Skessuhorn - 27.05.2014, Page 80
80 SVEITARSTJÓRNAKOSNINGAR X-2014 ÞRIÐJUDAGUR 27. MAÍ 2014
Nafn framboðs og listabókstaf-
ur: Framsóknarflokkurinn X-B
Nafn og aldur: Guðveig Anna
Eyglóardóttir, skipar 1. sæti listans.
Atvinna: Gestamóttaka á Hótel
Hamri & nemandi í ferðamálafræði
við Háskólann á Hólum.
Hjúskaparstaða og fjölskylda:
Gift Vigfúsi Friðrikssyni, við eigum
þrjú börn. Ásdísi Lind 7 ára, Hilm-
ar Karl 4 ára og Hallgrím 1. árs.
Búseta: Borgarnes.
Núverandi og fyrri störf að sveit-
arstjórnarmálum: Sat í Byggingar-
nefnd Fljótsdalshrepp 2007-2009.
Hef setið í vetur sem áheyrnar-
fulltrúi í Fræðslunefnd f.h. stjórnar
Foreldrafélags Grunnskóla Borgar-
nes.
Guðveig segir stefnumálin skýr
„Við í Framsóknaflokknum vilj-
um að sveitarfélagið sé góður og
eftirsóknarverður staður fyrir fyr-
irtæki og fjölskyldur. Til að hægt
sé að laða að fjölbreyttari atvinnu-
starfsemi, auka tekjur sveitarfélags-
ins og fjölga íbúum þurfa ákveðnir
grunnþættir að vera í lagi. Við vilj-
um leggja áherslu á að bæta sam-
göngur, fjarskipti og þrýsta á að
rafmagns- og vatnsmál verði samkv.
nútímaþörfum. Við leggjum metn-
að okkar í að bjóða uppá framsækna
og vel útbúna leik- og grunnskóla
fyrir börnin okkar. Við leggjum auk
þess mikla áherslu á að sveitarfé-
lagið sé vel hirt og snyrtilegt.“
Hvernig finnst þér til hafa tek-
ist hjá núverandi sveitarstjórn?
„Ég tel að núverandi sveitastjórn
skorti helst tilfinninguna fyrir því
hvað íbúum sveitarfélagsins finnst
skipta máli. Fjármagn til að bæta
ásýnd sveitarfélagsins er takmark-
að. Samráð við íbúa og upplýsinga-
gjöf er takmörkuð og margir þættir
sem snerta fjölskyldur og fyrirtæki
í daglegu lífi. Ég hefði viljað sjá
öflugri kynningu og markaðssetn-
ingu á sveitarfélaginu sem vænleg-
um búsetukosti fyrir fjölskyldur og
fyrirtæki. Þau hafa gert margt ágætt
en við ætlum að gera betur.“
Ef þú fengir þrjár óskir fyr-
ir þitt sveitarfélag og töframað-
ur myndi galdra þær, hverjar yrðu
þær? „Sveitarfélagið væri skuld-
laust, hægt yrði að bjóða upp á
gjaldfrjálsan leikskóla og við ættum
Sparisjóðinn aftur.“
Um íbúaþróun í Borgarbyggð
segir Guðveig: „Við ættum að hafa
áhyggjur af því að barnafólki hefur
ekki fjölgað mikið í okkar sveitarfé-
lagi. Ég lít björtum augum til fram-
tíðar. Með fjölbreyttri og öflugri
atvinnustarfsemi í sveitarfélaginu.
Bættum skilyrðum til búsetu fyr-
ir unga sem aldna verður þróun-
in jákvæð eftir fjögur ár með fram-
sókn.“
Hverjar eru stærstu ógnanir þíns
sveitarfélags? „Okkar helsta ógn
felst í því að nýta ekki þau tæki-
færi sem sveitarfélagið hefur uppá
að bjóða þegar kemur að uppbygg-
ingu á ferðaþjónustu og fjölbreyttu
atvinnulífi. Ef við nýtum ekki strax
þau tækifæri sem við höfum til að
auka tekjur sveitarfélagsins verðum
við ekki samkeppnishæf hvað varð-
ar grunnþjónstu til íbúa. Það gefu
auga leið að uppbygging á fram-
sækinni starfsemi og starfsumhverfi
í leik- og grunnskólum í sveitarfé-
laginu veltur á því að hér sé öflugt
atvinnulíf.“ Guðveig segir að hægt
sé að auka tækifærin í Borgarbyggð
„Mikil tækifæri eru fólgin í því að
styrkja búsetuskilyrði fyrir þau fyr-
irtæki sem hér starfs og auk þess að
gera sveitarfélagið spennandi val-
kost fyrir nýsköpun og fjölbreytta
atvinnustarfsemi á öllum sviðum.
Í því felast tækifæri til bjóða upp á
góða þjónustu og fjölga íbúum.“
Guðveig segir Framsóknar-
flokkinn stefna á að ná inn þremur
mönnum í sveitarstjórn og að erf-
itt sé að velja einn stað af svo mörg-
um í sveitarfélaginu sem þann fal-
legasta. „Ætli mér þyki ekki einna
vænst um ganga á Seleyrinni og
horfa í átt að Borgarnesi og vest-
ur eftir.“
Að lokum segir Guðveig að fram-
sóknarmenn vilja byggja upp öfl-
ugt , snyrtilegt og gott samfélag þar
sem boðið er upp á góða þjónustu
fyrir alla íbúana. „Borgarbyggð er
demantur sem þarf að hlúa að.“
Nafn framboðs og listabókstaf-
ur: Samfylkingin í Borgarbyggð,
X-S
Nafn og aldur: Geirlaug Jóhanns-
dóttir, 38 ára, skipar 1. sæti listans.
Atvinna: Verkefnastjóri tilrauna-
verkefnis um menntun í Norðvest-
urkjördæmi.
Hjúskaparstaða og fjölskylda:
Gift Stefáni Sveinbjörnssyni og
saman eigum við þrjú börn á aldr-
inum 6-13 ára.
Búseta: Þórunnargata í Borgar-
nesi.
Núverandi og fyrri störf að
sveitarstjórnarmálum: Tók sæti
í sveitarstjórn á síðasta kjörtíma-
bili og sat m.a. í byggðaráði og
fræðslunefnd ásamt ýmsum vinnu-
hópum.
„Okkar helstu stefnumál eru að
koma á frístundakorti að upphæð
kr. 25.000 fyrir hvert barn á grunn-
skólaaldri og koma þannig í veg
fyrir að tómstundaiðkun barna sé
háð fjárhagsaðstæðum. Einnig vilj-
um við fegra og snyrta umhverf-
ið okkar sem hefur því miður lát-
ið svolítið á sjá undanfarin ár. Við
viljum vinna að því að auka fram-
boð hagkvæms leiguhúsnæðis, efla
almenningssamgöngur og setja á
stofn íbúaráð á tilteknum svæðum
og hverfum í sveitarfélaginu. Síðast
en ekki síst viljum við auka upplýs-
ingamiðlun til íbúa með stórbættri
heimasíðu og íbúavef þar sem fund-
argögn verða gerð aðgengileg íbú-
um.“
Geirlaug segir að núverandi sveit-
arstjórn hafi ekki staðið sig nægi-
lega vel, því miður, þótt margt já-
kvætt hafi áunnist á kjörtímabilinu.
„Sjálfstæðismenn og Vinstri græn-
ir skila ekki af sér góðu búi. Skuld-
ir hafa aukist, reksturinn fór 143
milljónum fram úr áætlun á síðasta
ári, framkvæmdir fóru 63% fram úr
áætlun og handbært fé hefur lækk-
að um 68%. Samstarf við íbúa og
starfsfólk þarf að vera meira svo
ekki skapist óþarfa óánægja sem
hægt er að koma í veg fyrir með
samtali og samvinnu.“
Ef þú fengir þrjár óskir fyrir þitt
sveitarfélag og töframaður myndi
galdra þær, hverjar yrðu þær? „Að
kostnaðarsamar samgöngubætur
verði að veruleika eins og Sunda-
braut og heilsársvegur yfir Kalda-
dal. Að Illugi Gunnarsson mennta-
málaráðherra myndi skapa frið
um Landbúnaðarháskóla Íslands á
Hvanneyri og ráða þangað dugmik-
inn rektor sem hefur trú á starfsem-
inni og byggir hana upp til framtíð-
ar, Hvanneyrarstað og háskólanámi
í landinu til heilla. Að allir íbúar á
öllum aldri vakni hamingjusamir
og heilsuhraustir á hverjum degi og
gangi hamingjusamir til hvíldar að
kvöldi dags.“
Hún segir fjölgað hafa í sveitarfé-
laginu en betur megi gera. „Á kjör-
tímabilinu hefur íbúum fjölgað um
1,4% eða tæplega 48 manns. Fjölg-
unin mætti gjarnan vera meiri, hér
er nægt framboð af húsnæði og
lóðum, ótal sóknarfæri og lítið at-
vinnuleysi á svæðinu.“
„Stærstu ógnanirnar sveit-
arfélagsins snúa að núverandi
menntamálaráðherra og óþrjótandi
áhuga hans á að sameina Landbún-
aðarháskóla Íslands og Háskóla Ís-
lands. Hætt er við að sú sameining
muni hafa neikvæð áhrif á mannlíf-
ið á Hvanneyri og framtíð háskóla-
starfs þar en starfsemin í tengslum
við háskólana í héraðinu skiptir
samfélagið okkar gríðarlega miklu
máli. Tækifærin felast hins vegar
m.a. í aukinni ferðaþjónustu enda
sveitarfélagið auðugt af náttúru-
perlum. Frístundabyggð og lax- og
silungaveiði felur í sér mikil tæki-
færi tengd afþreyingu fyrir ferða-
menn. Borgarfjörðurinn er rótgró-
ið menntahérað og mikilvægt er
að byggja brýr á milli skólanna og
samfélagsins og leysa úr læðingi
þann sköpunarkraft sem býr í há-
skólunum. Borgarbyggð hefur alla
burði til að verða fjölskylduvænn
búsetukostur fyrir fólk sem vill búa
úti á landi og vera í næsta nágrenni
við höfuðborgina.“
Um möguleika listans í kosn-
ingunum segir Geirlaug. „Síðast
náðum við tveimur fulltrúum inn
í sveitarstjórn og höfum starfað í
minnihluta með fulltrúum fram-
sóknar síðastliðið kjörtímabil. Við
vonumst eftir enn meira fylgi núna
því þannig getum við náð fram
breytingum í Borgarbyggð.“
Hún segir Borgarbyggð búa yfir
ótal fjölbreyttum náttúruperlum og
því sé erfitt að velja einn fegursta
stað. „Paradísarlaut er í mestu upp-
áhaldi hjá mér en Eldborg, Hítar-
dalur og Hraunfossar eru t.d. einn-
ig miklar náttúruperlur.“
Sem lokaorð segir Geirlaug.
„Sjálfstæðisflokkurinn hefur verið
óslitið í meirihluta í Borgarbyggð
síðan 1996 eða í 18 ár. Það er lang-
ur tími og því löngu orðið tíma-
bært að breyta um áherslur í sveit-
arstjórn Borgarbyggðar. Til þess
að svo megi verða þá þurfa allir að
nýta kosningarétt sinn. 600 kosn-
ingabærra manna sátu heima við
síðustu sveitarstjórnarkosningar í
Borgarbyggð. Nú skora ég á alla að
nýta kosningaréttinn sinn og láta
hjartað ráða för.“
Bára Einarsdóttir
Aðspurð um mikilvægustu úrlausn-
arefnin næstu fjögur árin fyrir sveit-
arfélagið taldi Bára að það væri ekki
endilega einstök málefni heldur væri
kominn tími til að breyta áherslum.
„Ég vildi að það væri horft meira
upp í sveitirnar í stað þess að ein-
blína bara á Borgarnes.“
Um þá framboðslista sem bjóða
fram í Borgarbyggð segir Bára að
sér litist misjafnlega vel á frambjóð-
endur. „Líst vel á suma en aðra ekki,
en kannski svona ágætlega þegar á
heildina er litið.“
Þegar Bára var spurð hvort hún
gæti spáð fyrir um úrslit kosning-
anna, sagðist hún telja að Sjálfstæð-
isflokkurinn myndi sigra í kosn-
ingunum. „Mér heyrist á fólki að
Sjálfstæðisflokkurinn verði stærst-
ur núna.“
Linda Lovísa Sigurbjörnsdóttir
Þegar Lovísa var spurð hver væru
mikilvægustu úrlausnarefni næstu
fjögur árin í
Borgarbyggð,
taldi hún að at-
vinnumál væri
þau mál sem
helst þyrfti að
einblína á. „Það
þarf að koma
meiri vinna fyrir
fólkið.“ Aðspurð
um frambjóðendur þeirra lista sem
bjóða fram í sveitarfélaginu sagði
Lovísa að henni litist vel á þá sem
hún hefði séð að svo stöddu.
Lovísa segist ekki treysta sér til
að spá fyrir um niðurstöðu kosn-
inganna. „Nei, ég get ekki sagt
hverjir munu sigra þetta. Sjálf á
ég ennþá eftir að ákveða hverja ég
muni styðja.“
Árni Jónsson
Að mati Árna
eru atvinnu-
og húsnæðis-
mál þau mál
sem helst þurfa
úrlausnar við á
komandi kjör-
tímabili. „Það
þarf að auka
fjölbreytni í at-
vinnumálum og finna lausnir á
húsnæðismálunum, meðal ann-
ars með því að fjölga íbúðum sem
eru á leigumarkaði.“ Aðspurður um
framboðslistana í Borgarbyggð seg-
ir Árni að honum líst ágætlega á þá
frambjóðendur sem í boði eru. Árni
sagðist ekki geta spáð fyrir um úr-
slit kosninganna. „Nei, ég held að
ég geti ekki sagt hverjir sigra í kosn-
ingunum en vona að Samfylking-
unni gangi vel.“
Sigurbjörg Halldórsdóttir
S i g u r b j ö r g
nefndi nokkur
atriði sem hún
taldi að sveit-
arstjórn næsta
k j ö r t í m a b i l s
ætti að einbeita
sér að. „Það
þarf að byggja
íbúðir fyrir fólk
50 ára og eldri, laga gangstéttar í
Borgarnesi sem mér finnst vera al-
veg til skammar og svo auðvitað að
fjölga störfum.“
Aðspurð um ágæti framboðs-
listanna i Borgarbyggð sagði Sig-
urbjörg að hún væri ekki nægjan-
lega vel upplýst um þá til að dæma.
„Ég hef ekki kynnt mér þá ennþá.
Ég er hins vegar á þeirri skoðun
að ég myndi frekar vilja kjósa fólk í
stað lista.“ Sigurbjörg taldi sig ekki
getað spáð fyrir um úrslit kosning-
anna, en sjálf vill hún fá Samfylk-
inguna í stjórn.
jsb
Samfylkingin í Borgarbyggð
Framsóknarflokkurinn í Borgarbyggð
Hvað segja kjósendur í Borgarbyggð?