Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.07.2003, Qupperneq 23

Læknablaðið - 15.07.2003, Qupperneq 23
FRÆÐIGREINAR / LITLIR FYRIRBURAR fundust við skoðun hjá 18 (51%) og einnig hjá tveim- ur (4%) af 55 samanburðarbörnum. Taugalæknis- fræðileg skoðun var eðlileg hjá níu fyrirburum. Frá- vik við skoðun (frumstæð viðbrögð, óeðlilegar hreyf- ingar, minnkuð/aukin vöðvaspenna og minnkuð/auk- in viðbrögð) voru til staðar hjá 26 (74%) fyrirburum og 5 (9%) samanburðarbörnum. Frávik í hreyfifærni (jafnvægi, handahreyfingar, göngufærni, hoppa og standa á einum fæti) greindust hjá 18 (51%) fyrir- burum og einu (2%) samanburðarbarni. Fyrirburar voru órólegri við skoðun en samanburðarbörn og níu (26%) þeirra héldust ekki á skoðunarbekk meðan læknisskoðun fór fram miðað við eitt (2%) saman- burðarbarn. í töflu V eru upplýsingar um niðurstöður þroska- mælinga á vitsmunaþroska, málþroska og skynhreyfi- þroska barnanna. Frammistaða mældist innan eðli- legra marka eða ofar á öllum þremur þroskaprófum hjá níu (26%) fyrirburum og 44 (80%) samanburðar- börnum. Frammistaða 17 (49%) fyrirbura mældist einu til tveimur staðalfrávikum fyrir neðan meðal- getu jafnaldra á einu eða fleiri þroskaprófum og einnig hjá níu (16%) samanburðarbömum. Frammi- staða mældist meira en tveimur staðalfrávikum fyrir neðan meðalgetu jafnaldra á einu eða fleiri prófum hjá níu fyrirburum (26%) og tveimur (4%) saman- burðarbörnum. Alls greindust fimm (14%) fyrirburar með fötlun og fimm (14%) fyrirburar til viðbótar greindust með þroskaskerðingu þar sem frammistaða á þroskaprófi/ prófum var meira en tveimur staðalfrávikum fyrir neðan meðalgetu jafnaldra. Ekkert samanburðar- barn var með fötlun en tvö þeirra (4%) voru með þroskaskerðingu þar sem frammistaða á þroskaprófi/ prófum var meira en tveimur staðalfrávikum fyrir neðan meðalgetu jafnaldra. Hreyfihömlun vegna heilalömunar (Cerebral Palsy/CP) greindist hjá þremur (9%) fyrirburum, tveir voru með stjarfa tvílömun og einn með slingur- heilalömun. Fjórir (11%) fyrirburar til viðbótar voru með einkenni stjarfrar helftarlömunar án þess að um hreyfihömlun væri að ræða. Þroskahömlun greindist hjá fjórum (11%) fyrirburum, tveir með væga þroskahömlun og tveir með miðlungs alvarlega þroskahömlun og var eitt þessarra barna einnig blint. Auk þess voru tveir (6%) fyrirburar til viðbótar rétt ofan við mörk þroskahömlunar samkvæmt mæling- um á vitsmunaþroska. Einungis einn (3%) fyrirburi var blindur og enginn greindist með heyrnarleysi. Umræða Með vaxandi fjölda lítilla fyrirbura veldur áhyggjum að óvissa ríkir um langtímahorfur þeirra og hvort bömum með fötlun fjölgi. Mikilvægt er að geta gefið foreldrum upplýsingar um langtímahorfur barna sinna. Til þess að svo megi verða þarf vandaðar lang- Table IV. Physical Assessment of ELBW* Children born in 1991-95 Compared to Control Children. ELBW Control P (n = 35) (n = 55) Measurements mean (range) mean (range) Height in cm 109 (99-120) 113 (101-123) <0.001 Weight in kg 18 (12.7-26.5) 20.6 (15.6-25.7) <0.001 Head Circumference in cm 50.1 (47.5-52.4) 52.7 (50.0-55.0) <0.001 n (%) n (%) p Physical Assessment Abnormal General Examination 18 (51) 2 (4) <0.0001 Abnormal Neurological Examination 26 (74) 5 (9) <0.0001 Abnormal Motor Skills 18 (51) 1 (2) <0.0001 Overactive Behaviour 9 (26) 1 (2) 0.002 Normal Neurological Examination with Normal Motor Skills 6 (17) 50 (91) with Abnormal Motor Skills 3 (9) 0 (0) Abnormal Neurological Examination with Normal Motor Skills 11 (31) 4 (7) with Abnormal Motor Skills 15 J43) 1 (2) * ELBW: Extremely Low Birth Weight. Table V. Performance on Developmental Testing of ELBW* Children Born in 1991-95 Compared to Control Children. Developmental Testing Performance (WPPSI-R, T0LD-2P, MAP) ELBW n (%) Control p n (%) All Tests Results Within Normal Range or Above 9 (26) 44 (80) 0.002 One/More Tests > -ÍSD below Normal Range 17 (49) 9 (16) One/More Tests > -2SD below Normal Range 9 (26) 2 (4) * ELBW: Extremely Low Birth Weight. tímaathuganir á heilsu og þroska barnanna eins og Escobar, Littenberg og Petitti mæla með (21). Ráð- leggingar þeirra voru leiðarljós þessarar íslensku rannsóknar á heilsufari og þroska lítilla fyrirbura. Samanburður á fyrirburahópum áranna 1982-90 og 1991-95 sýnir að klínísk viðfangsefni voru svipuð á meðgöngu og nýburaskeiði á báðum tímabilum. Sjúk- dómar, lyfjameðferð og reykingar mæðra einkenndu fyrirburameðgöngur umfram meðgöngur samanburð- arbarna. Greinilegt samband reykinga á meðgöngu og fyrirburafæðinga fannst á báðum tímabilum og rennir stoðum undir kenningar um orsakasamband (42). Hins vegar fékkst ekki staðfesting á því að belg- himnubólga skýri stærstan hluta fyrirburafæðinga eins og nýlegar rannsóknir sýna (43), því að í einungis 11% tilvika 1982-90 og 14% tilvika 1991-95 fundust merki um sýkingu í fylgju og belgjum. Fleiri fyrirburar fæddust með keisaraskurði en samanburðarbörn og jókst tíðni keisaraskurða allnokkuð á seinna tímabil- inu miðað við það fyrra og gæti bent til afdráttarlaus- ari meðferðar lítilla fyrirbura á því tímabili. Fleiri telpur eru í hópi lxtilla fyrirbura sem eru á lffi við fimm ára aldur, 12 af 19 fyrirburum fæddum árin 1982-90 og 27 af 35 fæddum árin 1991-95. Pótt Læknablaðið 2003/89 579
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.