytni er almennt tal-
inn kostur hvers mannlífs þá þurfa
sveitarfélög og ríki að mæta þeirri
fjölbreytni og það verkefni er nokk-
uð sem við þurfum að gera betur.
Snæfellsbær hefur einnig lagt vinnu
í að styrkja búsetu í sveitum okkar
og má nefna að í haust munum við
opna dagvistunarúrræði fyrir börn
undir skólaaldri í sunnanveðum
Snæfellsbæ. Það er að mínu mati
ein af forsendum þess að við fáum
unga fólkið okkar til að flytja heim
í sveitina.“
Hverjar eru stærstu ógnanir þíns
sveitarfélags? „Fyrst og fremst held
ég að það sé hár raforkukostnaður.
Þá hafa sífelldar breytingar á starfs-
umhverfi sjávarútvegsins frem-
ur aukið á óöryggi þess fólks sem
vinnur í greininni og þá í leiðinni
þeirra sveitarfélaga sem eru mjög
háð atvinnu og tekjum af veið-
um og vinnslu. Mikilvægt er að
við breytingar á lögum og reglum
er varða sjávarútveginn sé horft til
þess að treysta starfsumhverfi þess
fólks sem starfar í greininni.“
En hvar sér Kristín Björg helstu
tækifærin? „Sjávarútvegur er helsta
atvinnugreinin en ferðaþjónustan
kemur þar mjög þétt á eftir. Inn-
an þessara tveggja atvinnugreina
eru miklir möguleikar og hef ég þá
trú að nýjar kynslóðir muni sjá þau
tækifæri og grípa þau. Til þess að
það gerist þá þurfum við sveitar-
stjórnarmenn að gera unga fólkinu
það kleift að koma aftur heim eftir
að þau hafa menntað sig og öðlast
reynslu. En einnig að auðvelda því
að efla tengslanet sitt við þessar at-
vinnugreinar.“
Hún segir þau í D-listanum
ákveðin fyrir þessar kosningar.
„Okkar markmið er að halda 4 sæt-
um og þar með meirihluta.“
Hver er að þínu mati fallegasti
staðurinn í þínu sveitarfélagi? „Það
er vonlaust að nefna einn stað og
það fer líka svo eftir árstíðum. Mér
finnst dásamlegt að finna kraftinn í
náttúrunni á Öndverðarnesi bæði
að hausti og vetri. Á sumrin, þá er
það eiginlega bara þjóðgarðurinn
okkar eins og hann leggur sig.“
Að lokum nefnir hún einkunn-
arorð framboðsins. „Okkar eink-
unarorð hafa verið „jákvætt hug-
arfar“ og tel ég það gott veganesi
fyrir komandi tíma, ekki bara fyr-
ir aðdraganda kosninga heldur bara
í lífinu almennt. Það verður allt svo
miklu einfaldara ef maður nær að
halda jákvæðu hugarfari.“
Sjálfstæðisflokkurinn í Snæfellsbæ
Síðumúli 16 • 108 Reykjavík • Sími 580 3900 • www.fastus.is • Verslun opin mán - fös 8.30 - 17.00
Þvottavélar • þurrkarar • tauflokkunarkerfi • o.m.fl
W5240
Þvottavél
W5105H
Þvottavél
T5290
Þurrkari
T5350
Þurrkari
Hreint og klárt
Hjá Fastus fást heildarlausnir fyrir þvottahús
Þvottavélar og þurrkarar - helstu kostir:
• Ryðfrítt stál
• Stærra hurðarop - 45cm þvermál
• Sparnaðarkerfi fyrir vatn og orkunýtingu
• Notendavæn og þægileg þvottakerfi
• Þvottavél og þurrkari staflanleg til að nýta pláss betur
• Margar góðar viðbætur fáanlegar, m.a. myntrauf
Hammerlit • Tauflokkunarkerfi
F
A
S
TU
S
_F
_1
9.
05
.1
4