Skessuhorn - 27.05.2014, Blaðsíða 50
50 ÞRIÐJUDAGUR 27. MAÍ 2014
Ólafur Helgi Ólafsson er borinn
og barnfæddur Hornfirðingur sem
flutti ungur að árum til Ólafsvíkur
eftir að hafa kynnst eiginkonu sinn
Laufeyju Kristmundsdóttur á síld-
arvertíð á Hornafirði. Ólafur seg-
ist hafa tekið ástfóstri við Ólafsvík
strax eftir að hann settist þar að.
„Hér er yndislegt að vera. Mað-
ur er frjáls eins og fuglinn. Það er
ólýsanlegt að róa á handfærin fram
á víkina í góðu veðri og sjá fallegt
bæjarstæðið og fjöllin gnæfa yfir,“
segir Ólafur Helgi. Hann er mik-
ill dýravinur og hefur frá unga aldri
haldið bæði fiður- og sauðfénað. Ég
eignaðist fyrst dúfur árið 1979 og
svo hænur frá 1994. Félagi minn
gaf mér síðan eitt lamb. Viku síð-
ar átti ég tíu lömb. Boltinn í sauð-
fjárræktinni fór að rúlla upp úr
því,“ segir Ólafur. „Ásamt tveim-
ur félögum mínum hóf ég bygg-
ingu á nýju fjárhúsi. Við vorum til-
neyddir að fara úr gömlu fjárhúsi
þar sem sem við höfðum verið með
féð. Það var annað hvort að hætta
alfarið eða byggja nýtt. Við völdum
seinni kostinn. Ætli við séum ekki
með um 70 hausa núna. Auk þess
höldum við hænsni, endur og svo
dúfur.“
Mikið að gera í sauð-
burði og á strandveiðum
Ólafur segir að síðustu vikur hafi
verið strembnar. „Sauðburðurinn
hefur verið í fullum gangi. Hann
fellur að hluta á sama tíma og upp-
haf strandveiðanna.“ Ólafur gerir
út á þær og hefur átt trilluna Glað
SH frá árinu 1994. Glaður leysti
af hólmi eldri Sómabát með sama
nafni. „Það eru alger forréttindi
að fá að róa á færaveiðum á sumr-
in. Dagarnir í strandveiðikerfinu á
þessu svæði mættu þó vera fleiri.
Það er ekki hægt að lifa á þessu
einu saman. Ég tek sumarfrí mitt
á strandveiðum en ég vinn þess á
milli í fiskverkun Klumbu,“ segir
Ólafur. Hann bætir við að hann rói
hvorki í slæmum veðrum né sæki
langt á miðin. „Mér finnst fínt ef ég
næ 400 til 500 kílóum í róðri. Það
er enginn græðgi í mér. Ég er bara
sáttur við mitt,“ segir Ólafur Helgi
Ólafsson.
Texti og myndir: Alfons Finnsson.
„Ég var búinn að fá tvisvar inni
áður í skólanum en guggnaði allt-
af á að fara. Að endingu og í þriðja
sinn sló ég til. Ég hóf námið í fyrra-
haust. Það verður þrjár annir þann-
ig að ég klára um jólin í ár. Þá hef
ég lært til þess að fá réttindi til að
stjórna allt að 45 metra löngum
skipum. Það er þetta svokallað B-
stig.“ Orri Magnússon frá Ólafsvík
er lærður pípulagningamaður sem
vill gjarnan verða skipstjóri. Hann
stundar nú skipstjórnarnám við
Tækniskólann í Reykjavík.
Sjórinn alltaf haft
aðdráttarafl
„Ætli maður reyni svo ekki að kom-
ast á sjóinn þegar náminu lýkur,“
segir Orri. Hann veit þó ekki enn
hvort hann ætli að gera fiskveið-
ar að ævistarfi. „Ætli ég sjái ekki
hvernig þetta þróast. Ég hyggst
byrja þar allavega.“ Hann var bú-
inn að róa tvær netavertíðir á Ólafi
Bjarnasyni SH í fyrra og hitteðfyrra
þegar hann ákvað loks að taka skref-
ið til fulls, fara í skólann og ná sér
í réttindi. „Magnús Jónasson, faðir
minn er stýrimaður þar um borð en
bróðir hans Erling er skipstjóri og
útgerðarmaður. Sjómennskan hef-
ur alltaf togað í mig þó ég sé lærð-
ur pípulagningamaður. Ég fór til
Reykjavíkur í fyrravor þegar vertíð-
inni þá var lokið. Um sumarið vann
ég sem pípari í blokk sem var verið
að byggja. Svo fékk ég inni í skip-
stjórnarnáminu um haustið. Í vetur
hef ég svo unnið sem pípulagninga-
maður með skólanum.
Krefjandi nám
Þannig hefur það hentað Orra
mjög vel að vera með iðnmenntun
sem hefur gert honum kleift að afla
tekna með skólanum. Hann segir
að það sé þó ekki möguleiki að vera
í fullu starfi með náminu. „Skól-
inn er frá átta til hálf sex alla daga.
Námið er mjög krefjandi. Það þarf
að hafa verulega fyrir því að ná sér
í skipstjórnarréttindi í dag. Mér
finnst þetta miklu erfiðara heldur
en iðnnámið á sínum tíma þegar ég
lærði pípulagnirnar. Mörg fögin eru
krefjandi og mikið um verkefna-
skil. Stöðugleikinn getur til dæm-
is verið snúin námsgrein ef menn
ná ekki tökum á því fagi strax. Ég
lagði mikla vinnu í það fag. Svo er
það siglingafræðin, siglingaregl-
ur og veðurfræði. Þetta eru 22 ein-
ingar á önn og 45 kennslustundir á
viku.“ Orri lætur þó engan bilbug á
sér finna. „Ég ætla að vinna í pípu-
lögnum í sumar og taka samhliða
því stærðfræðiáfanga í sumarskóla
við Fjölbrautaskólann í Breiðholti
sem gerir þar af leiðandi komandi
haustönn örlítíð einfaldari. Þetta er
kennt tvö kvöld í viku.“
Vinsælt og skemmtilegt
Nokkrir Vestlendingar stunda nú
stýrimannanám. Að sögn Orra eru
tveir aðrir núna úr Ólafsvík í dag-
námi í skólanum. Svo eru nokkrir
frá Grundarfirði og Stykkishólmi
í stýrimanna- og vélstjórnarnámi.
Einnig eru nemendur frá Akranesi.
„Námið hér virðist mjög vinsælt
núna. Það er mikil aðsókn. Skólinn
er mjög góður, þetta er skemmtilegt
nám og góður andi. Það er dálítið
keppnisskap í mönnum, þeir reyna
að standa sig sem best í náminu
og það er bara fínt. Hér eru menn
á öllum aldri, allt frá 16 til 60 ára
en mér skilst að meira sé um yngri
nemendur nú en áður hefur verið.
Það er þó töluvert af eldri strákum
hér í skólanum. Menn með reynslu.
Mér skilst að það séu alls um 250
nemendur alls við skipstjórnarnám í
skólanum, bæði í dagskóla og dreif-
námi.“ Orri segir að sér hugnist vel
að verða með réttindi bæði í skip-
stjórn og svo í einhverri iðn eins í
pípulögnum í hans tilviki. „Þetta
gefur hvorutveggja góða atvinnu-
möguleika í framtíðinni.“
mþh
Neta- og dragnótarbáturinn Ólafur Bjarnason SH þar sem Orri var í áhöfn áður en
hann fór í skipstjórnarnámið.
Píparinn sem stefnir á skipstjórn
Orri Magnússon frá Ólafsvík lýkur skipstjórnarnámi um næstu jól.
Ólafur Helgi dyttar að línunni.
Ólafur er sáttur við sitt í Ólafsvík
Ólafur Helgi Ólafsson hampar vænum þorski á trillunni sinni við ægifagra fjallasýnina norðan Jökuls.
Það er í nógu að snúast um sauðburðinn. Hér fær eitt lambanna mjólk úr pela hjá
bónda sínum.