Skessuhorn - 27.05.2014, Page 96
96 ÞRIÐJUDAGUR 27. MAÍ 2014
Ingibjörg Valdimarsdóttir oddviti
Samfylkingarinnar á Akranesi birti
grein á vef Skessuhorns þann 23. maí
sl. þar sem hún slær sig til riddara fyr-
ir að vera sérstakur talsmaður opinn-
ar stjórnsýslu og upplýsingagjafar
til bæjarbúa. Sennilega á þessi grein
Ingibjargar þó sér aðrar skýringar því
henni mun örugglega hafa verið ljóst
frá byrjun síðasta árs að undirritað-
ir voru farnir að knýja á um að gerð-
ar yrðu opinberar upplýsingar um við-
skipti fyrirtækis sem hún er nátengd,
við Akraneskaupstað. Fyrir nokkrum
vikum síðan var farið að knýja fast-
ar á um að fá umbeðnar upplýsingar
og það var ekki fyrr en eftir verulegan
þrýsting síðustu daga sem þær loksins
fengust afhentar. Umbeðnar upplýs-
ingar snérust um viðskipti Omnis ehf.
við Akraneskaupstað á árinu 2013.
Þegar umbeðnar upplýsingar bárust
loksins, kom fram í svarinu að Omnis
ehf. yrði tilkynnt um að þessar upplýs-
ingar yrðu afhentar. Daginn eftir eða
þann 23. maí sl. birtir Ingibjörg Valdi-
marsdóttir oddviti Samfylkingarinn-
ar á Akranesi fyrir komandi kosning-
ar og eiginkona Eggerts Herbert-
sonar framkv.stj. Omnis ehf., grein
á vef Skessuhorns þess efnis að hún
hafi barist fyrir birtingu upplýsinga
um viðskipti Akraneskaupstaðar við
tengda aðila og þá sérstaklega þar sem
hún flokkist í þann hóp. Einkennileg
tímasetning það, ekki síst í ljósi þess
að undirritaðir höfðu sent fyrirspurn
til bæjarstjóra í janúar 2013 um hvort
til stæði að birta slíkar upplýsingar og
tók hún jákvætt í málið og ætlaði að
vinna því brautargengi. Í ágúst 2013
var erindið ítrekað við bæjarstjóra,
stuttu seinna flytur Ingibjörg sína til-
lögu í bæjarráði. Við látum lesendum
eftir að leggja saman 2 plús 2.
En forsaga málsins er auðvitað sú
að í aðdraganda síðustu sveitarstjórn-
arkosninga (2010) var mikið fjallað um
tölvumál Akraneskaupstaðar og kostn-
að þeim tengdum, og snérust þær um
hvort bjóða ætti þessi viðskipti út eða
ekki til að ná fram frekari hagræðingu
í rekstri. Skrifaðar voru margar grein-
ar í Skessuhorn, meðal annars af fram-
kvæmdastjóra Omnis ehf. Eggerti
Herbertssyni. Þann 6. október 2009
ritar hann grein í Skessuhorn þar sem
segir m.a.:
„Einnig minnist bæjarstjóri á að
hafa fengið tilboð frá Omnis um tölvu-
þjónustu fyrir bæjarfélagið. Þau tilboð
voru honum send sem trúnaðarmál og
merkt sem slík. Úr því að hann kýs að
nefna tilboðin er rétt að komi fram að
þar voru lagðar fram raunhæfar tillög-
ur um sparnað í rekstri tölvukerfa bæj-
arsins um rúmar 11.000.000 kr á ári.“
Í kjölfar úrslita kosninganna tók við
nýr meirihluti, meirihluti sem með-
al annars fékk aukið fylgi út á ofan-
greindan málflutning. Beið hann ekki
boðanna heldur réði ráðgjafa til að út-
búa útboðsgögn og bjóða út rekst-
ur tölvukerfis kaupstaðarins. Fór svo
að Omnis ehf. var með lægsta boð í
rekstur og umsjón tölvukerfanna. En
hvað svo, hver var svo sparnaðurinn
þegar upp var staðið? Hvernig gekk
Omnis að uppfylla loforð um að spara
11 milljónir á ári?
Árið 2011 sem var síðasta heila árið
sem Tölvuþjónustan Securstore ehf.
sá um rekstur tölvukerfa Akranes-
kaupstaðar hljóðuðu heildarviðskiptin
upp á 19,1 milljónir kr. án virðisauka-
skatts, þar af voru kaup á búnaði og
rekstrarvöru upp á 6 milljónir kr. Árið
2013 var fyrsta heila árið sem Omn-
is ehf., fyrirtæki nátengt Ingibjörgu
Valdimarsdóttur sinnti þessari þjón-
ustu. Heildarviðskipti þess fyrirtæk-
is árið 2013 voru rúmar 32 milljón-
ir kr. án virðisaukaskatts, þar af voru
11,5 milljónir kr. vegna kaupa á bún-
aði. Þessu til viðbótar var kostnaður
ráðgjafa vegna útboðs og úttektar á
tölvukerfum Akraneskaupstaðar um-
talsverður. Akraneskaupstaður hefur
ekki orðið við beiðni um að afhenda
upplýsingar um kostnað við ráðgjöf,
en óstaðfestar heimildir herma að
kostnaðurinn nemi mörgum milljón-
um króna.
Á fundi sem annar undirritaðra sat
með bæjarráði síðustu bæjarstjórn-
ar þar sem farið var yfir kostnað við
rekstur tölvukerfis bæjarins kom fram
það sjónarmið fulltrúa Samfylking-
ar og Vinstri Grænna að þrátt fyr-
ir að reksturinn væri í góðum hönd-
um og kostnaður ásættanlegur þá væri
það ófrávíkjanleg regla þeirra að við-
skipti sem þessi væru boðin út. Af lið-
lega 32ja milljóna króna viðskiptum
Omnis ehf. á síðasta ári eru rúmar 24
milljónir sem ekki falla undir samn-
ing í kjölfar útboðs. Af þessu má sjá
að ófrávíkjanlegu reglurnar eru fljót-
ar að falla fyrir eiginhagsmunum bæj-
arfulltrúa.
Ingibjörg Valdimarsdóttir odd-
viti Samfylkingarinnar var því ekki að
vinna neinn áfangasigur. Grein henn-
ar er fyrst og fremst pólitískur spuni
ætlaður til þess að slá ryki í augu bæj-
arbúa í aðdraganda kosninga þar sem
hún vissi að ofangreindar upplýsing-
ar myndu birtast bæjarbúum fyrr en
seinna.
Ingibjörg hefur verið í meiri-
hluta í fjögur ár og verið í lófa lagið
að láta birta þessar upplýsingar mun
fyrr. Stórhækkaður kostnaður sem að
mestu hefur runnið í vasa fyrirtæk-
is sem eiginmaður hennar er eigandi
að, skýrir að mati undirritaðra ástæðu
þess að það var ekki gert.
Það hefur verið skoðun undirrit-
aðra allt frá því að þessi mál komust
í hámæli fyrir síðustu sveitarstjórnar-
kosningar að hér væri á ferðinni póli-
tískur skollaleikur Sveins Kristinsson-
ar og Eggerts Herbertssonar sem átti
að þjóna tvennum tilgangi. Afla Sam-
fylkingunni fleiri atkvæða fyrir kosn-
ingarnar 2010 og færa viðskipti við
Akraneskaupstað til pólitískra vildar-
vina.
Allt var þetta gert í nafni hagræð-
ingar fyrir bæjarsjóð og útsvarsgreið-
endur. Við látum bæjarbúum eftir að
dæma um það hverjum fyrir sig. Töl-
urnar tala sínu máli.
Eiríkur Þór Eiríksson
Alexander Eiríksson
Þetta segir einn bæj-
arfulltrúi í ágætri
grein, sem birt var á vef Skessu-
horns sl. föstudag, og rekur í nokkr-
um orðum að unnist hafi áfanga-
sigrar í þeim efnum. Ég get tek-
ið undir með bæjarfulltrúanum að
nokkru leyti, en betur má ef duga
skal.
Á bæjarstjórnarfundi 29. apríl sl.
var samþykkt samkomulag við eig-
anda húsnæðisins við Heiðarbraut
nr. 40 sem hýsti Bókasafn Akra-
ness áður. Nú skal hann fá að reisa
tvær viðbyggingar við gamla hús-
ið og gera úr öllu saman 26 íbúða
fjölbýlishús. Eigandi hússins fær að
auka nýtingarhlutfall lóðarinnar um
rúmlega tvo, eða úr ca 0,40 í 0,88.
Rausnarlegt af bæjaryfirvöldum svo
ekki sé meira sagt.
En það er nú ekki allt. Mér skilst
að eigandi hússins fái nú þegar 7
milljónir króna úr bæjarsjóði og
niðurfellingu á gatnagerðagjöldum
vegna framkvæmdanna við húsið.
Eða alls nokkra tugi milljóna króna.
Ég sem almennur skattgreiðandi til
bæjarfélagsins okkar verð að óska
eftir skýringum á þessum gjörningi.
Einn bæjarfulltrúi var á móti þess-
ari afgreiðslu úr bæjarstjórn, en það
var Einar Brandsson. Hann stóð í
lappirnar að mér finnst í þessu máli
og virðist vera einna mest inn í því,
ef marka má umræður um málið í
bæjarstjórninni.
Nú vísa ég til orða bæjarfulltrú-
ans og kalla eftir gegnsærri stjórn-
sýslu og óska hér með eftir að bæj-
aryfirvöld upplýsi okkur bæjarbúa
og skattgreiðendur hvað er það sem
rekur þau til þess að veita eiganda
hússins við Heiðarbraut 40 þá fyr-
irgreiðslu sem vitnað er til hér að
framan. Ég óska eftir að málið verði
teki saman og það rakið frá upphafi.
Sjálfsagt er að birta það hér á síð-
um Skessuhornsins og á heima-
síðu Akraneskaupstaðar með öllum
þeim fylgiskjölum sem því tilheyra,
enda viljum við hafa allt gegnsætt
og opið.
Halldór Stefánsson
Ágæti kjósandi í
Borgarbyggð. Sem
forseti sveitarstjórn-
ar ætla ég að stikla á
stóru er varðar kjörtímabilið, sem
hefur verið margsnúið, en nánast öll
málefni hafa snúist sveitarfélaginu
og íbúum í hag. Hvort það hafi ver-
ið lán eða stjórnkænska skulum við
láta kjósendur dæma um.
Á okkar vakt hafa skuldir sveitar-
sjóðs lækkað og þjónustu batnað.
1. Vinstri hreyfingin grænt fram-
boð ásamt samstarfsflokki hafa
komið skuldastöðu og fjármálum
sveitarfélagsins í viðunandi ástand.
Skuldastaðan var mjög slæm vorið
2010, við vorum á gjörgæslu fjár-
málaráðuneytisins. Skuldaviðmið
Borgarbyggðar var 175%, er nú
121%.
2. Meirihluti sveitarstjórnar
stóð vörð um eign Borgarbyggðar
í Orkuveitu Reykjavíkur og Faxa-
flóahöfnum. Í dag er fjárhagsstaða
þessara tveggja fyrirtækja sterk og
mun OR borga út arð eftir 2-3 ár.
3. Atvinnuleysi í Borgarbyggð
mældist yfir 8% en er nú um 2,5%,
svo segja má að ástand á vinnu-
markaði sé gott. Sveitarstjórn hefur
allt kjörtímabilið lagt áherslu á gott
atvinnulíf í Borgarbyggð. Okkur
tókst að standa vörð um Háskólann
á Bifröst 2010 og Landbúnaðarhá-
skóla Íslands 2014, þó ýmislegt sé
ennþá óljóst er varðar LbhÍ. Einn-
ig tókst okkur að standa vörð um
byggingarfyrirtæki í héraðinu, svo
sem Límtré-Vírnet 2010 og 2011.
4. Sveitarstjórnarfulltrúar VG
lögðu áherslu á að fara í dómsmál
við Arionbanka vegna gjaldeyrisl-
áns sem hvíldi á sveitarsjóði. Með
úrskurði Hæstaréttar þá lækkaði
Arionsbankalánið um 75 milljónir,
fór úr 250 í 175 milljónir.
5. Í kosningarbaráttunni 2010
lögðu VG í Borgarbyggð áherslu
á að verja grunnskólann í upp-
sveitum Borgarfjarðar. Það tókst.
Í áframhaldi var farið í lagfæring-
ar á húsnæði skólans. Leikskólinn
í Reykholtsdal er sprunginn. Nú
bíða meðal annars 10 óléttar kon-
ur í uppsveitum eftir nýjum leik-
skóla. Töluverðrar bjartsýni gætir í
atvinnuuppbyggingu. Þess má geta
að þá hefur íbúum Borgarbyggðar
fjölgað um 50 manns á kjörtíma-
bilinu.
6. Nýtt aðalskipulag Borgar-
byggðar var samþykkt árið 2011.
Friðlandið við Andakíl var stækk-
að og svæðið fékk alþjóðlega Rams-
arvottun. Mörkuð hefur verið ný
stefna í sorphirðu í öllu sveitar-
félaginu og aukin verður endur-
vinnsla á sorpi.
7. Í lok kjörtímabilsins var ákveð-
ið að fara í stækkun og endurbygg-
ingu á Grunnskólanum í Borgar-
nesi og veita töluverðu fjármagni
í viðhald fasteigna sveitarfélagsins.
Búið er að lagfæra íþróttamiðstöð-
ina í Borgarnesi. Nú er kominn frá-
bær þreksalur og aðstaðan hefur
batnað.
8. Lögð hefur verið áhersla á
lagningu nýrra göngustíga í Borg-
arnesi til að tryggja betra öryggi
barna og til að stuðla að aukinni
lýðheilsu íbúa.
9. Sveitarfélagið hóf upp-
byggingu á nýju hjúkrunarheim-
ili í Borgarnesi, fjárfesting upp á
900 milljónir. Nú er búið að opna
glæsilegt heimili fyrir eldri borgara
í Borgarbyggð og nágrenni. Tíma-
setning framkvæmdanna var heppi-
leg fyrir byggingaiðnaðinn í sveit-
arfélaginu.
10. Komið var á tómstundarútu
fyrir börn og unglinga úr uppsveit-
um Borgarfjarðar sem sækja íþróttir
og tómstundir eftir skóla. Nú geta
þau tekið rútuna niður í Borgarnes
og strætó heim að loknum æfing-
um eða öðru æskulýðsstarfi. Svip-
að fyrirkomulag þarf að komast á
fyrir börn og unglinga sem búa á
Mýrum og í gamla Kolbeinsstaða-
hreppnum.
Þó að okkur hefur verið ágengt
á síðastliðnum fjórum árum þá eru
mörg verkefni sem bíða okkar.
VG bíður fram góðan hóp fólks
sem þekkir samfélagið. Við leitum
nú eftir stuðningi kjósenda svo að
Borgarbyggð nái að þróast og dafna
undir forustu Vinstri grænna. Ger-
um gott samfélag enn betra.
Kveðja,
Ragnar Frank Kristjánsson.
Höf. er oddviti VG í Borgarbyggð.
Á laugardaginn fara fram sveitar-
stjórnarkosningar um land allt.
Eitt af því mikilvægasta sem sveit-
arstjórnarkosningar snúast um er
sú stefna sem sveitarfélagið mótar
í málefnum ungs fólks. Það er ekki
hvað síst mikilvægt að unga fólkið,
við sem munum byggja þetta sam-
félag til framtíðar, stígum upp og
gerum grein fyrir því hvað það er
sem við viljum, svo samfélagið sé
sem ákjósanlegast til framtíðarbú-
setu.
Ungt fólk hefur of lengi staðið á
hliðarlínunni og látið þau sem eldri
eru ákvarða mál sem okkur varða.
Eitt sterkasta vopnið sem ungt fólk
hefur er kosningarétturinn. Sá rétt-
ur sem forfeður okkar börðust fyr-
ir með blóði, svita og tárum. Aðeins
með aukinni kjörsókn mun ungt
fólk hafa raunveruleg áhrif.
Á öllum framboðslistum sem
bjóða fram í Borgarbyggð er ungt
fólk sem býður fram krafta sína.
Við undirrituð hvetjum ungt fólk
til þátttöku í kosningunum á laug-
ardaginn því það skiptir raunveru-
legu máli.
B-listi Framsóknarflokks:
Helgi Haukur Hauksson
D-listi Sjálfstæðisflokks:
Pétur Már Jónsson
Guðrún Ingadóttir
S-listi Samfylkingar:
Inga Björk Bjarnadóttir
Sölvi G Gylfason
V-listi Vinstri hreyfingin - grænt
framboð:
Bjarki Þór Grönfeldt
Þóra Geirlaug Bjartmarsdóttir
Pennagrein
Hvatning til
ungra kjósenda
Pennagrein
Bæjarbúar kalla á
gegnsærri stjórnsýslu
Pennagrein
Á okkar vakt hefur hagur Borgarbyggðar vænkast
Pennagrein
Spunakonu svarað