Skessuhorn - 27.05.2014, Side 74
74 SVEITARSTJÓRNAKOSNINGAR X-2014 ÞRIÐJUDAGUR 27. MAÍ 2014
Nafn framboðs og listabókstaf-
ur: Sjálfstæðisflokkur, X-D
Nafn og aldur: Ólafur Adolfsson
46 ára, skipar 1. sæti listans.
Atvinna: Lyfsali.
Hjúskaparstaða og fjölskylda:
Fráskilinn að vestan og á tvö börn.
Búseta: Hjarðarholti 1.
Núverandi og fyrri störf að
sveitarstjórnarmálum: Er í starfs-
hópi um atvinnu- og ferðamál en
hef annars ekki verið viðloðandi
sveitarstjórnarmál á Akranesi.
Um helstu stefnumál D-lista segir
Ólafur. „Þau eru fjölmörg og snerta
alla íbúa á Akranesi. Tillögur okkar
sjálfstæðismanna lúta að stjórnsýslu
og fjármálum, fjölskyldu og skóla-
málum, atvinnumálum og velferð-
armálum svo nokkuð sé nefnt.“
Hvernig finnst þér til hafa tek-
ist hjá núverandi bæjarstjórn? „Nú-
verandi bæjarstjórn hefur þurft að
glíma við erfið mál og sumt geng-
ið vel og annað miður. Við viljum
gera betur.“
Heilbrigði, hamingja og langlífi
eru þær þrjár óskir fyrir bæjarfélag-
ið sem Ólafur myndi óska sér ef
töframaður myndi galdra eitthvað
fyrir hann og bæjarfélagið.
Hvað finnst þér um þróun íbúa-
fjölda í sveitarfélaginu og hvernig
sérðu hann fyrir þér eftir fjögur ár?
„Við viljum sjá fjölgun íbúa í sveit-
arfélaginu og erum bjartsýn á að
við komumst yfir 7.000 íbúa mark-
ið á næstu árum.“
Atvinnuleysi er sú ógn sem mest
getur ógnað bæjarfélaginu, að mati
Ólafs, en hann telur helstu tæki-
færin felast í frekari eflingu at-
vinnulífs og aukinni nýsköpun til
dæmis í ferðamennsku.
Hve mörgum mönnum spáir þú
að þinn flokkur nái inn í bæjar-
stjórn? „Þremur mönnum“
Hver er að þínu mati falleg-
asti staðurinn í þínu sveitarfélagi?
„Breiðin neðanverð.“
Lokaorðin hjá Ólafi Adolfssyni
eru svo í takti við áhugamálin í
gegnum tíðina: „Áfram ÍA!“
Nafn framboðs og listabókstaf-
ur: Vinstri hreyfingin grænt fram-
boð og óháðir, X-V
Nafn og aldur: Þröstur Þór
Ólafsson 48 ára, skipar 1. sæti.
Atvinna: Verknámskennari.
Hjúskaparstaða og fjölskylda:
Kvæntur Eydísi Líndal Finnboga-
dóttur og á Árna Teit 16 ára, Dag
Karl 9 ára og Ask Björn 6 ára.
Búseta: Steinsstaðaflöt 21, Akra-
nesi.
Núverandi og fyrri störf að
sveitarstjórnarmálum: Í bæjar-
stjórn frá 2010, formaður fjöl-
skylduráðs frá 2012 til 2013. For-
maður bæjarráðs frá 2013 til 2014.
Formaður vinnuhóps um húsnæð-
ismál Félags eldri borgara Akra-
nesi Formaður starfshóps um
íþrótta- og æskulýðsmál
Helstu stefnumálin segir Þröst-
ur skýr. „Að félagsleg og umhverf-
isleg gildi verði höfð til hliðsjón-
ar við alla ákvarðanatöku bæjarins
hvort sem er skipulagsmálum, sam-
göngumálum, innkaupum, launa-
stefnu, atvinnuuppbyggingu, þjón-
ustu við borgara eða öllu sem nöfn-
um tjáir að nefna.“
„Núverandi bæjarstjórn hef-
ur staðið sig mjög vel, unnið af
skynsemi og umfram allt leyft öll-
um stjórnmálaflokkum að koma
að allri ákvarðanatöku. Hún hefur
tekið faglega á flestum málum, við-
urkennt mistök og betrumbætt það
sem afvega hefur farið. Hún hefur
undirbúið jarðveginn vandlega fyr-
ir komandi bæjarstjórn.“
Ef þú fengir þrjár óskir fyrir þitt
sveitarfélag og töframaður myndi
galdra þær, hverjar yrðu þær? „Allir
fengju jöfn laun fyrir jafnar stöður,
Stórt hátæknifyrirtæki sem fyndi
hreina lausn á orkuvanda heims-
ins setti upp aðalstarfsstöð sína hér
og töframaðurinn myndi töfra allar
skuldir sveitarfélagsins niður á núll
án þess að það bitnaði á öðrum.“
Hvað finnst þér um þróun íbúa-
fjölda í sveitarfélaginu og hvernig
sérðu hann fyrir þér eftir fjögur ár?
„Akranes á eftir að vaxa jafn og þétt
með léttum fjörkippum tengdum
atvinnuuppbyggingu. Helstu ógn-
ir bæjarfélagsins eru nálægð við
Reykjavíkursvæðið og að Akranes
verði svefnbær.“
Hver eru stærstu tækifæri sveit-
arfélagsins? „Nálægð við Reykja-
víkursvæðið og Grundatanga, fal-
legt mannlíf og aðlaðandi um-
hverfi.“
Þröstur segir óskandi að VG fái
tvo fulltrúa eftir koningarnar núna
og þegar spurt er um fallegasta
staðinn í bæjarfélaginu segir hann:
„Þar sem fjölskyldan mín er hverju
sinni.“
Eitthvað að lokum? „Stærsta
vandamál flestra sveitarfélaga er
skuldastaða þeirra. Eftir mikla
skuldasöfnun á síðasta kjörtímabili
höfum við eitt miklu fé og vinnu í
að minnka þær. Eftir því sem við
skuldum minna þá er meira hægt
að gera. Pössum okkur á loforða-
súpu sem inniheldur mikil fjárútlát
ef það á að gerast með lántökum.
Göngum hægt um gleðinar dyr.“
Vart hefur farið framhjá neinum
að landsmenn ganga til sveitar-
stjórnarkosninga laugardaginn
31. maí. Sveitarfélögin eru tíu
sem tilheyra gamla Vesturlands-
kjördæmi eins og það var fyrir
síðustu kjördæmabreytingu. Í sex
þeirra verður kosið listakosningu;
Akranesi, Borgarbyggð, Eyja- og
Miklaholtshreppi, Snæfellsbæ,
Grundarfirði og Stykkishólmi.
Í Hvalfjarðarsveit, Skorradals-
hreppi, Helgafellssveit og Dala-
byggð verður kosið óhlutbund-
inni kosningu. Einnig er það fyr-
irkomulag viðhaft í Reykhóla-
hreppi.
Í þeim sex sveitarfélögum þar
sem boðnir eru fram listar eru
samtals 19 framboð. Skessuhorn
sendi nokkrar skriflegar spurn-
ingar til oddvita þeirra og bauð
þeim að svara, eða fulltrúa þeirra
sem þeir tilnefndu. Oddvitar kusu
að svara í 17 tilfellum af 19. Svör
þeirra fara hér og á næstu síðum
auk hópmynda af frambjóðendum.
Einnig er rætt við kjósendur í átta
sveitarfélögum. Viðmælendum er
þakkað greinargóð svör.
Gengið verður til kosninga á laugardaginn
Vinstri hreyfingin grænt
framboð á Akranesi
Sjálfstæðisflokkurinn
á Akranesi
Starfsfólk Landnámsseturs óskar ykkur öllum
GLEÐILEGS SUMARS !
Sumarsólstöður laugardaginn 21. júní n.k.
Okkar ástsæli KK verður með tónleika
í veitingasal kl. 22:00 - Verð kr. 2000,00
Minnum á okkar
holla & fjölbreytta
hádegishlaðborð
alla daga í sumar
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
0
1
4
Sími 437 1600 • Brákarbraut 13-15 • Borgarnesi
Alúðarþakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
vináttu, samúð og hlýhug við andlát og útför
elskulegs föður okkar, tengdaföður, afa og
langafa.
Gísla Sigurjóns Sigurðssonar
Smáraflöt 15,
Akranesi
Sérstakar þakkir til starfsfólks Höfða og HVE
Akranesi fyrir yndislega ummönnun.
Með kærleikskveðjum
Þráinn Elías Gíslason María S. Sigurðardóttir
Gunnar Valur Gíslason Hervör Poulsen
Jón Bjarni Gíslason María Kristinsdóttir
Sigurlaug Gísladóttir Guðmundur Gíslason
Guðrún Sigríður Gísladóttir Guðmundur S. Jónsson
barnabörn og barnabarnabörn