Skessuhorn - 27.05.2014, Blaðsíða 30
30 ÞRIÐJUDAGUR 27. MAÍ 2014
Íslenskir eldsmiðir halda eldsmíða-
hátíð og eldsmíðamót í samstarfi
við Safnasvæðið á Akranesi í Smiðj-
unni Görðum dagana 29. maí til 1.
júní. Sjálf keppnin fer fram sunnu-
daginn 1. júní kl. 11-15. Í tilkynn-
ingu frá Akraneskaupstað vegna
mótsins segir að boðið verði upp á
byrjendanámskeið í eldsmíði, fyrir-
lestra og sýningar á handverki og
einnig verður vandað handverk til
sölu. Handverksmenn verða við
vinnu sína á svæðinu. Til að mynda
verður hægt að fylgjast með tré-
rennismiðum, útskurðarfólki, leir-
keragerð og fleiru. Að þessu sinni
koma tveir bræður frá Svíþjóð til
landsins, Ola og Sebastian Jonsson,
en þeir eru sérfræðingar í lofthömr-
um. Smiðjan í Görðum státar ein-
mitt af einum slíkum, hálfgerðum
forngrip, sem á að reyna að koma
í gang á eldsmíðahátíðinni. Búist er
við að finnist fyrir svolitlum hrist-
ingi í jörðu vegna þess.
Jon Olofsson kemur sérstaklega
frá Svíþjóð til að kenna og halda
fyrirlestur um lofthamarsmíði. Jon
er mjög hæfileikaríkur smiður og
hönnuður og hefur víðtæka reynslu
sem kennari. Hann á faglega útbúið
og rúmgott verkstæði heima í Sví-
þjóð. John Simpkins, smiðjuvin-
ur mun koma til landsins sérstak-
lega frá Ameríku til að taka þátt í
mótinu en hann er giftur vestur ís-
lenskri konu; Jan Sigurdson. John
hefur mikinn áhuga á að hjálpa
til við að gera veg eldsmíðinn-
ar sem mestan hér á landi en hann
mun halda fyrirlestur á hátíðinni
og kenna damaskus smíði. Micha-
el Maasing eldsmið þarf vart að
kynna fyrir áhugasömum eldsmið-
um á Íslandi en hann hefur komið
í tilefni eldsmíðamóta ásamt konu
sinni, Lindu, nokkur undanfarin ár.
Linda er hæfileikaríkur sútari og
hefur haldið tvö sútunarnámskeið
á Safnasvæðinu á Akranesi. Micha-
el kemur til að dæma á mótinu að
þessu sinni, auk þess sem hann mun
kenna eldsmiðum að vinna stályfir-
borð í járn. Þetta er í ellefta sinn
sem eldsmiðir verða við vinnu sína
á Safnasvæðinu og sjötta árið sem
þessi hátíð er haldin. Nánar á elds-
midir.net og hjá formanni Íslenskra
eldsmiða, Guðmundi Sigurðssyni í
síma 869 4748. þá
Leikskólinn Garðasel á Akranesi
hafnaði í öðru sæti í vali á fyrirmynd-
arstofnun á vegum Starfsmanna-
félags Reykjavíkurborgar ,,Stofnun
ársins - borg og bær“ í flokki minni
stofnana. Garðasel hlaut titilinn fyr-
irmyndarstofnun ársins í valinu fyr-
ir ári. Val á stofnun ársins og fyrir-
tæki ársins er samvinnuverkefni SFR
stéttarfélags og VR. Könnunin er
ein stærsta reglulega vinnumarkaðs-
könnun sem framkvæmd er í landinu
og gefur mikilvægar upplýsingar um
stöðu starfsmanna á vinnumarkaði.
Fyrirtækið Spölur á Akranesi í
öðru sæti í flokknum lítil fyrirtæki
í könnun VR um fyrirmyndarfyr-
irtæki 2014. Úrslit í könnuninni
voru kunngerð fyrir helgina en val-
inu á fyrirmyndarfyrirtæki er skipt
í þrjá flokka. Tíu fyrirtæki eru til-
nefnd fyrirmyndarfyrirtæki í flokk-
um stórra, meðalstórra og lítilla fyr-
irtækja og það sem flest stig hlýtur
í hverjum flokki er fyrirtæki ársins.
Spölur hefur nokkrum sinnum áður
verið ofarlega á lista lítilla fyrirtækja.
Þá var annað fyrirtæki á Vesturlandi,
sem margoft hefur verið tilnefnt í
hóp fyrirmyndarfyrirtækja, ofar-
lega á lista núna. Það eru Landmæl-
inga sem urðu nú í þriðja sæti með-
alstórra fyrirtækja. Landmælingar
voru í fyrra og hitteðfyrra tilnefnt
stofnun ársins í sínum flokki.
þá
Síðastliðinn mánudag fékk fæðing-
ar- og kvensjúkdómadeild Heil-
brigðisstofnunar Vesturlands á
Akranesi nýja barnavigt að gjöf frá
Helenu Þrastardóttur og fjölskyldu
á Þórisstöðum. Að sögn Helenu
voru haldnir litlir sveitatónleikar
og nokkur bingó á Þórisstöðum
síðastliðið haust og var vigtin keypt
fyrir ágóðann. „Okkur langaði að
gefa af okkur hérna á fæðingadeild-
ina. Ég talaði því við starfsfólk-
ið hér og fékk að vita hvað vantaði
helst,“ segir Helena. Að sögn Önnu
Björnsdóttur deildarstjóra, kem-
ur vigtin sér mjög vel. „Þessi vigt
er mun nákvæmari en hin sem við
áttum fyrir. Það er alveg nauðsyn-
legt til dæmis þegar börn fá gulu.
Þá þarf að mjólkurvigta þau til að
vita hversu mikið þau drekka og þá
þarf vigtin að vera mjög nákvæm.“
grþ
Sérdeild Brekkubæjarskóla
á Akranesi barst á dögun-
um gjafir frá hjónunum
Garðari Garðarssyni og
Guðleif Hallgrímsdóttur til
minningar um son þeirra,
Sindra Dag. Þau hafa áður
fært sérdeildinni gjafir til
minningar um Sindra og nú
gáfu þau Ipad spjaldtölvu
ásamt tösku og heyrnar-
tóli. Omnis tók þátt í þessu
verkefni ásamt Garðari og
Guðleif og færa þau fyrir-
tækinu bestu þakkir. Einnig
færðu þau Garðar og Guð-
laug sérdeildinni gjafabréf í
versluninni ABC sem m.a.
hefur til sölu leikföng fyr-
ir einhverfa. Það var Hall-
dóra Garðarsdóttir deildar-
stjóri sem tók við gjöfunum
í sérdeildinni.
þá
Eldsmíðahátíð á Akranesi næstu dagana
Frá eldsmíðahátíð síðasta sumar í Görðum. Hér er heitt járnið hamrað í nýju eld-
smiðjunni. Ljósm. jsb.
Það er alltaf jafn gaman að verða
vitni að því að sjá hryssu kasta. Eig-
endurnir eru jafnan spenntir að vita
kyn, lit og ekki síst að sjá hreyfing-
ar folaldsins þegar það fer á stjá.
Næstu daga á eftir er mikið spáð og
spekúlerað í ganglagi og byggingu
folaldsins, en oft heyrðust gömlu
mennirnir segja að best væri að
meta folaldið tíu daga gamalt. Hvað
svo sem til er í því kemst eigandinn
nú yfirleitt alltaf að þeirri niður-
stöðu að gripurinn sé hinn falleg-
asti og að sjálfsögðu mjög efnileg-
ur. Hann getur svo haldið áfram að
sannfæra sig um það næstu fjögur
árin, eða eins og sumir segja, þang-
að til og ef annað kemur í ljós.
Hryssan á meðfylgjandi mynd
heitir Donna og er frá Króki. Hún
er fyrstu verðlauna klárhryssa. Fol-
aldið sem er hryssa er undan Eld-
járni frá Tjaldhólum.
iss
Eldjárns- og Donnu-
dóttir kemur í heiminn
Færðu sérdeildinni gjafir
Við afhendingu barnavigtarinnar. Frá vinstri: Jóhanna F. Jóhannesdóttir, Jóhanna
Ólafsdóttir, Baltasar Freyr Björnsson, Anna Björnsdóttir, Helena Þrastardóttir og
Fylkir Leó Björnsson.
Færði fæðingardeild HVE gjöf
Fyrirtæki og stofnanir til fyrirmyndar