Skessuhorn - 27.05.2014, Qupperneq 28
28 ÞRIÐJUDAGUR 27. MAÍ 2014
Eins og fram hér að ofan braut-
skráðust 23 nemendur frá Fjöl-
brautaskóla Snæfellinga síðastlið-
inn laugardag. Þeirra á meðal var
Snjólfur Björnsson sem hlaut við-
urkenningu fyrir hæstu einkunn
á stúdentsprófi með meðalein-
kunnina 9,35. Hann hlaut einn-
ig viðurkenningu fyrir góðan ár-
angur í raunvísindum, stærðfræði,
íslensku og þýsku. Í samtali við
blaðamann segist hann þakka mik-
illi vinnu árangurinn á prófinu.
„Ég er búinn að vera duglegur að
læra, það þarf að leggja töluvert á
sig til að ná þessum árangri,“ sagði
Snjólfur. Hann hefur því lagt sig
allan fram þau fjögur ár sem hann
hefur verið í framhaldsskóla og fór
í eitt ár sem skiptinemi til Banda-
ríkjanna. „Ég fór í fyrra til Illin-
ois í Bandaríkjunum til að víkka
sjóndeildarhringinn. Ég útskrifað-
ist ekki þaðan, heldur fór bara sem
skiptinemi í eitt ár til að prófa,“
segir hann.
Hefur mestan áhuga
á körfunni
Aðspurður um áhugamálin seg-
ist Snjólfur hafa mestan áhuga á
körfubolta. „Ég spila með meist-
araflokki Snæfells og spila líka
á gítar. En svo reyni ég bara að
sinna vinunum og fjölskyldunni
þegar ég hef lausan tíma. Þetta er
svona það sem maður gerir á dag-
inn.“ Í sumar mun Snjólfur vinna
við ferðaþjónustu í Stykkishólmi.
„Ég verð að vinna á Hótel Egil-
sen og svo að æfa körfuna á fullu.“
Hann segist ekki vera búinn að
ákveða hvað taki við í haust. „Það
kemur samt sterklega til greina að
spila körfubolta og vinna með og
taka hlé frá námi í eitt ár. Þegar
maður er búinn að vera í skóla í 14
ár, þá er maður eiginlega kominn
með upp í kok og ágætt að taka sér
smá pásu,“ segir dúxinn Snjólfur
að lokum. grþ
Síðastliðinn laugardag brautskráð-
ust 23 nemendur frá Fjölbrauta-
skóla Snæfellinga í Grundarfirði.
Athöfnin hófst á því að skólameist-
ari FSN, Jón Eggert Bragason,
brautskráði nemendur og flutti
ávarp. Í ávarpinu kom skólameist-
ari inn á mikilvægi hversdagsins
og líðan okkar sem er grundvöll-
ur fyrir frekari afrekum hvort sem
það er á svið atvinnu eða formlegr-
ar menntunar. Að auki bauð hann
öllum viðstöddum til afmælisfagn-
aðar nú í haust en þá verður Fjöl-
brautaskóli Snæfellinga 10 ára.
Fjöldi viðurkenninga
Hrafnhildur Hallvarðsdóttir að-
stoðarskólameistari afhenti nem-
endum viðurkenningar fyrir góð-
an námsárangur. Sveitarfélögin
gáfu viðurkenningarnar auk Arion
banka, Þýska sendiráðsins, Há-
skólans í Reykjavík, FSN og sókn-
arnefnd Setbergssóknar. Kvenfé-
lagið Gleym mér ei gaf nýstúd-
entum að venju leiðbeiningar út í
lífið. Í þeim má m.a. finna þvotta-
leiðbeiningar ásamt góðum ráðum
við geymslu matvæla.
Hæstu einkunn á stúdentsprófi,
með 9,35 í meðaleinkunn, hlaut
Snjólfur Björnsson. Hann hlaut
einnig viðurkenningu fyrir góð-
an árangur í raunvísindum, stærð-
fræði, íslensku og þýsku. Edda
Bára Atladóttir hlaut einnig við-
urkenningu fyrir góðan árangur í
stærðfræði. Þá hlaut Heiðdís Lind
Kristinsdóttir viðurkenningu fyrir
góðan árangur í félagsfræði, sögu,
jarðfræði og líffræði. Helena Björk
Hrannarsdóttir hlaut viðurkenn-
ingu fyrir góðan árangur í við-
skiptagreinum og Dóra Haralds-
dóttir fyrir góðan árangur í sögu
og spænsku. Aron Alexander Þor-
varðarson hlaut viðurkenningu
fyrir góðan árangur í dönsku og
Arnór Reginn Gunnþórsson hlaut
viðurkenningu fyrir góðan árang-
ur í skólaíþróttum. Guðmundur
Jensson fékk viðurkenningu fyrir
störf í þágu nemendafélagsins og
Anna Lind Særúnardóttir og Leif-
ur Harðarson fengu viðurkenn-
ingar fyrir list og verkgreinar en
þau hafa verið þátttakendur í Stór-
sveitinni frá stofnun hennar.
Tónlistaratriði og
ræður
Að venju lék Stórsveit Snæfells-
ness, sem skipuð er nemendum
skólans, við útskriftarathöfn skól-
ans. Að auki setti nýstúdentinn
Leifur Harðarson saman hóp í til-
efni útskriftarinnar og sýndu þau
atriði við athöfnina. Hópurinn
samanstóð af núverandi og fyrr-
verandi nemendum skólans, ásamt
vini þeirra og sýndi í verki hlý-
hug þeirra til skólans. Loftur Árni
Björgvinsson enskukennari flutti
kveðjuræðu fyrir hönd kennara og
starfsfólks og Auður Kjartansdótt-
ir flutti ræðu fyrir hönd 5 ára stúd-
enta.
Í hópi nýstúdenta þetta vor-
ið voru m.a. dreifnemendur sem
höfðu stundað námið nær ein-
göngu úr fjarlægð með aðstoð
kennslukerfis skólans. Snorri
Birgisson var einn þeirra og hélt
hann ræðu. Í ræðunni hrósaði
hann skólanum í hástert fyrir fyr-
irkomulag og framkvæmd á dreif-
námi, sem nýtist nemendum vel.
Guðmundur Jensson, fráfarandi
forseti nemendafélagsins, hélt
kveðjuræðu fyrir hönd útskriftar-
nema þar sem hann kvaddi skól-
ann og starfsfólk fyrir þeirra hönd.
Að lokum sleit skólameistari tí-
unda starfsári FSN og bauð gest-
um í kaffi og kökur.
grþ/fsn.is/Ljósm. tfk.
Snjólfur Björnsson tekur við verðlaunum frá Hrafnhildi Hallvarðsdóttur
aðstoðarskólameistara. Ljósm. TFK.
Dúxaði í Fjölbrautaskóla Snæfellinga
Útskrifað úr Fjölbrautaskóla Snæfellinga
Stórsveit Snæfellsness lék við útskriftarathöfnina. Hún er skipuð nemendum skólans.
Hópur útskriftarnema Fjölbrautaskóla Snæfellinga vorið 2014.
Heiðurshjónin Móses Geirmundsson og Dóra Haraldsdóttir. Sú síðarnefnda
útskrifaðist á laugardaginn og er elsti útskriftarnemandi skólans frá upphafi, en
hún verður 71 árs á þessu ári.