Skessuhorn - 27.05.2014, Blaðsíða 81
ÞRIÐJUDAGUR 27. MAÍ 2014 X-2014 SVEITARSTJÓRNAKOSNINGAR 81
Jón Valgarðsson
Eystra-Miðfelli:
Óttast að kosningin
vefjist fyrir fólki
„Ég held það nauðsynlegasta verði
að sveitarstjórn-
in starfi sam-
an í sátt og sam-
lyndi að velferð-
armálum fyrir
íbúana, ekki síst í
þeim málum sem
snúa að fólkinu í
sveitinni,“ sagði
Jón Valgarðsson
bóndi á Eystri-Miðfelli í Hvalfjarð-
arsveit, spurður um hver hann teldi
brýnustu úrlausnarefni væntanlegr-
ar sveitarstjórnar næstu fjögur árin.
Jón var að dreifa áburði á túnin þeg-
ar blaðamaður Skessuhorns truflaði
hann fyrir helgina. „Það eru öll verk
skemmtileg á svona vori þegar viðrar
svona vel,“ sagði Jón. Aðspurður seg-
ist Jón ekki vera fylgjandi nýju fyrir-
komulagi í Hvalfjarðarsveit um óhlut-
bundna kosningu, það er persónukjör.
„Ég er þeirra skoðunar að í jafnstóru
sveitarfélagi eins og okkar sé eðlilegra
að viðhafa listakosningu. Það sé miklu
einfaldara fyrir kjósendur að séu tveir
eða þrír listar í kjöri. Fólk á alveg
að geta myndað lista á skynsamleg-
an hátt,“ segir Jón. Hann segist ótt-
ast að það muni reynast mörgum erf-
itt að kjósa óhlutbundið. „Ég held að
þetta flæki hlutina fyrir marga og ótt-
ast fjölda ógildra atkvæða. Það þarf
að kjósa sjö nöfn sem aðalmenn og
láta heimilisföng þeirra sem kosið er
fylgja. Einnig þarf að kjósa sjö vara-
menn. Ég óttast það í alvöru að þetta
geti vafist talsvert fyrir fólki. Lista-
kosningin er án vafa miklu einfaldari,“
segir Jón Valgarðsson bóndi á Eystra-
Miðfelli.
Baldvin Björnsson Skorholti:
Það verði friður
og sátt
„Það mikilvægasta er að skapist
friður og sátt innan sveitarstjórn-
arinnar. Það hefur skort á það og
vonandi verður núna breyting á
því. Svo tel ég líka nauðsynlegt að
byggja nýtt íþróttahús. Það er alveg
kominn tími á það,“ segir Baldvin
Björnsson bóndi í Skorholti. Spurð-
ur um hvort það
verði ekki við-
brigði og gæti
reynst erfitt að
kjósa samkvæmt
óhlutbundinni
kosningu seg-
ir Baldvin ekki
óttast það. „Nei,
það held ég ekki.
Það hafa reyndar ekki margir boð-
ið sig fram ennþá en það hlýtur að
rætast úr því. Ég held að þetta sé
skref fram á við að vera með pers-
ónukjör. Þetta getur allavega ekki
versnað frá því sem þetta hefur ver-
ið síðustu átta árin, eins og sund-
urlyndið hefur verið um mörg mál
innan sveitarstjórnarinnar,“ segir
Baldvin. Hann kvaðst að öðru leyti
vera hress með hlutina og einkan-
lega vorkomuna núna. „Þau rúmu
þrjátíu ár sem ég hef búið hérna
man ég ekki eftir svona vorkomu,
svona miklum gróanda eins og
kominn er núna,“ segir Baldvin í
Skorholti.
Jóhanna Harðardóttir í Hlésey:
Samkenndin eflist
meðal íbúanna
„Ég er sannfærð um að þetta er skref
í rétta átt að viðhafa persónubundnar
kosningar. En hvað á ég nú að segja
Brýn mál og persónukjör í Hvalfjarðarsveit
til að móðga enga,“ spyr Jóhanna G
Harðardóttir blaðamaður og Kjal-
nesingagoði íhugul en bætir svo við.
„Það hefur vantað svolítið samstöðu
og jákvæðni í þetta sveitarfélag. Ég
hef trú á að þetta geti orðið til þess
að laga það og efla samkenndina
meðal íbú-
anna,“ seg-
ir Jóhanna.
Spurð hver
hún teldi
brýnustu úr-
lausnarefni
nýrrar sveit-
ar s t jórnar
næstu fjög-
ur árin seg-
ir hún það
til dæmis hitaveitumálin og líka lýð-
heilsumálin. „Mér finnst það liggja
nokkuð beint við líka að gera stjórn-
sýsluna svolítið þjónustumiðaðri en
hún hefur verið,“ segir Jóhanna. Að-
spurð hvort það verði auðvelt eða erf-
itt að kjósa í óhlutbundnu kosning-
unni, telur Jóhanna að það geti orð-
ið erfitt. „Já, ég get alveg ímyndað
mér að það verði svolítið snúið fyrir
suma. Þetta er náttúrlega nýtt fyrir-
komulag hérna og fólk óvant því. Það
er ekki mikið um að fólk gefi kost á
sér í sveitarstjórnina og svo held ég
líka að það sé mikið um að fólk þekki
ekki nógu vel til sveitunga sinna og
þeirra stefnumála. Þess vegna held
ég að það geti vafist fyrir mörgum að
kjósa,“ segir Jóhanna í Hlésey.
Brynhildur Stefánsdóttir
á Ytra-Hólmi:
Byggt verði á góðu
leik- og grunnskóla-
starfi
„Núna eru allir
á einum lista og
flækir það auðvi-
tað svolítið mál-
ið. Nú fer maður
aðeins að hugsa
út í þetta og ég
held það verði nógu margir að velja
úr. Það skiptir miklu máli að velja fólk
sem maður getur ímyndað sér að gangi
vel að vinna með öðrum. Það er góður
eiginleiki hjá fólki,“ segir Brynhildur
Stefánsdóttir húsfreyja á Ytra-Hólmi.
Spurð um hvort hún telji rétt að breyta
kosningafyrirkomulaginu í Hvalfjarð-
arsveitinni í óhlutbundna kosningu úr
listakosningu, segir Brynhildur: „Þetta
er það sem er búið að ákveða og ann-
að skiptir ekki máli núna. Það verður
að láta reyna á þetta og tíminn mun
leiða í ljós hvort þessi breyting skilar
okkur fram á við,“ segir Brynhildur.
Um helstu úrlausnarefni væntanlegr-
ar sveitarstjórnar næstu árin þá eru það
skólamálin sem eru Brynhildi hugleik-
in. „Það hefur verið gott starf unnið í
leik- og grunnskólamálum. Ég vona að
því verði haldið áfram og byggt á því
sem helsta trompi sveitarfélagsins til
að hvetja fólk til búsetu hérna í sveit-
inni.“ þá
Ágæti
Akurnesingur.
Ingibjörg Pálmadóttir
Saman höfum við metnað og kraft
til þess að koma Akranesi í fremstu röð.
Við viljum stuðla að lifandi og skemmtilegu
samfélagi þar sem allir fá notið sín –
hver og einn á sínum forsendum.
Nýtum tækifærin sem blasa við okkur!
Við bjóðum fram reynslu í bland við unga,
kraftmikla og hugmyndaríka einstaklinga
sem brenna í skinninu að sjá bæinn okkar
blómstra sem aldrei fyrr. Við þökkum öllum
þeim sem leggja okkur lið.
Verum stolt af því að vera Skagamenn!
RoKK
Fundur
Nánar á facebook.com/frjalsir og fmf.is
Rokkfundur um skapandi greinar
miðvikud 28.maí kl.21.00 í Fríhöfn
(gamla Framsóknarhúsinu)
Pantaðu akstur á kjörstað.
Sími 864-0721 og 899-2932
Póstfang: xbakranes@gmail.com
Sjáumst í kosningakaffi á kjördag.
Hannibal Hauksson
- Skapandi greinar í ferðaþjónustu
Ólafur Páll Gunnarsson
- Menningarfélag Hafnarfjarðar
Heiðrún Hámundardóttir
- Barnamenningarhátíð
Skapandi greinar eru: tónlist, leiklist, myndlist, hönnun og fleira.
Án þeirra yrði okkar daglega líf frekar
líflaust og tómlegt. Við Skagamenn eigum
að skapa okkur sérstöðu á þessu sviði, það
er umræðuefni fundarinns.