Skessuhorn


Skessuhorn - 27.05.2014, Blaðsíða 84

Skessuhorn - 27.05.2014, Blaðsíða 84
84 SVEITARSTJÓRNAKOSNINGAR X-2014 ÞRIÐJUDAGUR 27. MAÍ 2014 Bogi Bragason Það sem Bogi telur helstu úrlausn- arefni í Stykkishólmi næstu fjög- ur árin er að stjórnendur sveitar- félagsins leggi áherslu á að bæta at- vinnuástand og hlúa vel að árangri síðustu ára, svo sem í skólamál- um. „Það vantar mikið upp á fjöl- breytni í atvinnumálum hér á svæð- inu. Annars eru skólamál í góð- um farvegi en það verður að halda áfram á þeirri braut.“ Aðspurður um framboðslista í sveitarfélaginu er Bogi ánægður með það fólk sem er í framboði fyrir þessar kosningar. „Það er mikið af góðu fólki á þess- um listum. Það er svo vonandi að það nái að vinna vel saman, held að það sé mikilvægast.“ Bogi telur að báðir listarnir í Stykkishólmi standi jafnir að vígi og treystir sér ekki til að spá fyrir um úrslit kosning- anna. „Þetta verður tæpt en það er ómögulegt að segja hvorum megin þetta mun detta.“ Víglundur Jóhannsson Atvinnu- og skuldamál eru mikil- vægustu úrlausnarefnin næstu fjög- ur árin að mati Víglundar. „Þau mál sem komandi stjórn ætti að hafa efst á sínum lista er að auka atvinnu hér á svæðinu og að finna leiðir til að hætta að safna skuldum fyrir sveitafélagið.“ Víglundur telur framboðslista sveitarfélagsins vera góða fyrir þessar kosningar. „Ég er mjög ánægður með fólkið sem er á listunum núna. Sjálfstæðisflokkur- inn var fyrir síðustu kosningar bú- inn að vera mjög lengi við stjórn- völinn hér í bæ. Þá tók nýtt fólk við og ég væri til í að gefa því eitt kjör- tímabil til viðbótar.“ Kristborg Haraldsdóttir Aðspurð hver séu mikilvægustu úr- lausnarefnin í sveitarfélaginu næstu fjögur árin segir Kristborg að byggingamál grunnskólans ættu að verða efst á blaði sveitarstjórnar í Stykkishólmi. „Það þarf að huga að skólamálum. Það þarf að byggja við skólann og stækka hann.“ Kristborg er þeirrar skoðunar að gott fólk sé á framboðslistum í sveitarfélaginu Nafn listans og listabókstafur: H- listi framfarasinnaðra Hólm- ara, X-H Nafn og aldur: Hafdís Bjarna- dóttir 49 ára, er oddviti listans. Atvinna: Deildarstjóri rann- sóknastofu HVE í Stykkishólmi, fagstjóri rannsóknaþjónustu HVE og samskiptafulltrúi. Hjúskaparstaða: Gift Kristni Helga Jónssyni sjómanni og saman eigum við Rudolf 29 ára, Hilmi Snæ 25 ára og Andreu Ýr 16 ára. Þar að auki eigum við tvær tengdadætur og þrjú barna- börn. Búseta: Ég hef búið í Stykkis- hólmi síðan 1996. Núverandi og fyrri störf að sveitarstjórnarmálum: Sit í nefnd um málefni fatlaðra og barnaverndar- og félagsmála- nefnd og verið varamaður í fræðslunefnd. „Af stefnumálum okkar eru það atvinnumálin sem vega þyngst, vernda þarf þau störf sem fyr- ir eru ásamt því að leita allra leiða til að fjölga atvinnutækifær- um. Ný störf munu hafa fjölgun bæjarbúa í för með sér sem síð- an leiðir til aukinna tekna bæj- arsjóðs. H-listinn vill með nýrri samþykkt um rekstur Stykk- ishólmsbæjar koma á fót Ný- sköpunarráði og koma þannig á formlegu samstarfi við atvinnu- lífið og launþegahreyfinguna.“ Hvernig finnst þér til hafa tek- ist hjá núverandi sveitarstjórn? „Hér hefur ríkt stöðnun og ekki tekist að efla samfélagið og vinna gegn fækkun opinberra starfa og fólksfækkun. Afar brýn viðhalds- verkefni blasa við bæði við hús- næði og gatnakerfi bæjarins.“ Um þrjár óskir sem töframað- ur myndi sjá um að uppfylla í hennar sveitarfélagi, svarar Haf- dís: Efst á baugi þessa dagana er samþætting öldrunarþjónustu og að styrkja um leið alla starfsemi á sjúkrahúsinu. Þetta ætla listarn- ir hins vegar að vinna að saman og samstilltir hef ég fulla trú á að það takist. Óskirnar þrjár vil ég því nota á eftirfarandi hátt: 1. Að hörpuskelin verði veiðan- leg að nýju og veiðiráðgjöf Haf- rannsóknastofnunar verði næg til að tryggja hagkvæmni við veiðar og vinnslu og að markaðir verði góðir. 2. Að við fengjum aukið heitt vatn en það er grundvöllur þess að við getum byggt hér upp heilsutengda ferðaþjónustu. Í orku heita vatnsins liggja einn- ig önnur atvinnutækifæri t.d við vinnslu á vannýttum verðmætum sjávarfangs, þangi og þörungum. 3. Þriðju óskina myndi ég nýta í að óska eftir að fá til baka þau opinberu störf sem horfið hafa úr bæjarfélaginu og bæta við a.m.k. tvöföldum þeim fjölda sem og nýjum starfsstöðvum á vegum hins opinbera. Að endingu myndi ég biðja umræddan galdramann um að horfa fram hjá því að í þessari upptalningu minni eru fleiri en þrjár óskir!“ Hafdís segir íbúaþróunina hafa verið slæma á síðustu árum. „Fækkunin nemur nálægt 300 manns frá því hér bjuggu sem flestir. Nái markmið H-Listans fram að ganga þá eru allar líkur til að íbúum fjölgi á kjörtímabilinu.“ Hverjar eru stærstu ógnanir þíns sveitarfélags? „Lækkandi tekjur og hækkandi útgjöld sem þreng- ir að og kemur í veg fyrir frekari lántökur til framkvæmda. Aukn- ar framkvæmdir eru hins veg- ar nauðsynlegar til að hér verði framfarir og fjölgun íbúa. Það er ákveðin ógn hvað opinberum störfum hefur farið fækkandi auk þess sem sjúkrahúsið okkar hef- ur verið í stöðugri varnarbar- áttu síðustu árin og mikið verið þrengt að rekstri þess.“ Hver eru þá stærstu tækifærin? „Við teljum að miklir möguleikar liggi ónýttir í heilsutengdri ferða- mennsku en heita vatnið okk- ar hefur mikla sérstöðu er kemur að lækningamætti. Einnig teljum við að í lífríki Breiðafjarðar liggi ónýtt tækifæri til tekjuöflunar og er það vilji okkar að leita til há- skóla- og rannsóknastofnanna til að kanna þá þætti betur og leita leiða til nýtingar lífríkisins.“ Hafdís segir erfitt að spá um hve marga listinn fái í bæjarstjórn. „Hæfileikar mínir liggja á öðrum sviðum en spámennsku, en engu að síður spái ég því að H- list- inn nái meirihluta með 4 kjörn- um fulltrúum í bæjarstjórn.“ Hver er að þínu mati falleg- asti staðurinn í sveitarfélaginu? „Það er ekki auðvelt að gera upp á milli fallegra staða í bæn- um en ég fyllist alltaf lotn- ingu og þakklæti þegar ég horfi yfir bæinn minn og Breiðafjörð ofan úr Súgandisey. Ég verð því að segja að útsýnið þaðan hafi vinninginn hvað fegurð varðar.“ „H-listinn horfir til framtíð- ar björtum augum og erum við sem listann skipa óþreyjufull að fá að taka til hendinni. Það vilj- um við gera í góðri samvinnu við bæjarbúa og halda þeim um leið vel upplýstum um stöðuna hverju sinni,“ eru lokaorð Haf- dísar Bjarnadóttur. Nafn framboðs og listabókstafur: L – listi félagshyggjufólks, X-L Nafn og aldur: Lárus Ástmar Hannesson 47 ára, skipar 1. sæti listans. Atvinna: Grunnskólakennari. Hjúskaparstaða og fjölskylda: Gift- ur og fjögur börn. Búseta: Stykkishólmur. Núverandi og fyrri störf að sveit- arstjórnarmálum: Oddviti L– listans í 8 ár. Forseti bæjarstjórnar frá kosningum 2010 fram yfir ára- mót 2014. Formaður bæjarráðs í tæp tvö ár. Bæjarstjóri frá 1. mars 2014. „Helstu stefnumál okkar eru að klára þá brýnu vinnu sem hefur ver- ið unnin í öldrunarmálum. Við ætl- um að halda áfram að vinna á skuld- um bæjarfélagsins og finna leiðir til að auka tekjur bæjarsjóðs. Þá ætlum við að hvetja til og jafnvel taka þátt í byggingu lítilla íbúða. Stefnan er að auka samstarf á Snæfellsnesi og þá ekki síst í skólamálum. Farið verð- ur í viðhald og nýbyggingu á göt- um, gangstéttum og göngustígum eins og fjárhagur leyfir. Styðja vel við félagsstarfsemi og framtak íbú- anna til góðra verka. Þá ætlum við að halda áfram með deiliskipulags- vinnu á bænum. Loks ætlum við að leitast við að halda atvinnustig- inu áfram háu,“ segir Lárus Ástmar Hannesson efsti maður á L-lista félagshyggjufólks í Stykkishólmi. „Ég er ágætlega sáttur með störf bæjarstjórnarinnar á kjörtímabilinu sem er að enda. Atvinnuleysi hefur verið mjög lítið. Þjónustustigið hef- ur verið gott og farið var í mörg góð verkefni. Sérstaklega er ég ánægð- ur með þá vinnu, sem langt er kom- in, varðandi breytingar á öldrunar- þjónustunni og fyrirhugaða samein- ingu hennar í húsnæði Sfs við Aust- urgötu. Mikil áhersla hefur verið á fjárhag sveitarfélagsins og kappkost- að að vera innan ramma laganna varðandi skuldahlutfall.“ Ef þú fengir þrjár óskir fyrir þitt sveitarfélag og töframaður myndi galdra þær, hverjar yrðu þær? „Komin væri fyrirmyndaraðstaða fyrir öldrunarþjónustu á einum stað í bænum þar sem önnur heil- brigðisstarfsemi væri efld og tryggð til framtíðar eins og Háls- og bak- deild og sjúkrahússtarfsemi. Flestar götur bæjarins yrðu olíumalarlagð- ar og hluti gangstétta yrði endurnýj- aður auk leikvalla og opinna svæða. Kominn væri nýr tónlistarskóli og viðbót við grunnskólann. Þar sem galdramanninum fyndist þetta ekki mikið þá myndi hann gefa mér aðra ósk en þá myndi ég óska mér þess að Orkuveitan myndi gefa okkur aftur hita- og vatnsveituna.“ Lárus Ástmar er bjartsýnn á já- kvæða íbúaþróun næstu árin. „Ég hef trú á því að íbúum muni fjölga á næstu árum og verði um 1150 eft- ir fjögur ár.“ Hverjar eru stærstu ógnanir þíns sveitarfélags? Meiri niðurskurður á starfsemi sjúkrahússins þannig að rekstrar- grundvellinum verði endanlega kippt undan starfseminni. Ekki ná- ist að efla Háls- og bakdeildina og tryggja henni framtíðar grundvöll. Einnig ef sjávarútvegsfyrirtæki leggi niður rekstur í bænum.“ Lárus sér líka ýmis tækifæri. „Tækifærin okk- ar búa í umhverfinu, fólkinu, hefð- inni og dugnaði fólksins sem hér býr. Tækifærin eru því ótalmörg ekki síst þegar galdramaðurinn er búinn að koma því í kring að Orku- veitan er búin að gefa okkur hita- og vatnsveituna aftur.“ Hve mörgum mönnum spáir þú að listinn nái inn í sveitarstjórn? „Ég spái því að við fáum fjóra fulltrúa.“ Hver er að þínu mati fallegasti staðurinn í þínu sveitarfélagi? „Upp á Súgandisey með útsýni yfir Hólm- inn og Breiðafjörðinn. Það bregst aldrei. „Samvinna, skynsemi, jákvæðni og framsýni,“ eru lokaorð Lárusar Ástmars. H-listi framfarasinnaðra Hólmara L-listi félagshyggjufólks í Stykkishólmi Hvað segja kjósendur í Stykkishólmi og að það sé leiðinlegt að þurfa að velja á milli lista. „Mín ósk er að hafa enga lista í kosningunum. Ég myndi vilja hafa einstaklingsfram- boð þannig að hægt væri að velja fólk óháð listum.“ Þegar Kristborg var beðin um að spá fyrir um úrslit kosninganna var hún nokkuð viss í sinni spá. „Ég held að núverandi stjórn muni halda velli.“ Sigríður Ólöf Sigurðardóttir Mikilvægasta úrlausnarefnin næstu fjögur árin í Stykkishólmi er að mati Sigríðar húsnæðismál og ásýnd bæjarins. „Mér finnst að lagfæra ætti útlit bæjarins. Gott dæmi eru rólóvellir bæjarins. Þá þarf að bæta aðstöðu fyrir börn og sinna bet- ur viðhaldi sem og á fleiri almenn- um stöðum í bænum. Húsnæðismál þarf einnig að bæta en mikill skort- ur er á íbúðum í bænum sem held- ur leiguverði mjög háu.“ Aðspurð um framboðslistana segist Sigríð- ur verða ánægð með þá. „Mér líst mjög vel á fólkið sem er á listunum núna.“ Þegar Sigríður var beðin um að spá fyrir um úrslit kosninganna, telur hún að búast megi við breyt- ingum. „Ég held að það verði nýr meirihluti sem tekur við eftir kosn- ingarnar.“ jsb
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.