Skessuhorn - 27.05.2014, Side 95
95ÞRIÐJUDAGUR 27. MAÍ 2014
Í gærmorgun kom fyrsta skemmti-
ferðaskip sumarsins til Grund-
arfjarðar. Það viðraði ekki vel á
fyrstu gestina sem stigu í land úr
skemmtiferðaskipinu Fram. Sunn-
an rok og rigning var auk þess
sem vindhviður voru allnokkr-
ar. Það var því gott að eiga góð-
an pollagalla eins og þeir farþeg-
ar sem vöppuðu um bæinn fengu
að kynnast.
tfk
Ólafur Adolfsson skrifaði grein í
blaðið sem hann kallaði “Gerum
betur”. Þar talar hann um vaska
sveit sjálfstæðismanna sem ætla að
gera betur í stjórn bæjarins. Hann
nefnir ekki sérstaklega hvað hann
ætlar að gera betur, en talar um að
það hafi blundað lengi í sér að fara
í framboð og nú hafi „dýrið vakn-
að“.
Dýrið
Hvaða dýr er það sem er vaknað?
Er það sorphirðudýrið, sem vill
lækka gjöld vegna sorphirðu um
nokkra þúsundkalla? Eða er það
skipulagsdýrið sem vill koma í veg
fyrir byggingu veiðikofa á Akurs-
hóli? (Þetta er innihaldið í grein-
um félaga hans á lista sjálfstæðis-
manna). Nei, það er líklegt að hér
sé eitthvað meira á ferðinni. Hann
gæti t.d. selt hlut Akraness í Orku-
veitunni. Þá kæmi peningur inn í
reksturinn, rétt á meðan hann væri
við stjórnartaumana, einhver vel
valinn sjálfstæðismaður myndi lík-
lega fá hlutinn. Akranesbær yrði af
framtíðar hagnaði af Orkuveitunni.
Þetta hafa sjálfstæðismenn gert
víða þar sem þeir hafa komið ná-
lægt sveitarstjórnum, og þeir hafa
ekkert lært.
Ég klóra þér og þú mér
Ég verð að taka það fram, að ég hef
ekkert á móti því fólki sem fer fram
fyrir Flokkinn. En þetta er valda-
maskína þar sem hver verður að fá
sitt. Skýrasta dæmið er kvótamálið,
þar sem Flokkurinn gefur ákveðn-
um aðilum nánast ókeypis aðgang
að auðlindinni okkar *). Þeir geta
framlengt hann til annarra fyrir
tuttugufalda þá fjárhæð. Í staðinn
greiða þeir háar fjárhæðir í kosn-
ingasjóð flokksins, sem fer í flottar
auglýsingar og dýrt og fagmannlegt
kynningarefni.
Ábyrgðarfull stjórnun
Þegar við kjósum í bæjarstjórn,
erum við að velja fólk til að vinna
fyrir okkur. Þá ættum við að gera
eins og aðrir sem velja sér starfs-
menn: Við skoðum hvernig þeir
hafa staðið sig, ekki hvað þeir segj-
ast ætla að gera. Það er jafn rangt
að horfa framhjá þeim mistökum
sem flokkarnir hafa gert, og að við-
urkenna ekki það sem vel er gert.
Nú er sveitarfélagið vel rekið. All-
ar tölur benda til þess. Kjörnir full-
trúar og nefndarfólk hafa lagt sig
fram við að fá íbúana með, t.d. í
vinnu við skipulagsmál (íbúafundir
og facebókarhópar). Það er engin
ástæða til að skipta um meirihluta í
stjórn Akranesbæjar. Og þegar farið
er yfir stjórn ríkisfjármála og sveit-
arfélaga um allt land er eitt alveg á
hreinu: Þegar dýrið vaknar í sjálf-
stæðismönnum er ástæða fyrir okk-
ur hin að fara að vara okkur.
Kveðja, Reynir Eyvindsson
Höf. skipar 2. sæti á lista VG á
Akranesi.
*) Þetta gæti hann ekki gert, nema vegna
þess að hann fær Framsóknarflokkinn
með sér.
Á Laugaveginum í Reykjavík standa
tvær verslanir í eigu ungrar konu
frá Stykkishólmi. Um er að ræða
Hrím verslanirnar sem hafa skapað
sér nafn í íslenskri verslunarflóru
fyrir gott úrval af íslenskri og er-
lendri hönnun. Skessuhorn heyrði
í eiganda Hríms, Tinnu Brá Bald-
vinsdóttur.
„Ég opnaði Hrím hönnunarhús
upphaflega á Akureyri 2010 þeg-
ar ég var nýútskrifuð sem arkitekt
úr Listaháskóla Íslands, ásamt vin-
konu minni. Kreppan var skollin
á og erfitt að fá vinnu. Ég sá ekki
fram á að finna mér vinnu þann-
ig að ég ákvað að opna þessa versl-
un, aðallega til að hafa eitthvað að
gera,“ segir Tinna Brá um upp-
haf verslunarrekstursins. Tveim-
ur árum síðar opnaði hún verslun
í Reykjavík og seldi þá sem var á
Akureyri. Í dag er Hrím með tvær
verslanir sem standa ská á móti
hvor annarri við Laugaveg. Í Hrím
hönnunarhúsi er seld bæði íslensk
og erlend hönnun. Hrím eldhús er
ný verslun sem selur hönnunarvöru
fyrir eldhúsið, eins og nafnið gefur
til kynna. „Við opnuðum Hrím eld-
hús núna í mars. Við gerðum það út
af því að við erum að versla við fyr-
irtæki sem eru með breiða línu. Það
komst bara alls ekki allt fyrir sem við
vildum selja þannig að við ákváðum
að opna eldhúsbúðina. Þar seljum
við eitthvað af íslenskri hönnun en
meira af erlendum vörum. Mikið
frá Skandinavíu og Frakklandi,“ út-
skýrir Tinna Brá.
Hálfgerð félagsmiðstöð
Tinna Brá er sem fyrr segir upp-
alin í Stykkishólmi. Hún er dóttir
hjónanna Guðrúnar Benediktsdótt-
ur tanntæknis og Baldvins Indriða-
sonar sjómanns. Hún hafði strax
ung að aldri áhuga á hönnun og þá
sérstaklega arkitektúr. „Ég byrjaði
ung að teikna grunnteikningar af
húsum. Af framtíðar húsinu mínu,
herberginu mínu og svo framveg-
is. Ég ákvað mjög snemma að ég
ætlaði að verða arkitekt. Ég veit þó
ekki hvort það verður neitt úr því
úr þessu, fyrst maður fór út í versl-
unarrekstur,“ segir hún hlæjandi.
Tinna Brá hefur þó gaman af búð-
arvinnunni og nýtur þess að vera
innan um fólk. „Ég hafði unnið í
verslunum með skóla og hef allt-
af haft gaman af því að vera innan
um fólk og selja. Þetta vinnur mjög
vel saman, arkitektúrs námið nýtist
mér mjög vel í verslununum þegar
ég er að stilla út og hanna búðirn-
ar. Ég fæ alveg tækifæri til að vera
skapandi og finnst rosalega gaman
að innrétta búðirnar. Ég geri einnig
allar auglýsingar og nafnspjöld. Svo
er frábært að hitta svona mikið af
fólki, þetta er stundum eins og fé-
lagsmiðstöð hjá okkur.“ Tinna Brá
kannast við það að viðveran sé mik-
il fyrir eigandann, eins og margir
verslunareigendur þekkja. „Ég er
ansi mikið í eldhúsbúðinni núna.
Mér finnst mikilvægt að vera mik-
ið á staðnum, að setja mína sál inn
í verslunina og að vera andlitið á
bakvið hana.“ Hún segir að Hrím
sé hálfgert fjölskyldufyrirtæki.
Bróðir hennar, Baldvin Indriði El-
berg Baldursson, er verslunarstjóri
í Hrím eldhúsi. „Maðurinn minn
vinnur reyndar ekki í Hrím en hann
smíðaði nokkrar hillur, málaði og
hefur séð um fjármál fyrirtækis-
ins að hluta til. Svo fáum við mjög
mikla hjálp frá mömmu og pabba.
Ég veit að þau myndu koma meira
að versluninni ef þau byggju á höf-
uðborgarsvæðinu.“ segir Tinna.
Staðsetningin
skiptir máli
Eins og áður segir hefur Hrím
skapað sér nafn fyrir gott úrval.
Mikið er að gera í versluninni og
þykir hún vinsæl meðal fagurkera.
Pennagrein
Gera þeir betur?
Fyrsta skemmtiferðaskip sumarsins
til Grundarfjarðar
Vesturlandsmær með vinsæla verslun
„Við vorum rosalega heppin með
húsnæði. Verslunin er á svo góðum
stað á Laugaveginum og við erum
með stóran og góðan glugga. Það
skiptir miklu máli að vera vel stað-
settur og að hafa góðan glugga,“
segir Tinna Brá. Hún hefur sjálf
gaman af hönnun og hefur reynslu
af sviði hönnunar. „Ég var eitthvað
að hanna fyrst en ég hef því mið-
ur engan tíma til þess í dag. Núna
er maður bara á fullu í verslunar-
rekstri og tíminn fer allur í það. Ég
geri samt ennþá Hrím kransa og
jólatré,“ segir hún. Hún er þó einn-
ig með ráðgjöf þar sem hún sérhæf-
ir sig í hönnun á heimilum, skrif-
stofum og verslunarrýmum. Hún
leitast við að vinna náið með við-
skiptavinum sínum og reynir að
finna ódýrar, öðruvísi og skemmti-
legar lausnir. Tinna Brá finnur vel
fyrir auknum fjölda ferðamanna
og segir viðskiptavinahópinn vera
mjög blandaðan. „Rúmlega helm-
ingur viðskiptavina yfir sumartím-
ann eru erlendir ferðamenn. Þetta
er samt mjög blandað. Á öðrum
árstímum eru Íslendingar í meiri-
hluta og um jólin eru alveg 90%
þeirra sem versla við okkur Íslend-
ingar.“ Framundan hjá Tinnu Brá
í Hrím er að fylgja eftir opnun-
inni á nýju versluninni. „Svo erum
við með vefverslunina www.hrim.
is en erum að vinna í nýrri vefsíðu.
Hingað til hefur hún einungis ver-
ið á íslensku og nú er verið að setja
hana yfir á ensku, þar sem mikið af
okkar viðskiptavinum eru erlend-
ir,“ segir Tinna Brá Baldvinsdóttir
að lokum. grþ
Litadýrð blasir við þegar gengið er fram hjá Hrím hönnunarhúsi við Laugaveg.
Tinna Brá Baldvinsdóttir frá Stykkis-
hólmi er eigandi Hrím hönnunarhúss
og Hrím eldhúss.
Það kennir ýmissa grasa í Hrím eldhúsi sem opnuð var fyrr á árinu.