Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.07.2003, Page 49

Læknablaðið - 15.07.2003, Page 49
UMRÆÐA & FRETTIR / AÐALFUNDUR Ll Tillögur stjórnar LÍ til ályktana á aðalfundi Tillögur til ályktana frá stjórn LÍ L Aðalfundur Læknafélags Islands, haldinn að Hólunr í Hjaltadal dagana 22. til 23. ágúst 2003, felur stjórn félagsins í samráði við Siðfræðiráð að endurskoða Codex ethicus. Stjórnin leggi fullmótaðar tillögur sínar fyrir aðalfund LÍ 2005. 2. Aðalfundur Læknafélags íslands, haldinn að Hólum í Hjaltadal dagana 22. til 23. ágúst 2003, felur stjórn félagsins að móta stefnu í öryggismálum sjúklinga. Stjórnin leggi fullmótaða stefnu sína fyrir formanna- fund LÍ 2004. 3. Aðalfundur Læknafélags Islands, haldinn að Hólum í Hjaltadal dagana 22. til 23. ágúst 2003, felur stjórn félagsins að útfæra tillögur Fræðslustofnunar lækna, sem lagðar hafa verið fyrir fundinn, um fyrirkomu- lag skráningar símenntunar lækna. Fundurinn felur stjórn félagsins að aðstoða Fræðslustofnun við fram- kvæmd tillagnanna. 4. Aðalfundur Læknafélags íslands, haldinn að Hólum í Hjaltadal dagana 22. til 23. ágúst 2003, fagnar leið- beiningum Siðfræðiráðs um rafrænar kynningar lækna á netinu. Fundurinn felur stjórn félagsins að kynna þessa leiðbeiningar og hafa þær til hliðsjónar við þá endurskoðun Codex ethicus, sem mælt hefur verið fyrir um. 5. Aðalfundur Læknafélags íslands, haldinn að Hólum í Hjaltadal dagana 22. til 23. ágúst 2003, felur stjórn félagsins að gera heildarúttekt á störfum félags- manna fyrir félagið og hvort launa beri þetta félags- starf í framtíðinni. Stjórnin leggi með þeirri skýrslu áætlun um áhrif tillagna sinna á fjárhag félagsins og árgjöld. 6. Aðalfundur Læknafélags íslands, haldinn að Hólum í Hjaltadal dagana 22. til 23. ágúst 2003, lýsir áhyggj- um sfnum yfir tilhneigingu stjórnvalda að þrengja stöðugt möguleika lækna á sjálfstæðri atvinnustarf- semi og að slíta í sundur störf þeirra á sjúkrastofnun- um annars vegar og í þágu sjúklinga á ferli hins vegar. Fundurinn minnir á stefnu Læknafélags íslands, sem ítrekuð var á aðalfundi félagsins 2001 að læknar séu frjálsir að því að stunda lækning- ar í eigin atvinnurekstri utan sem innan sjúkra- stofnana án annarra takmarkana en þeirra, sem faglegar kröfur eða samningar við stjórn- endur stofnana leyfa. Grundvöllur þessa er, að sjúkratryggðir njóti jafnræðis, hvort sem þeir fá læknisþjónustu á sjúkrahúsi eða utan þess og njóti tryggingaverndar Tryggingastofnunar rík- isins. - að læknar njóti jafnræðis á vinnumarkaði og í atvinnurekstri og að ákveðnar sérgreinar lækn- isfræðinnar svo sem heimilislækningar séu ekki nánast útilokaðar frá verktöku fyrir sjúkra- tryggingarnar eins og nú er raunin." 7, Aðalfundur Læknafélags íslands, haldinn að Hólum ]' Hjaltadal dagana 22. og 23. ágúst 2003, samþykkir fyrirliggjandi drög að samningi milli Læknafélags ís- lands og Samtaka verslunarinnar um samskipti lækna og fyrirtækja sem selja hjúkrunarvörur og lækninga- tæki. Aðalfundurinn mælist til þess að samningur þessi verður sameinaður samningi um samskipti lækna og lyfjafyrirtækja þegar gildistími beggja samninga rennur út. 8. Tillögur stjórnar Lí um stjórnarkjör: Formaður: Sigurbjörn Sveinsson, gjaldkeri: Birna Jónsdóttir, meðstjórnendur til eins árs: Ófeigur Þorgeirsson, Páll Helgi Möller, Sigurður E. Sigurðsson. Læknablaðið 2003/89 605

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.