Skessuhorn - 27.05.2014, Qupperneq 36
36 ÞRIÐJUDAGUR 27. MAÍ 2014
Björgunarskip Landsbjargar hafa
margoft sannað gildi sitt. Það er
mikið öryggi fyrir sjófarendur að
vita af þessum skipum í höfnum
allt umhverfis landið þaðan sem
þau geta lagt út með örskömm-
um fyrirvara ef neyð steðjar að.
Björgunarskipið Björg í Rifi er eitt
þeirra. „Það eru 14 bátar af þess-
ari tegund á Íslandi í dag. Þeir eru
í höfnum allt umhverfis landið;
Reykjavík, Hafnarfirði, Sandgerði,
Grindavík, Hornafirði, Seyðisfirði,
Norðfirði, Vopnafirði, Raufarhöfn,
Siglufirði, Skagaströnd, Ísafirði,
Patreksfirði og svo hér í Rifi,“ seg-
ir Páll Valdimar Stefánsson. Hann
er hafnarvörður í Rifi og skipstjóri
á Björgu.
Ávallt viðbúnir
„Björg er ávallt tilbúin í útkall, alla
daga ársins. Það er mitt að hafa um-
sjón með því að skipið sé alltaf til
reiðu ef á þarf að halda. Allt verður
að vera í góðu lagi, olíutankar full-
ir og þess háttar. Björgunarfólk-
ið á að geta gengið beint um borð
og báturinn lagt af stað þegar það
kemur útkall frá Vaktstöð siglinga.
Það eru send út SMS smáskila-
boð. Björgunarskipið er með sér-
stakan útkallshóp af fólki sem boð-
in eru send til. Síðan er björgunar-
sveitin sjálf með eigin útkallshóp.
Þegar það er útkall þá er það yfir-
leitt þannig að um leið og fimm til
sex manns hafa skilað sér um borð
í björgunarskipið þá er áhöfn tal-
in fullskipuð að lágmarki fyrir út-
kall, landfestar eru leystar og lagt
af stað,“ segir Páll.
Hópurinn sem ávallt er kall-
að í er þó stærri. Þannig geta far-
ið fleiri með í útköll ef marg-
ir koma að bátnum á sama tíma.
Stundum koma líka þær aðstæð-
ur að velja þarf mannskap í áhöfn-
ina. „Það á sérstaklega við ef veður
er mjög slæmt. Þá viljum við hafa
atvinnusjómenn um borð. Hið
sama gildir ef um er að ræða björg-
un slasaðra. Þá verður einhver að
vera um borð sem kann til sjúkra-
flutninga. Allir skipverjar okkar
hafa síðan lært skyndihjálp. Það er
svo læknir um borð í þyrlu Land-
helgisgælsunnar. Hún er kölluð út
ef alvarleg óhöpp eiga sér stað og
það þarf að koma fólki hratt undir
læknishendur.“
Björg er harðsnúið skip
Björgunarsveitin Lífsbjörg í Snæ-
fellsbæ fékk skipið árið 2002.
Björgin var smíðuð árið 1976 og
keypt notuð frá Bretlandi. „Þetta
er mjög sterkbyggð fleyta. Bretar
eiga langa siglingasögu og vita al-
veg hvað þeir eru að gera þegar þeir
hanna og smíða svona báta. Þegar
Björg var í eigu Breta var hún stað-
sett á eyjunni Isle of Wight í Erm-
arsundi sem er jú ein fjölfarnasta
siglingaleið í heimi. Síðustu þrjú
árin í Englandi var hún svo notuð
sem skólaskip við björgunarskóla.
Það hefur lítið verið um bilanir.
Það er auðvelt að fá flesta varahluti.
Sumt getur þó verið erfitt að finna
þegar skip eru orðin þetta gömul.
Bretarnir voru að skipta þeim út og
taka í notkun nýja kynslóð björg-
unarbáta. Þeir eru með miklu öfl-
ugari vélar. Við erum með tvær 450
hestafla vélar í Björgu. Nýju bát-
arnir hjá þeim eru hins vegar með
tvær 1.000 til 1.200 hestafla vélar
og ganga 23 - 25 sjómílur á klukku-
stund. Okkar gengur 14 – 15 míl-
ur,“ útskýrir Páll.
Hann segir að það séu þó eng-
ar áætlanir um að skipta Björgu út
fyrir nýrra skip. „Það er töluvert
mikið eftir í þessum skipum. Ekk-
ert finnst á markaðinum í staðinn
nema þá skip sem eru alltof dýr og
við ráðum ekkert við að kaupa.“
Öryggið felst
í forvarnargildinu
Sjálfur er Páll gamalreyndur á haf-
inu og hefur búið á Hellissandi síð-
an um 1970. Hann starfaði sem sjó-
maður og skipstjóri í rúm 30 ár.
„Ég var mikið á stórum bátum sem
þá töldust vera. Það voru bátar á
stærðarbilinu 50 til 150 tonn. Síðan
endaði ég í eigin útgerð sem trillu-
karl áður en ég gerðist hafnarvörð-
ur. Það er mikið öryggi fólgið í því
fyrir okkur öll sem búum í þessu
landi að hafa svona báta eins og
Björgu. Sem betur fer hefur aldrei
komið til þess að hún hafi verið
notuð í alvarlegum slysum. Reynsl-
an hefur sannað að það hefur mikið
fyrirbyggjandi gildi að hafa svona
skip. Þau eru ákveðin vörn gegn því
að óhöpp þróist með þeim hætti að
úr verði alvarleg slys. Björg hefur
oft dregið vélarvana báta að landi.
Síðan hafa sjúklingar verið sóttir út
á sjó. Við förum líka með varahluti
til skipa á hafi úti. Þannig er tryggt
að fólk nái landi heilt á húfi.“
Margir á sjó
yfir sumarið
Þegar Skessuhorn ræddi við Pál um
borð í Björgu var hann nýkominn
í land ásamt félögum sínum eftir
að hafa bjargað strandveiðitrillu í
land sem eldur hafði kviknað í úti
á Breiðafirði.
„Það er oft mikill atgangur þeg-
ar strandveiðarnar standa yfir enda
margir bátar á sjó. Það virðist þó
hafa fækkað eitthvað á þeim veiði-
skap nú í ár miðað við þau síðustu.
Þeim gæti nú fjölgað í júní. Svo
verður áhugavert að sjá hve marg-
ir fara á makrílveiðarnar í sumar.
Mér heyrist nú reyndar að það sé
eitthvað hik á sumum. Menn óttast
að makrílverðið eigi eftir að verða
lægra heldur en í fyrra. Þeir eru
eitthvað að skoða þetta. Hins vegar
standa margir kannski líka frammi
fyrir því að hafa ekkert annað að
gera í sumar vilji þeir fara á sjó á
bátum sínum nema fara á makríl-
inn. Þetta kemur allt í ljós,“ seg-
ir Páll að lokum. Hann og félagar
hans í björgunarsveitinni Lífsbjörgu
verða á vaktinni ef með þarf.
mþh
Í upphafi strandveiðanna 2011 fór Björgin á einum degi til aðstoðar fimm
smábátum. Að auki var kannað með rekald sem sást úti af Gufuskálum.
Björgunarskip Landsbjargar
minnka líkur á að illa fari
Páll Valdimar Stefánsson skipstjóri á björgunarskipinu Björgu og hafnarvörður í
Rifi.
Fræg björgun þegar Björgin kom tóg yfir í Úllu SH skömmu áður en bátinn rak upp í fjöruna skammt frá Rifi í foráttubrimi í
september 2007. Ljósm. af.
Páll á stjórnpalli Bjargar leggur að bryggju eftir farsælan björgunarleiðangur úti
á Breiðafirði nú í maí. Fremstur á myndinni er Sævar Sveinbjörnsson skipverji á
Björgu.
Guðmundur Runólfsson hf.
Sólvöllum 2 – Grundarfjörður- Sími 430 3500
S
ke
ss
uh
or
n
20
13