Læknablaðið - 15.07.2003, Page 5
II M R Æ 0 A 01! FRETTIR
600 Af sjónarhóli stjórnar LÍ:
Umræðan og hugleiðingar um
stöðu Iækna í íslenska
heilbrigðiskerfínu
Ofeigur Þorgeirsson
603 Aðalfundur LÍ 2003
605 Tillögur stjórnar LÍ til
ályktana á aðalfundi
609 O tempora! O mores!
Jóhann Tómasson
611 FráWHOtil
Lýðheilsustöðvar
Rætt við Guðjón Magnússon
609 Þröstur Haraldsson
617 30 læknar útskrifaðir frá
Háskóla Islands
Þröstur Haraldsson
618 Dánarorsakir 1999
619 Meira um einkavæðingu
og einkarekstur
Sigurbjörn Sveinsson
621 Staða mála hjá CPME
árið 2003
Katrín Fjeldsted
624 Vorfundur UEMO 2003
Katrín Fjeldsted,
Steinunn Jónsdóttir
625 íðorðasafn lækna 157.
Plaque
Jóhann Heiðar Jóhannsson
627 Faraldsfræði 30.
Faraldsfræði eða tölfræði
- hver er munurinn?
María Heimisdóttir
629 Lyfjamál 116.
Sjúkdómsvæðing?
Eggert Sigfússon
631 Broshornið 39.
Af mænuástungu og
peningasöfnun
Bjarni Jónasson
633 Lausar stöður
634 Okkar á milli
635 Sérlyfjatextar með
auglýsingum
636
Leyfísveitingar
Leiðrétting
642
Minnisblaðið
643 Frágangur fræðilegra
greina
Heimasíða Læknablaðsins
www.laeknabladid.is
LISTAMAÐUR
MÁNAÐARINS
Anna Líndal (f. 1957) tók meist-
arapróf í fataiön áöur en hún sneri
sér að myndlist en hana nam hún
við Myndlistar- og handíöaskólann í
Reykjavík, Slade-listaskólann í
Lundúnum og Listaháskólann í
Berlín. Þótt Anna hafi fengist nær
eingöngu við myndlist síðustu tvo
áratugi og sé nú prófessor við
Listaháskóla Islands má segja að
iðnámsins sjái stundum stað í
verkum hennar. Þegar hún hóf
sýningarferil sinn sýndi hún gjarnan
verk sem tengdust á einn eða annan
hátt saumi og enn birtast tvinni og
nálar stundum í list hennar.
Þjóðfélagið í sínum margbreyti-
leika er hennar áhugasvið, um árabil
hefur Anna stundað það sem hún
kallar kortiagning hversdagslífsins,
þar sem „ósýnilegir" hversdagslegir
hlutir eru dregnir fram í dagsljósið
þar sem þeir hafa fengið nýtt lilut-
verk. Anna skoðar samfélagslega
stöðu konunnar og þá gjarnan með
tilvísun til heimilisins og heimilislegra
hluta eins og í verkinu á forsíðu
þessa blaðs (2001) en einnig í stærri
innsetningum sem endurskapa
stundum eins konar heimili í bland
við myndbandsverk og ýmiss konar
skúlptúra og Ijósmyndir. Á síðustu
árum hafa myndböndin orðið fyrir-
ferðarmeiri en samsettir skúlptúrar á
borð við þennan birtast þó enn á
sýningum hennar og bera sterk
höfundareinkenni Önnu. Anna hefur
lag á því að koma á óvart í notkun
sinni á hversdagslegum hlutum í
samsetningum sem oftast hafa á sér
eins konar súrrealískt yfirbragð.
Anna hefur vakið mikla athygli
fyrir list sína og sýnt mikið, bæði hér
heima og erlendis. Þá er verk hennar
að finna í öllum helstu söfnum hér á
(slandi og víða annars staðar.
Jón Proppé
Læknablaðid 2003/89 561