Skessuhorn


Skessuhorn - 27.05.2014, Page 6

Skessuhorn - 27.05.2014, Page 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 27. MAÍ 2014 Atvinnuleysi var 5,9% í apríl LANDIÐ: Samkvæmt Vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands voru í apríl 2014 að jafnaði 182.000 manns á vinnu- markaði hér á landi. Af þeim voru 171.300 starf- andi og 10.800 án vinnu og/ eða í atvinnuleit. Atvinnu- þátttaka mældist 79,2%, hlutfall starfandi 74,6% og atvinnuleysi var 5,9%. –mm Brotist inn í sumarbústað DALIR: Í síðustu viku uppgötvaðist innbrot og þjófnaður í sumarhús í Dölum. Hafði svalahurð verið spennt upp og ein- hverjir farið inn í sum- arhúsið og stolið það- an rafmagnsverkfærum og hljómflutningstækjum. Er málið í rannsókn hjá lög- reglunni í Borgarfirði og Dölum. Í vikunni voru sex ökumenn stöðvaðir fyrir þá sök að aka greitt. Sá sem ók hraðast var á 131 km hraða á þjóðveginum þar sem há- markshraði er 90 km. Þar var á ferð erlendur ferða- maður sem greiddi sekt sína á vettvangi alls 52.500 krónur. –þá Kynningar- myndbönd um nám og störf LANDIÐ: Þessa dag- ana standa nemendur í 10. bekk grunnskólanna frammi fyrir því að velja sér nám næsta vetur. Margt er í boði og því mikilvægt fyrir nemendur ásamt for- eldrum að kynna sér náms- framboð vel. Mennta- og menningarmálaráðuneyt- ið ásamt Samiðn hafa lát- ið útbúa fjögur stutt mynd- bönd um þau tækifæri sem felast í störfum í bygging- ar- og málmiðnaði. Mark- miðið er að myndbönd- in gefi góða innsýn í þessi störf og kveiki áhuga hjá ungu fólki sem er að velja sér framtíðarstarf. Eins er markmiðið að vekja athygli nemenda og foreldra þeirra á hagnýtu og skemmtilegu námi sem opnar leiðir inn í fjölbreytt framhaldsnám og starfsvettvang þar sem eftirspurn er eftir fólki og framtíðarhorfur góðar. Myndböndin eiga að nýt- ast nemendum, foreldrum, náms- og starfsráðgjöf- um og öðrum fræðsluað- ilum. Hvert myndband er 90 sekúnda langt en mælt er með því að horfa á þau öll til að fá heildarmynd- ina. Kynningarmyndbönd- in má finna á heimiliog- skoli.is þar sem vísað er á Youtube síður. –mm Viðauki við fjár- hagsáætlun DALIR: Samþykktur var viðauki við fjárhagsáætlun á fundi sveitarstjórnar Dala- byggðar í síðustu viku. Þar er gert er ráð fyrir að tekjur verði um 14 milljónum króna hærri en áður var áætlað. Er það í samræmi við nýja áætl- un Jöfnunarsjóðs og áætluð framlög til dreifnámsdeildar. Gert er ráð fyrir að rekstrar- gjöld sveitarfélagsins hækki um 7,8 millj. kr. m.a. vegna dreifnámsdeildar. Þá er áætl- að að framlag til sjálfboða- vinnuverkefna hækki um hálfa milljón króna, sem og að fjárfestingarliður hækki um 8,5 milljónir og lántaka verði 25 milljónir króna í stað 35 milljóna í upphaf- legri áætlun. Gert er ráð fyrir að rekstrarniðurstaða sveitarsjóðs í árslok verði já- kvæð um 6,6 milljónir í stað 1,3 milljónar í upphaflegri áætlun. –þá Fá símaklefann DALIR: Á fundi sveitar- stjórnar Dalabyggðar í lið- inni viku var tilgreindur tölvupóstur Símans vegna símaklefa í Búðardal. Þar er staðfest er að Síminn hafi ákveðið að verða við beiðni sveitarstjórnar Dalabyggðar um að fá símaklefann í Búð- ardal til eignar ásamt sím- tækinu sem í klefanum er. Ekki er tilgreint í fundar- gerð hvaða hlutverk síma- klefinn fái eða til hvers hann verði nýttur, en Skessuhorn hefur fregnað að athafna- samur íbúi í sveitarfélaginu hafi ákveðnar hugmynd- ir um nýtingu klefans. Sím- inn er nú að afleggja síma- klefa víða um land, en fæst- ir þeirra hafa fengið frið fyr- ir skemmdarvörgum um tíð- ina. –þá Hvetjum alla til að nýta kosningarétt sinn – og kíkja síðan í kaffihlaðborð til okkar á kjördag á milli kl. 14 og 18 í kosninga- miðstöðinni okkar að Brúartorgi 4 Einnig hvetjum við kjósendur til þess að hafa samband ef einhverjar spurningar eru í eftirtalin símanúmer: Bjarki 660-8245 - Jónína 662-0827 - Hulda Hrönn 692-1461 Lilja Björg 865-1581 - Sigurður 660-3437 Takk fyrir góð samskipti í aðdraganda kosninga! Við vonumst eftir góðu og árangursríku samstarfi allra íbúa og fyrirtækja í Borgarbyggð að loknum kosningum Frambjóðendur D-listans í Borgarbyggð Áfram XD – Áfram Borgarbyggð Vinnum saman – stöndum saman S K E S S U H O R N 2 01 4
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.