Læknablaðið - 15.07.2003, Side 39
FRÆÐIGREINAR / CAG-A MÓTEFNAVAKI
Algengi Helicobacter pylori sýkingar
og Cag-A stofna hjá sjúklingum
með skeifugarnarsár á Islandi
Ari Konráðsson'
LÆKNIR
Leif Percival
Andersen2
SÉRFRÆÐINGUR
í SMITSJÚKDÓMUM
Einar Oddsson3
SÉRFRÆÐINGUR
í LYFLÆKNINGUM
OG MELTINGARSJÚKDÓMUM
Hallgrímur
Guðjónsson3
SÉRFRÆÐINGUR
í LYFLÆKNINGUM
OG MELTINGARSJÚKDÓMUM
Bjarni Þjóðleifsson3
SÉRFRÆÐINGUR
( LYFLÆKNINGUM
OG MELTINGARSJÚKDÓMUM
Ágrip
Tilgangur: Algengi H. pylori sýkingar og tengdra
magasjúkdóma breytist hratt í vestrænum löndum.
H. pylori sýking hefur verið tengd við magabólgur,
sár í skeifugörn og maga og magakrabbamein. Þessi
tengsl eru sérlega sterk fyrir þá stofna af H. pylori
sem eru Cag-A jákvæðir. H. pylori er að hverfa af
náttúrulegum ástæðum meðal vestrænna þjóða, sér-
staklega Cag-A jákvæðir stofnir sem er útrýmt um-
fram aðra stofna vegna tengsla þeirra við sárasjúk-
dóm. Markmið rannsóknarinnar var að kanna al-
gengi 11. pylori sýkingar og Cag-A stofna hjá sjúk-
lingum með skeifugarnarsár áður en uppræting á H.
pylori var almennt útfærð á Islandi.
Efniviður og aðferðin Mótefni fyrir H. pylori og Cag-A
voru skoðaðir með Westem blot aðferð í semm sýnum
frá 62 sjúklingum með skeifugamasár. Sýnunum var
safnað á tímabilinu 1993-96 og ættu að sýna algengi
Cag-A áður en virkri upprætingu á H. pylori var beitt
að fullu. Enginn sjúklinganna hafði fengið uppræt-
ingarmeðferð gegn H. pylori áður en sýnin voru tekin.
Niðurstöður: Af 62 sýnum voru 54 (87.1%) jákvæð
fyrir H. pylori sértækum mótefnavökum og af þess-
um jákvæðu sýnum voru 53 (98,1%) jákvæð fyrir
Cag-A.
Alyktanir: H. pylori stofnar sem tengjast skeifu-
garnasárum á íslandi eru yfirgnæfandi (98,1%) Cag-
A jákvæðir.
‘Læknadeild Háskóla íslands,
:Dept. of Clinical Microbio-
logy, Rigshospitalet Univer-
sity Hospital, Copenhagen,
Denmark, ’Rannsóknarstofu í
meltingarsjúkdómum, lyf-
lækningadeild Landspítala.
Fyrirspurnir og bréfaskriftir:
Bjarni Þjóöleifsson, melting-
arsjúkdómadeild Landspítala
Hringbraut, 101 Reykjavík.
Sími 543 1000.
bjarnit@landspitali. is
Lykilorð: skeifugarnarsár,
magasár.
Inngangur
Sýking með H. pylori er algengasta bakteríusýking
sem leggst á manninn (1). í vanþróuðum löndum er
tíðni sýkinga um 90% en í þróuðum löndum er hún
um 40-60% og fer hratt fallandi í yngri aldurshópum.
Rannsókn sem gerð var árið 1990 á algengi mót-
efna gegn H. pylori á Islandi sýndi að hjá aldurs-
flokknum 70 ára og eldri var algengi um 80% og hjá
aldursflokknum 10 ára og yngri var algengi H. pylori
minna en 10% (2). Tíðni H. pylori hefur verið könn-
uð á Islandi með CLO prófi hjá 80 börnum sem komu
í magaspeglun 1997-2002 vegna meltingaróþæginda
og reyndist hún um 0,1 % (upplýsingar frá Lúter Sig-
urðssyni). Nýgengi sýkinga hjá fullorðnum meðal
þróaðra þjóða er mjög lágt, eða um 0,5% einstaklinga
á ári (3). Flest bendir því til að algengi H. pylori muni
halda áfram að falla um 10% eða meira á hverjum
ENGLISH SUMMARY
Konráðsson A, Andersen LP, Oddsson E, Guðjónsson
H, Þjóðleifsson B
Prevalence of Helicobacter pylori and Cag-A
strains in patients with duodenal ulcer in lceland
Læknablaðið 2003; 89: 595-7
Objective: The prevalence of Helicobacter pylori infection
and related gastric diseases is rapidly changing in western
societies. H. pylori has been associated with gastritis,
gastric and duodenal ulcer and gastric cancer. This
association applies in particular to H. pylori strains which
are Cag-A positive. H. pylori is naturally disappearing from
western populations in particular Cag-A positive strains
which are selectively eradicated due to their association
with peptic ulcer. The aim of the study was to assess the
prevalence of H. pylori in duodenal ulcer disease and its
Cag-A status before the eradication of H. pylori was
routinely applied.
Material and methods: Antibodies for H. pylori and Cag-
A were investigated by Western blot method in serum
samples from 62 patients with duodenal ulcer. The
samples were collected during the period 1993-1996 and
should represent the Cag-A prevalence before it was
changed by active eradication. No subject had received H.
pylori eradication before the study.
Results: Of the 62 samples 54 (87.1 %) were positive for
H. pylori specific antigen and of the 54 positive samples
53 (98.1 %) were positive for Cag-A.
Conclusion: H. pylori strains associated with duodenal
ulcer in lceland were predominantly (98.1%) Cag-A
positive.
Key words: Cag-A. Helicobacter pylori, duodenal ulcer,
gastric cancer.
Correspondence: Bjarni Þjóðleifsson,
bjarnit@landspitali.is
áratug 21. aldarinnar af náttúrlegum ástæðum einum
saman. Til viðbótar fer fram virk uppræting á H. pyl-
ori hjá sjúklingum þar sem talið er að hann sé mein-
valdur að sársjúkdómum eða skapi hættu á krabba-
meini í maga eins og hjá aðstandendum sjúklinga með
magakrabbamein. Það má því búast við að II. pylori
hverfi jafnvel á næstu 10-20 árum sem meinvaldur
ekki síst vegna þess að uppræting beinist mest að Cag-
A jákvæðum stofnum (4). Minnkandi algengis H. pyl-
ori er nú þegar farið að gæta í faraldsfræði þeirra sjúk-
Læknablaðið 2003/89 595
L