Skessuhorn - 27.05.2014, Blaðsíða 97
97ÞRIÐJUDAGUR 27. MAÍ 2014
Nú berast þær fréttir að Hanna
Birna Kristjánsdóttir innanríkis-
ráðherra hafi lagt það til að und-
irbúa skuli gerð Sundabrautar til
Reykjavíkur. Þetta er framkvæmd
sem yrði mikil samgöngubót fyrir
Skagamenn og aðra þá er búa norð-
anmegin við Hvalfjörð. Gert er ráð
fyrir að einkaaðilar komi að þeirri
framkvæmd. Mín skoðun er sú að
ríkið ætti að sjá um hana þar sem
Sundabraut yrði hluti að vegakerfi
landsmanna.
Ef hugmyndin um gjaldtöku á
þessari leið yrði raunin þá verðum
við Skagamenn að mótmæla því há-
stöfum, því það yrði gríðarleg mis-
munun á milli landshluta ef af yrði.
Ekki er rukkað veggjald um Hellis-
heiði eða Reykjanesbraut sem eru
aðrar leiðir utan af landi til höfuð-
borgarsvæðisins. Sjálfsagt yrði bent
á þann möguleika að fara áfram
sömu leið og nú og sleppa þannig
við gjaldtöku.
Við Skagamenn eigum að mót-
mæla harðlega allri gjaldtöku á leið
okkar til höfuðborgarsvæðins. Þeg-
ar gjaldtöku verður hætt um Hval-
fjarðargöng þá er það góð búbót
fyrir okkur. Samfylkingin á Akra-
nesi mun mótmæla þessari gjald-
töku ef af yrði.
Guðjón Viðar Guðjónsson.
Höf. skipar 9. sæti lista Samfylk-
ingarinnar á Akranesi.
Í mínum huga snúast störf bæjar-
fulltrúa um tvennt. Annars vegar
að sjá svo um að sveitarfélagið sé
svo vel rekið að afgangur af rekstri
geti til lengri tíma litið staðið und-
ir kröfum og væntingum bæjarbúa
um bætt samfélag. Það eina sem
bæjarfélag hefur til skiptanna eru
tekjur þess. Nú er það svo að lög-
gjafinn hefur fyrirfram skuldbund-
ið okkar ágætu bæjarfulltrúa til
þess að leggja stærstum hluta tekna
sinna til ákveðinna verka. Því er svo
nauðsynlegt að því litla sem eftir
stendur sé varið á hagkvæman hátt.
Að öðrum kosti öðlast holur í göt-
um eilíft líf. Líka ryðbrunnar þak-
rennur.
Falleinkunn
Þrátt fyrir þung áföll í kjölfar efna-
hagshrunsins m.a. vegna mikillar
framkvæmda var rekstur Akranes-
kaupstaðar í þokkalegu lagi á síð-
asta kjörtímabili. Það sýndi afkoma
áranna 2009 og 2010 í kjölfar erf-
iðra sparnaðaraðgerða. Þær að-
gerðir bitnuðu auðvitað á mörgum
en síst á þjónustu bæjarfélagsins.
Því urðu það mikil vonbrigði að
fylgjast með lausatökum núverandi
meirihluta á rekstrinum. Á skömm-
um tíma versnaði afkoma bæjar-
ins og svo kom að við fengum gult
spjald frá stjórnvöldum vegna tap-
reksturs. Það er falleinkunn við þær
aðstæður sem Akranesbær býr við.
Meirihlutinn fellur aftur
Hins vegar er annað megin hlut-
verk kjörinna fulltrúa okkar ekki
lögbundið. Nefnilega að gæta okkar
hagsmuna að öðru leyti. Þar kemur
ýmislegt til. Vera vakandi yfir ýms-
um tækifærum sem bjóðast eins og
í uppbyggingu atvinnulífs í landinu.
Í gegnum tíðina hafa kjörnir full-
trúar okkar ekki síst þurft að gæta
hagsmuna okkar gagnvart stjórn-
málamönnum, oft í sama flokki,
sem fara með ríkisfjármálin. Oft er
okkar fólk þar í erfiðri stöðu eink-
um þegar við er að etja fólk úr öðr-
um byggðarlögum sem ekki hefur
skilning á þörfum okkar.
Því urðu það ólýsanleg vonbrigði
þegar fulltrúar Samfylkingarinn-
ar og Vinstri-Grænna í bæjarstjórn
Akraness létu einn úr sínum röðum
komast upp með það að skera svo
niður fjárveitingar til Heilbrigðis-
stofnunar Vesturlands að úr varð
djúpt sár í þjónustu á Akranesi, sem
langan tíma mun taka að græða. Ef
það tekst þá nokkurn tíma. Þar féll
meirihlutinn á prófinu.
Veljum rétt
Til þess að mæta kröfum og vænt-
ingum bæjarbúa þarf hver bæjar-
stjórn því að vera skipuð fólki með
sem víðtækasta reynslu. Hafa sem
ólíkastan bakgrunn og störfin þurfa
að vera ólík. Bæjarfulltrúar mega
ekki og eiga ekki að vera allir af
sömu gerð og uppruna. Þeir þurfa
að hafa framtíðarsýn og hafa kjark
til þess að segja hvar skórinn krepp-
ir og að ávallt sé hægt að gera betur.
Umfram allt þurfa þeir að hafa sýnt
hæfileika til þess að geta barist fyrir
hagsmunum sínum og sinna. Það er
góðs viti. Þessa hluti þurfa kjósend-
ur að hafa í huga þegar í kjörklef-
ann kemur á laugardaginn.
Með þetta að leiðarljósi er það
mér mikið ánægjuefni geta kosið
Sjálfstæðisflokkinn undir forystu
Ólafs Adolfssonar.
Halldór Jónsson
Ágætu lesendur! Fyrir skömmu
skrifaði ég í Skessuhorn um málefni
eldra fólks eða þeirra sem komn-
ir eru út af vinnumarkaðnum. Þar
bað ég um áherslur frambjóðenda
í fyrrnefndum málaflokki. Djúpt
virðis vera á svörum, en ekki er öll
nótt úti enn því nokkrir dagar eru
enn til kjördags. Ég er ekki að biðja
um loforð, heldur forgangsröðun,
kúluspilahallir eða bætt kjör fjár-
hagslega.
Þurfum við að stressa okkur yfir
úrslitum kosninganna? Á öllum
listum er hið frambærilegasta fólk,
ungt fólk sem hefur það markmið
að gera Akranes að aðlaðandi bæ til
framtíðar.
Nú er tækifærið þegar viðhald
gatna er í gangi að endurskoða of-
beldið í umferðinni, þá á ég við
hraðahindranir, burt með þær og
auglýsa Akranes sem hindrunar-
lausan bæ í orðsins fyllstu merk-
ingu. Ekki misskilja mig því auðvi-
tað er réttlætanlegt þar sem við á að
hafa hraðahindrun og gangbrautar-
ljós við stofnanir skóla og o.s.fv. En
gæta verður hófs í öllu.
Engin hindrun að flytja á Akra-
nes. Góðir skólar, sjúkrahús eitt
það besta á landinu, dvalarheimili
aldraðra mörgum sveitarfélögum
til fyrirmyndar, íþróttaaðstaða ein
sú besta ef ekki besta á þessu landi.
Er hægt að fara fram á meira?
Jú. Endurskoða þarf álögur á elli-
lífeyrisþega. Það eru einhver sveit-
arfélög að skoða þann þátt, og því
skildi það ekki verða gert í okkar
sveitarfélagi?
Verum því bjartsýn á framtíðina
því keppst er að því hjá frambjóð-
endum að hvergi verði betra að eiga
heima en á Akranesi.
Vilhjálmur Vilhjálmsson skóla-
bróðir minn á Laugarvatni söng
sig inn í sólskins veröld bjarta og
því set ég inn þennan lynk því tón-
list hressir og þegar textinn er upp-
byggilegur og við trúum á ver-
öld bjarta, framtíð og fegurð fyrir
Akranes.
ht tps : / /www.youtube .com/
watch?v=cevOx6kHHhE&feat-
ure=related
Með vinsemd og kveðju
til frambjóðenda.
Ingibjartur G. Þórjónsson,
Akranesi
Fyrir tæpum sjö
árum eignaðist ég
gullmola. Við hjón-
in eignuðumst okkar
þriðja dreng og hann var yndislegur.
Fljótlega fundum við þó að það var
eitthvað að, hans líf og þroski yrði
á annan hátt en við höfðum vonað.
Við tók tímabil vonbrigða, sorg-
ar og ótta. Dagar urðu að vikum,
vikur að mánuðum og mánuðir að
árum, en aldrei kom skýring á fötl-
uninni. Þetta er bara svona, enginn
sjúkdómur, ekkert heilkenni, ekkert
slys. Að mörgu leyti er ég feginn að
fá ekki vita hvað veldur, því margt
af því sem var útilokað sem orsaka-
valdar voru hræðilegir sjúkdómar,
kvalafullir, banvænir og ömurlegir.
Að læra um lífið
Á þessum sjö árum hef ég lært
meira um lífið en allan tímann þar
á undan. Það er nefnilega margt
sem maður rekur sig á við umönn-
um fatlaðs einstaklings, bæði pers-
ónulega og í kerfinu. Kerfið er stíft,
þunglamalegt og nískt. Nískan felst
oft í að spara hluti sem ættu að
vera sjálfsagðir og slík níska veldur
seinna útgjöldum annarsstaðar.
Ég skil fólk með fötlun og að-
standendur þeirra sem finnst það
fara á hnefanum gegnum lífið, fólk
sem tekur hvern slaginn á fætur
öðrum, mætir hurðum og veggjum
sem það þarf að berja sig í gegnum
til að fá lausn á málum. Ég hef sjálf-
ur gert þetta og geri enn.
Góða þjónustu má bæta
Ég get ekki kvartað undan þjónustu
Akraneskaupstaðar við minn dreng.
Sú þjónusta sem við höfum fengið
í leikskólanum Garðaseli og nú í
Grundaskóla er góð. Hlustað er á
okkur foreldrana og reynt að mæta
okkur þar sem við viljum vera.
Þannig á þetta líka að vera. Ég veit
hins vegar að ekki eru allir sáttir og
þjónustu við marga má bæta mikið.
Það vantar fagfólk á ýmsum sviðum
og biðlistar eru til staðar. Fátt er
mikilvægara í góðri þjónustu sveit-
arfélagsins en þessi málaflokkur og
því ber okkur skylda til að leggja
okkur fram við að sinna honum af
reisn. Á Akranesi er skólastarf sem
eftir er tekið, við eigum einhverja
bestu leik- og grunnskóla lands-
ins. Þangað eigum við að stefna
með þjónustu við fólk með fötlun.
Hvernig við stöndum okkur á þessu
sviði er ágætur vitnisburður um það
samfélag sem við búum í.
Kristinn Hallur Sveinsson.
Höf. skipar 4. sæti á lista Samfylk-
ingarinnar á Akranesi.
Í Borgarbyggð þar sem ég hef nú
búið, menntað mig og starfað síð-
astliðin 9 ár, er nú komið að því að
velja sér fulltrúa til að fara með lýð-
ræðislegt umboð til næstu fjögurra
ára. Ég býð mig fram en ekki að-
eins til þess að vera fulltrúi þeirra
sem þar búa, heldur jafnvel frekar
til þess að vinna með íbúunum.
Við í Samfylkingunni viljum að
sveitarfélagið birtist íbúum sem
samfélag þeirra sjálfra, stofnan-
ir þess og embættismenn sýni alúð
og natni í störfum sínum og sýni
að virðing sé borin fyrir öllum ein-
staklingum. Viðleitni sveitarfélags-
ins á að vera til að hlúa að því að
einstaklingurinn verði sjálfstæður
og skapandi, ábyrgur þátttakandi í
samfélagi og verði fær um að njóta
og neyta lýðræðislegs réttar til að
hafa mótandi áhrif á umhverfi sitt.
Það er sérstakt verkefni sveit-
arfélagsins að hlúa að fólki, hjálpa
til við að rjúfa einangrun og leysa
úr læðingi ónýtta krafta í þágu alls
samfélagsins. Fjöldi félaga í Borgar-
firði vinnur að markmiðum í sam-
félagsþágu. Þess vegna leggjum við
til að sveitarfélagið auðveldi sam-
gang og samstarf alls konar félaga,
samtaka og stofnana í Borgarfirði
sem og samskipti kynslóðanna.
Samfylkingin vill að sveitarfé-
lagið hafi frumkvæði að slíku sam-
starfi – byggi brýr, starfræki torg til
samskipta.
Því þarf að huga að auðveldari
samgöngum, styrkingu samfélaga
og jákvæðari tengingum þeirra.
Stjórnskipun á að byggja á gegnsæi
og lýðræðislegum stjórnarháttum.
Því leggur Samfylkingin til að all-
ar fundargerðir verði gerðar að-
gengilegar á netinu, íbúum verði
gert kleift að leggja fram tillögur
og fylgja þeim eftir, annars vegar á
netinu og hins vegar á íbúaþingum
sem fái formlega stöðu – og áhrifa-
vald á ákvarðanir.
Samfylkingin vill auðvelda sam-
starf framleiðenda og neytenda,
treysta lýðræði og efla hag einstak-
linganna og auðvelda samvinnu
þeirra. Við viljum auka velferð,
treysta virðingu manns á manni
og stofnunum í eigu samfélagsins.
Við viljum byggja upp velferðar- og
menningarsamfélag allra íbúa sveit-
arfélagsins.
Magnús Smári Snorrason
Höf. skipar 2. sæti á lista Samfylk-
ingarinnar í Borgarbyggð.
Við erum hópur-
inn sem er sprottinn
fram snemma á þessu
ári, skipaður kröft-
ugum og metnaðargjörnum ein-
staklingum sem eiga það sammerkt
að hafa brennandi áhuga á að gera
bænum okkar vel. Við skipulögð-
um okkur og skipuðum okkur í sveit
til að nýta sem best styrkleika okk-
ar, tryggja fjölbreytileika og búa til
sterka liðsheild sem næði athygli
þinni og áhuga.
Við erum hópurinn sem bauð þér
til þátttöku í málefnastarfi okkar í
mars og apríl og kallaði eftir sjón-
armiðum þínum á því hvar kröftum
okkar væri best varið næstu fjögur
árin. Þessar áherslur höfum við síð-
an meitlað inn í stefnuskrá sem þú
hefur nú fengið í hendur og lýsir vel
þeim áherslum sem við viljum hafa
að leiðarljósi í vinnu okkar.
Við höfum háð málefnalega kosn-
ingabaráttu með það að leiðarljósi að
við bjóðum okkur fram til þjónustu
við þig og aðra bæjarbúa. Við höf-
um vonandi hitt á þig í vinnustaða-
heimsóknum okkar, á kosninga-
skriftstofunni á Skólabrautinni, nú
eða bara á förnum vegi til að fræða
þig um hvað við höfum fram að færa
og hlusta á þín sjónarmið.
Við erum hópurinn sem hefur þá
eindregnu skoðun að bæjarfélag-
ið okkar eigi að einbeita sér að lög-
bundnum verkefnum sínum og gera
það vel með hagsýni og ráðdeild að
leiðarljósi.
Nú styttist í að þú bæjarbúi góð-
ur veljir þér fulltrúa til starfa fyr-
ir þig næstu fjögur árin og það er
ekki amalegt að hafa allt þetta góða
mannval úr öllum flokkum til að
velja úr.
Við vonumst til þess að vera hóp-
urinn sem þú treystir best til að gera
vel fyrir Akranes á næstu fjórum
árum.
Við erum Sjálfstæðisflokkurinn á
Akranesi og við viljum gera betur.
Ólafur Adolfsson.
Höf. skipar 1. sæti á lista Sjálfstæð-
isflokksins á Akranesi.
Pennagrein
Gjaldfrí Sundabraut
Pennagrein
Á vængjum vonarinnar
berst hin ærandi þögn
Pennagrein
Viltu fá okkur til starfa?
Pennagrein
Veldur hver á heldur
Pennagrein
Jafnaðarmennska í stjórn sveitarfélaga
Pennagrein
Gullmolinn