Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.07.2003, Page 51

Læknablaðið - 15.07.2003, Page 51
UMRÆÐA & FRÉTTIR / AÐALFUNDUR LÍ Tíllaga til ályktunar á aðalfundi LÍ 2003 Frá Arnóri Víkingssyni Aðalfundur Læknafélags íslands haldinn að Hólum í Hjaltadal dagana 22. og 23. ágúst 2003 felur stjórn Læknafélags Islands að mynda starfshóp sem mótar tillögur um hvernig nýta megi tölvusamband og sím- töl á sem hagkvæmastan og öruggastan máta í sam- skiptum lækna og sjúklinga. Starfshópurinn skal jafn- framt setja fram hugmyndir um gjaldskrá fyrir slíka þjónustu. Greinargerö Tölvutæknin hefur gjörbreytt samskiptamynstrum í nútímasamfélagi. Með netpósti er í senn hægt að halda uppi samskiptum sem eru gagnvirk, skýr, hröð og skjalfest. Slík samskipti draga einatt úr þörf fyrir fundahöld og eru laus við þá kvöð að báðir samskipta aðilar hafi lausa stund á sama tíma dagsins. Þrátt fyrir þessa kosti netpóstsins hefur lítil umræða farið fram innan læknastéttarinnar um hvort og hvernig nýta megi tölvutækni í læknisþjónustu við sjúklinga. Víða erlendis er komin reynsla á þetta samskiptaform milli lækna og sjúklinga og í mars 2003 gáfu „American College of Physicians“ út stefnuyfirlýsingu varðandi notkun tölvutækni í utanspítalaþjónustu við sjúklinga og hvernig ætti að greiða þóknun fyrir slíka þjónustu (1). Rannsóknir erlendis hafa meðal annars sýnt að tölvusamband milli læknis og sjúklinga með lang- vinna sjúkdóma dró úr innlögnum á sjúkrahús (2). Önnur rannsókn sýndi að kostnaður við heilbrigðis- þjónustu lækkaði um 3,69 dollara á mánuði fyrir hvern sjúkling og að bæði læknar og sjúklingar voru mjög ánægðir með þetta „webVisit“ prógram (3). Þörf fyrir formleg netsamskipti við sjúklinga eru þeim mun brýnni á Islandi í Ijósi þess biðtíma eftir viðtali við lækni sem víða er í heilsugæslunni og hjá öðrum sérfræðilæknum á stofum eða göngudeildum. Heimlldir 1. The changing face of ambulatory medicine - reimbursing phy- sicians for computer-based care. American College of Physicians, Medical Service Committee. Policy paper, March 2003. 2. Maguire P. How one health plan pays physicians for cybercare. ACP Observer. September 2000. 3. The RelayHealth webVisit Study: Final Report, January 2003. Arnór Víkingsson Tillaga stjórnar LÍ til lagabreytingar Um stjórn félagsins og formannafund 9.gr Skipan og kjör stjórnar Stjórn félagsins skipa tíu níu menn, formaður, ritari, varaformaður, féhirðir og sex meðstjórnendur. For- menn Félags íslenskra heimilislækna, og Sérfræð- ingafélags íslenskra lækna og Félags ungra lækna eru sjálfkjörnir meðstjórnendur. Þrír meðstjórnendur eru kosnir á aðalfundi úr hópi félagsmanna. Stjórnar- menn skulu vera frá a.m.k. tveimur aðildarfélögum. Formaður, ritari, varaformaður og féhirðir skulu kosnir hver fyrir sig til tveggja ára í senn. Annað árið skal kjósa formann og féhirði, en hitt árið ritara og varaformann. Séu fleiri en tveir í framboði og falli at- kvæði að jöfnu, skal kjósa aftur milli þeirra, sem flest atkvæði hlutu. Falli atkvæði aftur að jöfnu, eða hafi tveir verið í kjöri og atkvæði fallið að jöfnu, skal hlut- kesti ráða. Þrír meðstjómendur skulu kosnir til eins árs í senn. Verði atkvæði jöfn við kjör þeirra, skal hlutkesti ráða. Kjósa skal tvo skoðunarmenn og einn til vara úr hópi félagsmanna til eins árs í senn. Læknablaðið 2003/89 607

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.